Í tilkynningu frá samtökunum er bent á að yfir svipað tímabil árið 2018 hafi 62 hvalir verið veiddir og ef slíkt hið sama sé gert fyrir árið 2022 hafi 55 hvalir verið veiddir. Gefa samtökin í skyn að með aðgerðum sínum hafi um tuttugu og þremur til þrjátíu langreyðum hafi verið bjargað.
Í tilkynningunni er því haldið fram að fjórar hinna veiddu langreyða í ár hafi verið kálffullar. Gagnrýnt hefur verið, meðal annars af Hvalavinum, að stjórnvöld skrái ekki og birti opinberlega upplýsingar um slíkt.