Foreldrar eiga það til að vera feimnir við að setja börnunum sínum mörk og telja jafnvel að barnið sitt verði útundan ef það leyfi því ekki að vera á samfélagsmiðlum. Þetta kom fram í máli Sigurðar Sigurðssonar, framkvæmdastjóra Heimilis og skóla, í Bítinu á Bylgjunni í morgun þar sem nýtt frumvarp Ingu Sæland um samfélagsmiðlabann ungmenn var til umræðu.
„Samt eru sjö ára börn að fara inn á samfélagsmiðla með hjálp foreldra“