Umhverfis- og orkustofnun hefur veitt Samherja bráðabirgðaheimild til reksturs fiskþurrkunar á Laugum í Reykjadal. Heimildin gildir þar til nýtt starfsleyfi hefur verið gefið út, en úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi starfsleyfið úr gildi í síðasta mánuði.
Í tilkynningu frá Samherja segir að úrskurður úrskurðanefndar umhverfis- og auðlindamála hafi byggt á því að við útgáfu starfsleyfisins hafi heilbrigðisnefndin ekki byggt á fullnægjandi gögnum við mat á ástandi vatnshlota í nágrenni starfseminnar.
„ Úrskurðurinn beindist ekki að vanköntum á starfseminni enda hafði öllum skilyrðum útgefins starfsleyfis verið fullnægt,“ segir í tilkynningu Samherja.
Þar segir að fyrirtækið hafi sótt um nýtt starfsleyfi og bráðabirgðaheimild frá Umhverfis- orkustofnun.
Fiskþurrkun Samherja á Laugum komst í fréttir í vikunni vegna tengsla fyrirtækis sveitarstjórans í Þingeyjarsveit við fiskþurrkunina. Fiskþurrkun Samherja á Laugum hefur verið umdeild vegna umhverfisáhrifa.
Íbúi óskaði eftir upplýsingum um möguleg hagsmunatengsl sveitarstjórans, Katrínar Sigurjónsdóttur, og þá kom í ljós að fyrirtæki í hennar eigu selur Samherja skreiðarpoka og þurrkgrindur fyrir fiskþurrkunina. Katrín var áður sveitarstjóri á Dalvík þar sem Samherji rekur aðra fiskþurrkun.