Greint var frá því í síðustu viku að Jóhanna Guðrún Jónsdóttir myndi ekki vera áfram í sýningu Skoppu og Skrítlu sökum þess að hún á von á sínu fjórða barni. Nú er ljóst hvaða söngdíva tekur við hlutverkinu.
„Það var yndislegt að fá að taka þátt í sýningunni síðastliðin jól en núna er fókusinn á að undirbúa komu litla jólabarnsins míns. Ég vona innilega að ég fái aftur tækifæri til að deila sviðinu með vinkonum mínum Skoppu og Skrítlu,“ segir Jóhanna Guðrún.
Salka er Skoppu og Skrítlu ekki ókunn því hún er ágætis vinkona þeirra, prjónaði á þær lopapeysur fyrir Þjóðhátíð í fyrrasumar og söng með þeim lagið „HæHó!“ ásamt dóttur sinni, Unu Lóu.
„Á sama tíma og það er erfitt að kveðja elsku Jóhönnu Guðrúnu að þá ríkir líka mikill spenningur í leikhópnum að fá inn nýja söngdívu. Við hlökkum ótrúlega mikið til að bjóða Sölku Sól velkomna á sviðið og eigum von á sannkölluðum töfrum í jólapartýinu í ár!“ sagði í tilkynningu frá Skoppu og Skrítlu.
Ánægð að sameina vinnu og samveru með dótturinni
„Í dag getur barnaefni verið mjög hratt og áreitið mikið fyrir unga huga, og foreldrar eru sífellt meðvitaðri um hvaða efni þau velja fyrir börnin sín. Skoppa og Skrítla hafa alltaf lagt mikinn metnað í vandað, hlýlegt og skemmtilegt efni fyrir yngstu áhorfendurna, og mér finnst mjög gaman að fá að vera hluti af því,“ segir Salka Sól.
Hin ellefu ára Margrét Lilja, dóttir Jóhönnu Guðrúnar, hefur leikið í sýningunni og mun gera það áfram þó móðirin hverfi á braut. Sömuleiðis mun hin sjö ára Una Lóa, dóttir Sölku Sólar, leika í sýningunni.
„Ég er ótrúlega spennt að fá að stökkva inn í ævintýraheim Skoppu og Skrítlu um jólin. Jólin hafa alltaf verið annasamur tími hjá mér og því finnst mér sérstaklega dýrmætt að geta í þetta sinn sameinað vinnuna og samveruna með barninu mínu,“ segir Salka.
Þó Salka komi inn í stað Jóhönnu þá verða engar stórvægilegar breytingar á sýningunni, Páll Óskar verður til að mynda á sínum stað sem syngjandi og dansandi jólatré.
Miðasala á Jólapartý Skoppu og Skrítlu er þegar hafin inni á tix.is