Sakfelldur fyrir hatursorðræðu eftir kæru frá Solaris - „Þarf að fara endurvekja þýsku sturturnar aftur á þetta helvítis pakk“ - DV
⚠️ Eldri en 6 mánuðir

Héraðsdómur Reykjaness hefur sakfellt mann fyrir hatursáróður vegna ummæla sem hann lét falla í athugasemd á Facebook-síðu Vísis. Var maðurinn ákærður af embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum í kjölfar kæru sem lögð var fram af samtökunum Solaris, sem hafa þann yfirlýsta tilgang að veita flóttamönnum og hælisleitendum aðstoð. Formaður og stofnandi samtakanna er Sema Erla Serdaroglu, aðjúnkt við Háskóla Íslands.

Maðurinn var ákærður, fyrir hatursorðræðu með því að hafa, þann 17. júní 2023, skrifað og birt eftirfarandi ummæli á Facebook-síðu Vísis í athugasemdum við frétt undir yfirskriftinni „Við bara getum ekki tekið við fleirum“:

„Það þarf að fara endurvekja þýsku sturturnar aftur á þetta helvítis pakk. Grikkirnir kunna að fara með þessar rottur og berja þær til hlýðni svo þær hugsa ekki einu sinni um að reyna að komast yfir landamærin þar. Þeir voru aldrei spurðir hvort þeir vildu taka á móti mússunum og skilja að rett eins og þú býður ekki rottum að sofa inná gafli hjá þér þá viltu ekki heldur fá þessi mannlegu meindýr inna á golf til þín sem eru ekki að flýja neitt nema letina í sér og slæmt efnahagskerfi & hugsa bara um að leggjast á kerfið og láta sig svo hverfa þegar kistan er tóm hvort sem það er mússarnir eða pakkið frá Venesúela.“

Smánun

Samkvæmt ákærunni fólu ummælin í sér ógnun, smánun, háð og rógburð á opinberum vettvangi í garð ótiltekins hóps manna vegna þjóðernisuppruna, kynþáttar og trúarbragða og að háttsemi mannsins teldisst varða við 233. gr. a. almennra hegningarlaga.

Í því ákvæði laganna segir:

„Hver sem opinberlega hæðist að, rógber, smánar eða ógnar manni eða hópi manna með ummælum eða annars konar tjáningu, svo sem með myndum eða táknum, vegna þjóðernisuppruna eða þjóðlegs uppruna, litarháttar, kynþáttar, trúarbragða, fötlunar, kyneinkenna, kynhneigðar eða kynvitundar, eða breiðir slíkt út, skal sæta sektum eða fangelsi allt að 2 árum.“

Kæra vegna ummælanna var lögð fram fyrir hönd Solaris en í kærunni kom meðal annars fram að orðræðan sem birtist í ummælunum væri sett fram í þeim tilgangi að niðurlægja, smána, hæðast að og afmennska, fólk á flótta ,og þá sérstaklega flóttafólk af múslimskum uppruna og frá Venesúela. Ummælin vísuðu til þjóðernisuppruna, trúarbragða, menningar og stöðu fólks á flótta og fælu í sér hættulega orðræðu auk þess sem í þeim væri að finna hvatningu til ofbeldis í garð fólks á flótta.

Skoðun

Í skýrslutöku hjá lögreglu gekkst maðurinn við ummælunum en sagðist ekki hafa beint þeim að neinum heldur aðeins verið að lýsa skoðun sinni og því sem hann hefði lesið.

Aðspurður um hvað hann hafi átt við með því að endurvekja þyrfti „þýsku sturturnar aftur á þetta helvítis pakk“ sagðist maðurinn hafa verið að vísa til þess að Þjóðverjar  framleiði gæðasturtur. Það þyrfti að setja hælisleitendur sem hingað komi í sturtu enda væru þeir líklegast með flær og annað á sér eftir langan flótta. Sagðist maðurinn ekkert hafa á móti flóttafólki sem væri virkilega að flýja raunverulega ógn, en hælisleitendur hins vegar væru flakkandi á milli landa án ástæðu þar til þeir kæmust inn á „socialinn“ og tæmdu hann. Þvertók maðurinn fyrir að hafa hótað eða ógnað fólki með ummælum sínum og að um hatursorðræðu væri að ræða.

Maðurinn endurtók þessar skýringar efnislega fyrir dómi en sagði þar einnig að ef hjóli væri stolið í heimabæ hans væru yfirgnæfandi líkur á því að það fyndist í fjölbýlishúsi þar sem flestir hælisleitendur, í bænum, byggju. Orðið „mússar“ væri stytting á orðinu múslimar en í því fælist ekkert hatur. Með orðalaginu „pakkið frá Venesúela“ væri átt við fólk sem fremdi glæpi.

Bætti hann því einnig við að hann vissi að í húsnæði Útlendingastofnunar fyrir hælisleitendur hafi þurft að senda þá í sturtu til að þvo af þeim flær en þær sturtur hafi verið frá Grohe. Með orðunum „pakki“ og „mannlegum meindýrum“ hafi hann verið vísa til þjófa, ræningja og kynferðisbrotamanna. Með ummælunum „Grikkirnir kunna að fara með þessar rottur og berja þær til hlýðni“ hafi hann eingöngu verið að lýsa fréttum sem hann hafi lesið á netinu en ekki verið að hvetja til ofbeldis.

Hatur

Í niðurstöðu Héraðsdóms Reykjaness eru skýringar mannsins hins vegar ekki teknar gildar. Ummæli hans hafi verið niðrandi, fordómafull og meiðandi í garð fólks á grundvelli uppruna og trúarskoðana og lýst fyrirlitningu í garð flóttafólks frá Miðausturlöndum og Venesúela. Hafið sé yfir allan vafa að ummælin hafi falið í sér háð, smánun og ógnun og náð slíku alvarleikastigi að flokka verði undir óbeit, fyrirlitningu eða hatur í skilningi 233. gr. a. almennra hegningarlaga.

Þá hafi falist í ummælunum „Það þarf að fara að endurvekja þýsku sturturnar aftur á þetta helvítis pakk. Grikkirnir kunna að fara með þessar rottur og berja þær til hlýðni svo þær hugsa ekki einu sinni um að reyna að komast yfir landamærin þar“ hatursfull ógnun og hvatning til ofbeldis sem falli undir verknaðarlýsingu fyrrgreinds ákvæðis eins og það hafi verið skýrt og túlkað til samræmis við alþjóðaskuldbindingar Íslands.

Maðurinn hafi engar skýringar getað gefið á ummælunum fyrir dómi aðrar en þær að hann hefði verið að lýsa staðreyndum, vandamálum vegna komu hælisleitenda hingað til lands og meintu ofbeldi sem hann teldi þá ábyrga fyrir hér á landi. Umræddar skýringar mannsins geti ekki hróflað því mati  dómsins að með ummælum sínum eins og þau hafi verið fram sett undir umfjöllun um meint vandamál tengd komu flóttafólks og hælisleitenda hingað til lands hafi maðurinn gengið lengra en honum hafi verið heimilt samkvæmt tjáningarfrelsisákvæðum stjórnarskrárinnar og mannréttindasáttmála Evrópu.

Sagði dómurinn skýringar mannsins á ummælum hans um þýskar sturtur með miklum ólíkindablæ.

Ummæli mannsins hafi verið gróflega móðgandi og alvarleg og til þess fallin að hafa skaðleg áhrif á þá hópa sem fyrir urðu. Verði á engan hátt séð að þau teldust réttlætanleg sem innlegg í opna  þjóðfélagsumræðu. Sé samkvæmt þessu engum vafa undirorpið að takmörkun tjáningarfrelsis mannsins samrýmist stjórnarskránni.

Í ljósi málsvatvika þótti við hæfi að dæma manninn til að greiða 100.000 krónur í sekt en hann hefur fjórar vikur frá dómsuppkvaðningu til að greiða hana annars tekur við 8 daga fangelsisvist.

#endurvekja #hatursorðræðu #helvítis #sakfelldur #sturturnar

Upprunaleg slóð:
https://www.dv.is/frettir/2026/4/19/sakfelldur-fyrir-hatursordraedu-eftir-kaeru-fra-solaris-tharf-ad-fara-endurvekja-thysku-sturturnar-aftur-thetta-helvitis-pakk/

📰 Aðrar fréttir

Sharp rise in sales of essential goods after government says to stock up
📅 27.10.2026 👁️ 2
Sharp rise in sales of essential goods after government says to stock up
Figures obtained by BBC Newsnight show large spikes in sales of torches, radios and power banks.
Vopnahlé í Oleshky tók gildi í nótt
📅 27.10.2026 👁️ 2
Vopnahlé í Oleshky tók gildi í nótt
Vopnahlé milli Rússa og Úkraínumanna í Oleshky tók gildi klukkan eitt í nótt að íslenskum tíma. Al Jazeera hefur þessar upplýsingar eftir rússneska va...
Truce begins in Ukrainian city of Oleshky after it was announced by Melania Trump
📅 27.10.2026 👁️ 2
Truce begins in Ukrainian city of Oleshky after it was announced by Melania Trump
The ceasefire is meant to allow aid deliveries and the evacuation of civilians.
Jay-Z to perform at Super Bowl half-time show
📅 27.10.2026 👁️ 4
Jay-Z to perform at Super Bowl half-time show
Jay-Z has been involved with the show for years but has never before performed at the NFL championship game.
Jordan says 'terrorists' killed in Syria in retaliatory strike over church attack
📅 27.10.2026 👁️ 4
Jordan says 'terrorists' killed in Syria in retaliatory strike over church attack
The attack on a village in Syria killed five people, including women and children, Syrian health officials said.
Bandarískur sjóliði ákærður fyrir morð á japanskri konu
📅 27.10.2026 👁️ 4
Bandarískur sjóliði ákærður fyrir morð á japanskri konu
Japanskir saksóknarar hafa ákært bandarískan sjóliða sem er grunaður um að hafa myrt japanska konu á Okinawa-eyju í Japan.Sjóliðinn Devin Jacob Ballar...
iPhone Duo: Apple says it will replace handsets with screen problems
📅 27.10.2026 👁️ 4
iPhone Duo: Apple says it will replace handsets with screen problems
Photos shared online showed faults appearing on the screens of Apple's first foldable device.
Flokkur Bolsonaro viðurkennir kosningaúrslitin
📅 27.10.2026 👁️ 5
Flokkur Bolsonaro viðurkennir kosningaúrslitin
Flokkur Flavio Bolsonaro forsetaframbjóðanda í Brasilíu, Frjálslyndi flokkurinn, viðurkennir úrslit kosninganna sem fram fóru þar á sunnudaginn. Þetta...
Vill að ríkið semji um fast verð á innanlandsflugmiðum
📅 26.10.2026 👁️ 5
Vill að ríkið semji um fast verð á innanlandsflugmiðum
Þóroddur Bjarnason, prófessor í félagsfræði og sérfræðingur í byggðaþróun, segir aðalvandamálið við Loftbrúna ekki hvort ríkið niðurgreiði flugmiða um...
Chris Mason: The Budget is imminent as tricky things pile up for Burnham
📅 26.10.2026 👁️ 5
Chris Mason: The Budget is imminent as tricky things pile up for Burnham
From Brexit debates to North Sea oil, there is plenty getting the cabinet, the Labour Party and the country talking.
Lét lítinn pug hund dangla af svölunum á fimmtu hæð - „Við munum ekki láta svona hegðun líðast“
📅 26.10.2026 👁️ 6
Lét lítinn pug hund dangla af svölunum á fimmtu hæð - „Við munum ekki láta svona hegðun líðast“
Lögreglan í El Salvador hefur handtekið fyrrverandi knattspyrnumann fyrir gróft dýraníð. Maðurinn lét lítinn hund dangla fram af svölum og tók það upp...
Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 6
Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum - Vísir
Luiz Inácio Lula da Silva Brasilíuforseti tryggði sér fjórða kjörtímabilið í seinni umferð kosninganna í gær. Hann hlaut 51,79 prósent gildra atkvæða ...
Harry Kane: Bayern Munich and England striker wins Ballon d'Or after record season
📅 26.10.2026 👁️ 5
Harry Kane: Bayern Munich and England striker wins Ballon d'Or after record season
Harry Kane becomes the first English player to win the Ballon d'Or since Michael Owen in 2001 after being crowned the world's best player at a ceremon...
Healey vows cheaper marmalade and gherkins in pre-Budget package
📅 26.10.2026 👁️ 5
Healey vows cheaper marmalade and gherkins in pre-Budget package
The chancellor will axe tariffs on some staples as part of plans to give households "breathing space".
Healey pledges cheaper marmalade and gherkins in pre-Budget package
📅 26.10.2026 👁️ 4
Healey pledges cheaper marmalade and gherkins in pre-Budget package
The chancellor will axe tariffs on some staples as part of plans to give households "breathing space".
Busted's James Bourne says 'hero' brother saved his life with kidney donation
📅 26.10.2026 👁️ 4
Busted's James Bourne says 'hero' brother saved his life with kidney donation
The guitarist says doctors had given him "a few years left to live", but is now recovering well.
„Kannski hefur Evrópa einfaldlega verið að tala vitlaust tungumál við Trump“
📅 26.10.2026 👁️ 4
„Kannski hefur Evrópa einfaldlega verið að tala vitlaust tungumál við Trump“
Sigvaldi Einarsson, frumkvöðull og áhugamaður um alþjóðamál, veltir því fyrir sér í pólitískri ádeilu hvort staðan í heiminum væri öðruvísi hefði Evró...
Ex-FBI chief James Comey faces federal charges for third time
📅 26.10.2026 👁️ 3
Ex-FBI chief James Comey faces federal charges for third time
Comey's lawyers say the case stems from alleged disclosure of classified information to the New York Times in 2016.
Kominn yfir fertugt? Þetta eru 10 mikilvægustu æfingarnar fyrir restina af lífi þínu
📅 26.10.2026 👁️ 4
Kominn yfir fertugt? Þetta eru 10 mikilvægustu æfingarnar fyrir restina af lífi þínu
Hvaða æfingar myndirðu velja ef þú mættir aðeins gera tíu það sem eftir væri ævinnar? Jeff Cavaliere, maðurinn á bak við ATHLEAN-X, hefur tekið saman ...
40 ár frá vígslu Hallgrímskirkju
📅 26.10.2026 👁️ 4
40 ár frá vígslu Hallgrímskirkju
Hallgrímskirkja er eitt þekktasta kennileiti borgarinnar og var formlega vígð þann 26. október 1986. Hátíðardagskrá hefur farið fram undanfarna viku í...
Óráðlegt að hætta við nýtt einkunnakerfi þrátt fyrir óvissu
📅 26.10.2026 👁️ 4
Óráðlegt að hætta við nýtt einkunnakerfi þrátt fyrir óvissu
„Ég held að það væri óráð að reyna að hætta við,“ sagði Jón Páll Haraldsson, skólastjóri Laugalækjarskóla og varaformaður Skólastjórafélags Íslands, u...
Hrósar venjulega ekki stjórnmálamönnum en gerir undantekningu með Lula
📅 26.10.2026 👁️ 4
Hrósar venjulega ekki stjórnmálamönnum en gerir undantekningu með Lula
Kristinn Hrafnsson fjölmiðlamaður og upplýsingafulltrúi Wikileaks segist venjulega fara varlega í að hrósa stjórnmálamönnum en í ljósi góðrar reynslu ...
Beijing til Keflavíkur í einni ferð í fyrsta sinn
📅 26.10.2026 👁️ 4
Beijing til Keflavíkur í einni ferð í fyrsta sinn
Fyrsta beina flugið á milli Kína og Keflavíkur, með viðkomu í Kaupmannahöfn, var í dag. Sendiherra Kína segir þetta mikla breytingu í samskiptum ríkja...
Kosningar í Ísrael: Þjóð á kross­götum - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Kosningar í Ísrael: Þjóð á kross­götum - Vísir
Kosningarnar snúast að verulegu leyti um Benjamín Netanjahú forsætisráðherra sjálfan. Fréttaskýrendur í Ísrael og annars staðar líta margir svo á að á...
Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úr­slitum - Vísir

Blendnar tilfinningar fyrir leitina að Lúðvík
📅 26.10.2026 👁️ 4
Blendnar tilfinningar fyrir leitina að Lúðvík
Bróðir manns sem féll niður í sprungu sem myndaðist í Grindavík segist þakklátur fyrir að ákveðið hafi verið að ráðast í leit að líki bróður hans. Lei...
Sama jarmið í sauð­fé og ferða­mönnum - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Sama jarmið í sauð­fé og ferða­mönnum - Vísir
Þetta heyrðum við á bænum Gerði þegar við ræddum við þau Björn Borgþór Þorbergsson og Þóreyju Bjarnadóttur fyrir þáttinn Um land allt. Þau eru í hópi ...
Minni byggðalög líði fyrir aukna miðstýringu lögreglu
📅 26.10.2026 👁️ 4
Minni byggðalög líði fyrir aukna miðstýringu lögreglu
Áform dómsmálaráðherra um að sameina lögregluembætti í þrjú mæta harðri mótstöðu á landsbyggðinni. Dómsmálaráðherra segir lítil embætti ekki ná utan u...
Oscar-winning producer says BBC gave her £400,000 payout after she raised antisemitism concerns
📅 26.10.2026 👁️ 4
Oscar-winning producer says BBC gave her £400,000 payout after she raised antisemitism concerns
The BBC says it did not uphold any of the allegations of antisemitism but accepted there were "shortcomings" in how it treated Lucie Kon.
Á ég að segja syni mínum hræðilegan sannleikann um ömmuna sem hann elskaði?
📅 26.10.2026 👁️ 4
Á ég að segja syni mínum hræðilegan sannleikann um ömmuna sem hann elskaði?
Á að segja sannleikann um erfiða fortíð eða á að hlífa tilfinningum ástvina? Það er hægt að lifa eftir mottóinu um sannleikurinn sé sagna bestur en vi...
Hvað veistu um… pitsur? - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Hvað veistu um… pitsur? - Vísir
Pitsur hafa fyrir löngu fest sig í sessi sem einn vinsælasti skyndibiti heims og njóta mikilla vinsælda á Íslandi, hvort sem hún er borðuð á veitingas...
Ó­metan­legt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Ó­metan­legt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum - Vísir
Brynjar Steinn er fæddur árið 1999 og öðlaðist mikla frægð á samfélagsmiðlinum Snapchat á sínum tíma, þar sem notandanafnið hans var einmitt Binni Gle...
Biskupar sjá eftir bæna­stund með Trump - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Biskupar sjá eftir bæna­stund með Trump - Vísir
Aðstoðarkona Donalds Trump Bandaríkjaforseta og ráðgjafi hans í samskiptum birtu myndband af tólf biskupum í bænastund með forsetanum er þeir sóttu ha...
Meirihluti kjósenda valdi „Serbíu frekar en mafíu“
📅 26.10.2026 👁️ 4
Meirihluti kjósenda valdi „Serbíu frekar en mafíu“
Kjósendur völdu á milli Serbíu eða mafíu í þingkosningum sem fóru fram í landinu í gær, að sögn kjósanda frá Íslandi. Stúdentahreyfing vann stórsigur ...
Líkamshlutar manns fundust í Rínarfljóti
📅 26.10.2026 👁️ 4
Líkamshlutar manns fundust í Rínarfljóti
Þrír menn fundu poka sem innihéldu fótlegg af manni þegar þeir gengu meðfram árbakka Rínarfljóts í Stein, skammt frá Basel í Sviss, í gær.Lögreglan í ...
Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum
📅 26.10.2026 👁️ 4
Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum
Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum Þóroddur Bjarna­son félags­fræði­pró­fessor segir útgjöld Loft­brú­ar­innar aldrei hafa farið yfir...
Trump administration illegally fired James Comey's daughter, judge rules
📅 26.10.2026 👁️ 4
Trump administration illegally fired James Comey's daughter, judge rules
Maurene Comey believes she was let go from her job as a federal prosecutor because her father is the former FBI director.
Slá skjaldborg um sveitarstjórann eftir spurningar um meint vanhæfi vegna tengsla við Samherja
📅 26.10.2026 👁️ 4
Slá skjaldborg um sveitarstjórann eftir spurningar um meint vanhæfi vegna tengsla við Samherja
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar sammæltist um það á fundi sínum á fimmtudag að lýsa yfir fullu trausti til Katrínar Sigurjónsdóttur sveitarstjóra í kjö...
Biskupar biðjast afsökunar á fundinum með Trump – „Ég finn til mikillar sorgar“
📅 26.10.2026 👁️ 4
Biskupar biðjast afsökunar á fundinum með Trump – „Ég finn til mikillar sorgar“
Tveir kaþólskir biskupar hafa beðist afsökunar á fundi sínum með Donald Trump Bandaríkjaforseta. Birt var ljósmynd af þeim að biðja með honum.Breska b...
Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn - Vísir
Koenig lést á heimili sínu í Hollywood í gær, segir í umfjöllun Variety.  „Í dag syrgjum við Walter Koenig. Hæfileikar hans, hlýja og ógleymanlegur fl...
Bilaður bíll í Hvalfjarðargöngum
📅 26.10.2026 👁️ 4
Bilaður bíll í Hvalfjarðargöngum
Hvalfjarðargöng voru lokuð vegna bilaðs bíls í skamma stund á sjöunda tímanum samkvæmt vef Vegagerðarinnar. Þau hafa verið opnuð á ný.
Eftirspurn eftir meiri raforku aðallega frá gagnaverum
📅 26.10.2026 👁️ 4
Eftirspurn eftir meiri raforku aðallega frá gagnaverum
Heimili á Íslandi nota um 5% af allri raforku sem hér er framleidd og stóriðjan tæplega 80%. Samkvæmt nýrri greiningu Samtaka iðnaðarins nota gagnaver...
Yfir milljón laxar drápust í sjókvíum í september
📅 26.10.2026 👁️ 4
Yfir milljón laxar drápust í sjókvíum í september
Yfir milljón laxar drápust í sjókvíum á Íslandi í september. Deildarstjóri segir mikinn meirihluta hafa drepist á Reyðarfirði, vegna marglytta sem her...
„Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
„Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ - Vísir
Breytingar á svokallaðri Loftbrú, um niðurgreiðslu flugfargjalda fyrir íbúa á landsbyggðinni, eiga að taka gildi 1. janúar. Ingibjörg segir Loftbrúna ...
Áform ríkisstjórnarinnar lenda verst á þeim sem eiga að njóta ávinningsins
📅 26.10.2026 👁️ 5
Áform ríkisstjórnarinnar lenda verst á þeim sem eiga að njóta ávinningsins
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hyggst stytta hámarkstíma nýrra verðtryggðra húsnæðislána í 25 ár úr 40. Því er ætlað að tryggja að höfuðstóll hækki e...
Vilja að tekið sé meira tillit til hávaða frá Keflavíkurflugvelli
📅 26.10.2026 👁️ 4
Vilja að tekið sé meira tillit til hávaða frá Keflavíkurflugvelli
Minnihluti skipulagsráðs Reykjanesbæjar fer fram á að í nýju aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar verði tekið mið af hljóðvist og samfélagslegum áhrif f...
Lög­regla kölluð til vegna drengjana í Goða­fossi - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 5
Lög­regla kölluð til vegna drengjana í Goða­fossi - Vísir
Greint var frá því í gær að myndband af tveimur bandarískum strákum stökkva ofan í Skjálfandafljót af kletti við Goðafoss hefði verið birt á samfélags...
Lög­regla kölluð til vegna drengjanna í Goða­fossi - Vísir

Jón Gnarr segir Viðreisn í krísu – útilokar ekki að hætta stuðningi við ríkisstjórnina
📅 26.10.2026 👁️ 5
Jón Gnarr segir Viðreisn í krísu – útilokar ekki að hætta stuðningi við ríkisstjórnina
Jón Gnarr þingmaður segir Viðreisn glíma við uppsafnaðan samskiptavanda, skipulagsleysi og pólitískar deilur. Hann hyggst áfram styðja ríkisstjórnina ...
Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 5
Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána - Vísir
Maðurinn hefur verið ákærður fyrir gróft brot á vopnalögum auk vörslu fíkniefna og sprengifimra og eldfimra hluta. Málið verður tekið fyrir í Kalmar n...