María Magnúsdóttir fékk þær erfiðu fréttir þann 18. mars síðastliðinn að hún væri með bráðahvítblæði. Hún hóf strax meðferð hér heima sem hefur verið bæði löng og krefjandi. María dvaldi í um átta vikur á spítala og hefur barist af ótrúlegum styrk.Þann 4. ágúst heldur hún til Lundar í Svíþjóð ásamt æskuvinkonu sinni, Jóu, þar sem hún mun undirbúa beinmergskipti. Meðferðin hefst 8. ágúst, á afmælisdegi Maríu, og gert er ráð fyrir að hún þurfi að dvelja þar í að minnsta kosti þrjá mánuði.
Safnað fyrir Maríu sem glímir við krabbamein í annað sinn - Missti dóttur sína úr krabbameini í janúar - „Erfitt að ímynda sér þær raunir sem hún hefur þurft að takast á við“