Sætaraðir í hundruðum Boeing 737 MAX-flugvéla voru settar rangt upp og gera þarf lagfæringar á mistökunum. Bandaríska flugmálastofnunin, FAA, greindi frá þessu í gær.
Sætaraðir voru ekki festar með réttum hætti við gólf farþegarýma og sætin gætu því losnað við mikið álag, svo sem í ókyrrð eða við neyðarlendingar.
Ef það gerist gætu farþegar eða áhafnir slasast. Þá gætu laus sæti einnig tafið við neyðarrýmingar.
Þetta á við um 453 þotur af þessari gerð sem skráðar eru í Bandaríkjunum, samkvæmt nýjum tillögum að lofthæfifyrirmælum frá FAA. Stofnunin hefur einungis lögsögu yfir bandarískum flugfélögum en yfirvöld í öðrum löndum fylgja jafnan fordæmi FAA ef við á, að því er segir í frétt Reuters.
FAA tilgreindi ekki sérstaklega hvenær flugfélög þyrftu að vera búin að ljúka lagfæringunum.
Boeing gaf út tilmæli til flugrekenda í desember vegna gallans.