Valgarður Guðjónsson tónlistarmaður greinir frá andláti Sæma Rokk í færslu á samfélagsmiðlum. Þar segir hann Sæma hafa kvatt í gærmorgun, hann hafi verið einstakur einstaklingur sem átti engan sinn líka.
„Jákvæður og alltaf tilbúinn að sjá það jákvæða í fólki og sem lögreglumaður, alltaf fyrsta hugsun að leysa öll vandamál án átaka. Mætti til vinnu klukkutíma fyrr til að passa upp á börn á leiðinni í skóla. Og í lögregluskólanum var lengi nefnt að í erfiðum aðstæðum væri gott að hugsa „hvað myndi Sæmi gera,“ skrifar Valgarður.
„En hann var svo miklu meira en það.. það geislaði af honum vinátta og hlýhugur - hvort sem hann var að hitta Bobby Fischer eða Muhammad Ali eða mig fjórtán ára. Hann fór aldrei í manngreinarálit, öllum var sýnd virðing og hlýhugur.“
Sæmi Rokk fæddist 31. júlí árið 1936 en hann hefur áður sagt frá því hvernig nafnið byrjaði að festast þegar hann var á tvítugsaldri og keppti í dansi af miklum móð. Eins og áður segir starfaði Sæmi sem lögreglumaður um árabil og einnig sem byggingarmeistari, en Sæmi kom að byggingu hundruð húsa á höfuðborgarsvæðinu. Sæmi brá einnig á leik í Stuðmannamyndinni Með allt á hreinu í hlutverki Óliver Tvist sem sagðist tvista til þess að gleyma.
Árið 1972 var Sæmi lífvörður skákmeistarans Bobby Fischer í heimsmeistaraeinvíginu í skák gegn Boris Spassky. Með þeim tókst mikil vinátta sem varði um árabil og það var fyrir tilstilli Sæmundar að farið var í að fá skákmeistarann lausan úr fangelsi í Japan árið 2005 þegar Fischer var veitt landvistarleyfi hér á landi. Fór Sæmi utan til Danmerkur til móts við Fischer þegar hann flutti til landsins.
Sæmi hét áður Sæmundur Pálsson en fékk árið 2014 nafn sitt Sæmi viðurkennt í þjóðskrá. Fjórum árum síðar fékk hann allt nafnið Sæmi Rokk Pálsson viðurkennt og ræddi fréttastofa við hann í tilefni þess á sínum tíma og sagði hann að hvert sem hann hefði komið hefði hann aldrei verið kallaður annað en Sæmi Rokk. Eiginkona Sæma hét Ásgerður Ásgeirsdóttir en hún lést árið 2022. Saman áttu þau fjögur börn og fjölmörg börn og barnabörn.