Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.
Einstaklingurinn sem féll í ána um sjöleytið í gærkvöldi. Lögregla, sjúkralið, björgunarsveitir og þyrla Landhelgisgæslu Íslands brugðust við með hæsta forgagni.
Viðkomandi fannst neðar í ánni eftir stutta leit og var bjargað á land og í framhaldi fluttur til aðhlynningar á Neyðarmóttöku Landspítala háskólasjúkrahús í Reykjavík með þyrlu gæslunnar.
Tildrög þess að viðkomandi hafnaði í ánni eru til rannsóknar hjá rannsóknardeild lögreglu á Suðurlandi.
Fréttin hefur verið uppfærð.