Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins - Vísir

Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins - Vísir

Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins - Vísir

Viðræður milli ríkjanna strönduðu fyrir síðustu helgi og ætla Bandaríkjamenn því að beita Kanada umfangsmiklum tollum. Ráðamenn í Kanada lýstu því yfir í gær að þeir myndu svara með eigin tollum, sem taka eiga gildi í næsta mánuði.

Þessir tollar verða á rúmlega sjö hundrað vörur frá Bandaríkjunum og stendur einnig til að styðja við þá geira sem viðskiptastríðið mun koma niður á.

Sjá einnig: Kanada svarar tollum Bandaríkjastjórnar

Í samtali við AP fréttaveituna segja nokkrir sérfræðingar í samskiptum Bandaríkjanna og Kanada að þeir búist við því að samkomulag muni nást. Samningaviðræður ríkjanna séu iðulega erfiðar og tilfinningaþrungnar.

Þeir segja þetta ekki í fyrsta sinn sem sambærilegar deilur eiga sér stað.

„Við höfum gengið í gegnum þetta með Kanada áður,“ sagði einn. Hann benti á að hefndartollar Kanada taki ekki gildi fyrr en áttunda september, sem gefi nægan tíma til frekari viðræðna.

„Ég hef engar áhyggjur.“

Þrátt fyrir það er hægt að færa rök fyrir því að eðli deilnanna í þetta skiptið sé frábrugðið fyrri viðskiptadeilum Bandaríkjanna og Kanada.

Fyrir það fyrsta virðast Kanadamenn komnir með nóg af Donald Trump, sem hefur ítrekað talað með niðrandi hætti um Kanada og sagt að landið eigi að verða 51. ríki Bandaríkjanna. Hann hefur ítrekað hótað þvingunum og efnahagsaðgerðum til að þvinga Kanadamenn inn í Bandaríkin og ítrekað beitt landið tollum.

Sjá einnig: Vill refsa Kanada svo lesið verði um það í sögubókum

Þá snerust kröfur Bandaríkjamanna ekki eingöngu um milliríkjaviðskipti heldur segja Kanadamenn að Trump-liðar hafi reynt að takmarka fullveldi Kanada í viðræðunum.

Vilja þrýsta sérstaklega á Repúblikana

Ef allt fer á versta veg, samningar ganga ekki eftir og viðskiptastríð skellur á að fullu milli ríkjanna, þá mun framhaldið snúast um hve mikill skaðinn verður beggja vegna landamæranna og hverjir hafa burði til að halda lengur út.

Bandaríkjamenn telja að þeir muni hafa betur vegna stæðar hagkerfis þeirra og vegna þess hve stór hluti útflutnings Kanada fer til Bandaríkjanna. Kanadamenn virðast ætla að leggja mikla áherslu á að nota þingkosningarnar í haust til að þrýsta á Bandaríkjamenn.

Hefndartollar Kanada virðast nokkuð markvissir og er útlit fyrir að þeim sé ætlað að hita sérstaklega undir þingmönnum Repúblikanaflokksins, sem er það sama og Kanadamenn gerðu í deilum ríkjanna í fyrra.

Þingkosningar verða haldnar í Bandaríkjunum í nóvember og leggja Repúblikanar mikið kapp á að halda yfirráðum á báðum deildum þingsins. Ef marka má kannanir eru ágætis líkur á því að Demókratar nái meirihluta í fulltrúadeildinni og telja þeir sig einnig eiga séns í öldungadeildina.

Blaðamenn Wall Street Journal leituðu álits nokkurra sérfræðinga sem sögðu að tollarnir myndu hafa mest áhrif í ríkjum þar sem kjósendur hafa þótt líklegri til að kjósa Repúblikana og í ríkjum þar sem útlit er fyrir að baráttan verði hörð í nóvember.

Sérfræðingarnir vísa sérstaklega til tolla á humar og fiskmeti frá Bandaríkjunum. Þeir tollar virðast beinast sérstaklega gegn Maine en þar eru sérstaklega mikilvægar kosningar í nóvember, sem gætu ráðið úrslitum um stjórn öldungadeildarinnar.

Svipaða sögu er að segja af tollum á mjólkurvörur.

„Ríkin sem reiða sig hvað mest á útflutning til Kanada eru norðanverðu ríkin, Maine, Michigan, Minnesota, Wisconsin og New Hampshire,“ sagði Ed Gresser, fyrrverandi samningamaður fyrir Bandaríkin sem starfar nú hjá bandarískri hugveitu.

Hann sagði Kanadamenn vilja „sýna Repúblikanaflokknum“ að tollum og efnahagsaðgerðum fylgi ákveðinn kostnaður.

Tollar Kanada munu einnig hafa áhrif á bændur í Wisconsin, New England og öðrum ríkjum, auk þess sem þeir munu koma mikið niður á framleiðendum mótorhjóla, landbúnaðartækja og heimilistækja í norðanverðum Bandaríkjunum.

Birtu „staðreyndir“ um Kanada

Hvíta húsið birti í gær, þriðjudag, yfirlýsingu þar sem því var meðal annars haldið fram að Kanada hefði arðrænt Bandaríkin í marga áratugi. Það kæmust Kanadamenn ekki lengur upp með.

Í yfirlýsingunni segir að Kanada sé eina ríki heimsins, að Kína undanskildu, sem hafi ákveðið að beita hefndartollum í stað viðræðna.

Það er rétt, þar sem ráðamenn víðs vegar um heim hafa ekki viljað fara í viðskiptastríð við Bandaríkin eftir að Trump byrjaði að beita tollum þvers og kruss um heiminn. Má þar helst nefna Breta og ráðamenn í Evrópusambandinu sem gerðu nýja samninga við Bandaríkin.

Þá er vert að benda á að ef marka má fréttaflutning í bæði Kanada og í Bandaríkjunum snerust kröfur Bandaríkjamanna í garð Kanada ekki eingöngu um viðskipti, heldur einnig um málefni sem ráðamenn í Kanada segjast snúa um fullveldi landsins.

Ríkisstjórn Trumps vildi til að mynda setja skorður á getu Kanadamanna til að gera viðskiptasamninga við önnur ríki og þvinga Kanada til að beita nákvæmlega sömu tollum og Bandaríkin á önnur ríki. Þá vildu Trump-liðar einnig fá Kanadamenn til að fella úr gildi lög sem skikka efnisveitur eins og Netflix til að flagga sérstaklega kanadísku sjónvarpsefni og birta kanadískt efni á frönsku.

Deilt um bandarískt áfengi

Í yfirlýsingu Hvíta hússins segir einnig að Kanadamenn hafi beitt ósanngjörnum tollum á bandaríska bíla, auk þess að setja sérstaka tolla á bandarísk bílafyrirtæki.

Það sem er þó ekki tekið fram í yfirlýsingunni og bent er á í grein Ríkisútvarps Kanada, er að Kanadamenn beittu þessum tollum í viðskiptadeilum ríkjanna í fyrra, nokkrum dögum eftir að Bandaríkjamenn settu sambærilega tolla á bíla frá Kanada.

Bílaiðnaður Norður-Ameríku er mjög samtvinnaður milli Bandaríkjanna, Kanada og Mexíkó. Íhlutir bandarískra bíla eru iðulega framleiddir í öllum löndunum þremur.

Trump-liðar nefna einnig í áðurnefndri yfirlýsingu að bandarískt áfengi hafi verið bannað víðs vegar um Kanada. Ekkert annað ríki hafi verið beitt slíkum aðgerðum.

Bandarískt áfengi hefur verið bannað í flestum héruðum Kanada, öllum nema Saskatchewan og Alberta, og hefur það leitt til vandræða hjá áfengisframleiðendum í Kaliforníu og Kentucky, svo einhverjir séu nefndir.

Áður en forsætisráðherrar víðs vegar um Kanada bönnuðu sölu bandarísks áfengis höfðu Kanadamenn sjálfir byrjað að sniðganga vörur frá Bandaríkjunum, þar á meðal áfengi, í miklum mæli.

Það hófst eftir að Trump byrjaði að tala um að Kanada ætti að verða 51. ríki Bandaríkjanna og hóta því að þvinga Kanadamenn, meðal annars með efnahagsaðgerðum, til að ganga inn í Bandaríkin.

Kanadamenn hafa einnig dregið verulega úr ferðalögum sínum til Bandaríkjanna, sem hefur komið niður á ferðaþjónustu þar í landi.

Reiðir yfir reglum sem aldrei hefur reynt á

Hvíta húsið heldur því enn fremur fram að Kanadamenn beiti bandarískar mjólkurvörur sérstaklega miklu óréttlæti. Nærri því þrjú hundruð prósenta tollur sé settur á slíkar vörur, auk annarra tálma.

Þetta er í takt við ítrekuð ummæli Donalds Trump um ósanngirni Kanadamanna gagnvart bandarískum landbúnaði.

Reglurnar sem snúa að innflutningi mjólkurvara í Kanada eru flóknar, samkvæmt CBC. Bandarískum bændum er þó heimilt að flytja mjólkurvörur til Kanada alfarið án tolla, upp að ákveðnu marki.

Nái þessi innflutningur ákveðnu magni verður samkvæmt reglum Kanada settur 250 prósenta tollur á þessar mjólkurvörur. Bandaríkjamenn hafa þó aldrei flutt það mikið af þessum vörum til Kanada svo þessar reglur taki gildi.

Hins vegar eru reglur sem meina bandarískum fyrirtækjum að selja bandaríska mjólk í Kanada og það fer mjög fyrir brjóstið á Bandaríkjamönnum. Það var þó samþykkt í samningi ríkjanna á milli sem Trump gerði á sínu fyrsta kjörtímabili.

Hefur lengi kvartað yfir viðskiptahalla

Því er einnig haldið fram í yfirlýsingu Hvíta hússins að viðskiptahalli ríkjanna hafi lengi verið gríðarlega mikill. Á síðasta áratug hafi hallinn verið um fimmtíu milljarðar dala á ári.

Í fyrra var viðskiptahalli ríkjanna 48,5 milljarðar dala, samkvæmt Bandaríkjamönnum. Kanadamenn hafa samt mótmælt þessu og bent á að þetta sé að miklu leyti vegna þess að Kanada flytur mikið af hráolíu til Bandaríkjanna, sem seld sé undir markaðsvirði. Það sé Bandaríkjunum í hag.

Sé þessi olía tekin út fyrir sviga er viðskiptahalli ríkjanna Bandaríkjunum í vil.

Trump hefur lengi kvartað yfir viðskiptahalla Bandaríkjanna gagnvart öðrum ríkjum, sem honum hefur þótt til marks um að önnur ríki hafi Bandaríkin að féþúfu.

Þegar hann beitti nánast öll ríki heims tollum, sem hafa verið úrskurðaðir ólöglegir, í fyrra tóku tollarnir ekki mið af tollum annrra ríkja eins og Trump hélt fram. Þess í stað tóku þeir mið af viðskiptahalla Bandaríkjanna og annarra ríkja.

Ætla að draga úr áhrifum Bandaríkjamanna

Erfiðara er að fjalla um sannleiksgildi annarra meintra staðreynda Hvíta hússins um Kanada, þar sem þær eru mjög huglægar.

Eins og til dæmis sú staðreynd að Kanada gæti ekki „lifað af“ án Bandaríkjanna. Um þrír fjórðu af öllum útflutningi Kanada fara til Bandaríkjanna og án þess myndi efnahagur ríkisins hrynja.

Kanadamenn eru búnir að átta sig á því að of mörg egg þeirra eru geymd í körfu Bandaríkjamanna, ef svo má segja, og vinna nú hörðum höndum að því að gera viðskiptasamninga við önnur ríki. Carney hefur boðað miklar breytingar á þessu sviði.

Þá vísar Hvíta húsið einnig í könnun um að forsvarsmenn margra framleiðslufyrirtækja í Kanada vilji eða ætli að flytja starfsemi sína til Bandaríkjanna. Í yfirlýsingu Hvíta hússins segir að þetta sé vegna „misheppnaðra stefnumála“ Kanada.

Umrædd könnun var framkvæmd af KPMG og segir í niðurstöðum hennar að 42 prósent áðurnefndra forsvarsmanna hafi sagst vilja eða ætla að flytja framleiðsluna. Það er þó ekki vegna „misheppnaðra stefnumála“, heldur vegna „efnahagslegrar óvissu og tollaógna“.

Treysta stærðina en virðast vita af áhættu

Að endingu segir í yfirlýsingu Hvíta hússins að hagkerfi Bandaríkjanna sé þrettán sinnum stærra en hagkerfi Kanada og þjóðin átta sinnum stærri. Það sé því skýrt að Bandaríkin hafi forskotið í þessu viðskiptastríði.

Hver hefur forskotið er þó spurning sem erfitt er að svara fyrr en að leikslokum.

Fyrstu kannanir sýna að stór meirihluti kanadísku þjóðarinnar er hlynntur ákvörðun ríkisstjórnarinnar að slíta viðræðunum við Bandaríkin. Það þykir vísbending um að Kanadamenn séu tilbúnir til að taka á sig fórnir í viðskiptastríðinu.

Það er alfarið óljóst hvort Bandaríkjamenn sem stríðið mun einnig hafa áhrif á, séu tilbúnir til þess. Margir þeirra eru þegar mótfallnir aðgerðum Trumps og áróðri í garð Kanada.

Þá eru þingkosningar í Bandaríkjunum í nóvember. Staðan fyrir Repúblikana fyrir kosningarnar þykir ekki góð og þá sérstaklega hvað varðar fulltrúadeildina. Repúblikanar eru því sérstaklega viðkvæmir fyrir þrýstingi frá kjósendum og mörg af ríkjum Bandaríkjanna sem hefndartollar Kanada munu koma niður á eru ríki þar sem Repúblikanar halda í stjórnartaumana.

Það að tollar Bandaríkjanna á bíla frá Kanada eigi ekki að taka gildi fyrr en 1. janúar bendir til þess að Trump-liðar séu meðvitaðir um að deilurnar gætu komið niður á Repúblikönum í kosningunum.

#láta #repúblikana #rýnt #tollana #ætla


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262926415d/rynt-i-tollana-aetla-ad-lata-republikana-finna-til-tevatnsins

📰 Aðrar fréttir

Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 1
Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Það er vissulega mikið í húfi en að sjálfsögðu er bannað að svindla....
Mikil reiði vegna morðs á japanskri konu
📅 11.10.2026 👁️ 2
Mikil reiði vegna morðs á japanskri konu
Anna Yagi, japönsk kona á fertugsaldri, fannst látin á hótelherbergi í Okinawa í byrjun mánaðarins eftir að hafa verið kyrkt.The Times segir að lögreg...
Að­dá­endur í­trekað farið yfir mörk - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 2
Að­dá­endur í­trekað farið yfir mörk - Vísir
„Það var ömurlegt. Það er svo mikið stress að starta svona túrum. Maður er bara á fullu og maður er ekki búinn að spila í langan tíma og það er allt a...
Vonast til að geta leyst ráðgátuna um Ameliu Earhart
📅 11.10.2026 👁️ 3
Vonast til að geta leyst ráðgátuna um Ameliu Earhart
Vísindafólk frá bandarískri stofnun um fornleifaarfleið, Archaeological Legacy Institute, og Purdue-háskóla kemur til Nikumaroro-eyju í Kyrrahafi á má...
Fjölskylduharmleikur í Pennsylvaníu
📅 11.10.2026 👁️ 3
Fjölskylduharmleikur í Pennsylvaníu
Maður á fimmtugsaldri skaut sjö ættingja sína og fjölskylduvin á heimili í borginni Erie í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum í gær, áður en hann tók sitt e...
Justice Department investigating television networks over Trump pool coverage
📅 11.10.2026 👁️ 3
Justice Department investigating television networks over Trump pool coverage
The White House had blocked access for CNN, MS Now and Politico, leading them to restrict pool coverage.
UK launch flood taskforce to prepare for extreme winter weather
📅 11.10.2026 👁️ 3
UK launch flood taskforce to prepare for extreme winter weather
The Environment Agency has warned approximately 6.3 million homes and businesses in England remain at risk of flooding.
UK launches flood taskforce to prepare for extreme winter weather
📅 11.10.2026 👁️ 1
UK launches flood taskforce to prepare for extreme winter weather
The Environment Agency has warned approximately 6.3 million homes and businesses in England remain at risk of flooding.
Heimila losun á fjórum milljónum tunna af hráolíu vegna fellibylsins Isaias
📅 11.10.2026 👁️ 3
Heimila losun á fjórum milljónum tunna af hráolíu vegna fellibylsins Isaias
Fellibylurinn Isaias sem skall að landi við Flórída og Alabama í gær hefur raskað olíuframleiðslu Bandaríkjanna við strendur Mexíkóflóa.Orkumálaráðher...
Úkraína ætti að kjósa nýjan forseta – Trump (MYNDBAND)
📅 11.10.2026 👁️ 1
Úkraína ætti að kjósa nýjan forseta – Trump (MYNDBAND)
Úkraína ætti að kjósa nýjan forseta – Trump (MYNDBAND) Fréttin11. október 2026Erlent, Trump, ÚkraínustríðiðLeave a Comment Úkraína ætti að skipta út V...
Hútar sagðir á­byrgir fyrir á­rás á flug­völl - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Hútar sagðir á­byrgir fyrir á­rás á flug­völl - Vísir
Samkvæmt umfjöllun Reuters særðust 309 manns og voru sumir þeirra fluttir á sjúkrahús í lífshættu. Árásin hafi verið gerð fyrirvaralaust og er þetta s...
Blóðug árás á alþjóðaflugvöllinn í Riyadh – 12 látnir og yfir 300 særðir
📅 10.10.2026 👁️ 1
Blóðug árás á alþjóðaflugvöllinn í Riyadh – 12 látnir og yfir 300 særðir
Blóðug árás á alþjóðaflugvöllinn í Riyadh – 12 látnir og yfir 300 særðir Fréttin10. október 2026ErlentLeave a Comment King Khalid-alþjóðaflugvöllurinn...
Þúsundir mótmælenda sagðir hafa verið handteknir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Þúsundir mótmælenda sagðir hafa verið handteknir
Þúsundir mótmælenda voru handteknir í Nýju-Delí, höfuðborg Indlands, í dag þegar mótmælt var breytingum á kjörskrá landsins. Þetta kemur fram í tilkyn...
Blackpink’s Lisa Manobal: How the K-pop star faced a race scandal
📅 10.10.2026 👁️ 4
Blackpink’s Lisa Manobal: How the K-pop star faced a race scandal
Film-maker Sue Kim talks about having unprecedented access to K-Pop idol Lisa Manobal at her most candid.
AI is creating a 'human premium' for art created by people
📅 10.10.2026 👁️ 4
AI is creating a 'human premium' for art created by people
Amid a surge in AI content, many are placing extra value on art that's obviously made by a human. But can that last, asks Ros Atkins
Plan 2: Three friends on a decade of student loans
📅 10.10.2026 👁️ 4
Plan 2: Three friends on a decade of student loans
Lizzy, Charlotte and Libby studied at the same time, but their student debt now looks very different.
MPs attempt to overturn ruling which protects police from being sued
📅 10.10.2026 👁️ 4
MPs attempt to overturn ruling which protects police from being sued
MPs are seeking to stop immunity applying when police fabricate evidence or are dishonest or negligent.
Fjórir fórust af völdum fellibyljarins Isaias
📅 10.10.2026 👁️ 5
Fjórir fórust af völdum fellibyljarins Isaias
Að minnsta kosti fjórir fórust af völdum fellibyljarins Isaias sem skall á strönd Flórída og Alabama í gærkvöld.Dregið hefur úr krafti Isaias en enn e...
Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Bratta­hlíð Ei­ríks rauða - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Bratta­hlíð Ei­ríks rauða - Vísir
Í fréttum af fornleifafundinum í síðustu viku kom fram að menn hafi lengi grunað að þarna væri kirkjurúst frá tímum norrænu byggðarinnar. Sönnunin vær...
Tóku samtalið um land allt
📅 10.10.2026 👁️ 4
Tóku samtalið um land allt
„Samtalið“ svokallaða fór fram í dag, þar sem fólk hittist, ræddi framtíðina og hvernig samfélag það vill. Verkefnið heitir „Tölum saman“ og varð til ...
Frakkland í krísu og fjarhægrið sækir á
📅 10.10.2026 👁️ 1
Frakkland í krísu og fjarhægrið sækir á
Frakkland í krísu og fjarhægrið sækir á Að­eins 15 pró­sent hafa já­kvætt álit á Macron Frakk­lands­for­seta. Eldsneytis­verð í Frakklandi er í sögu­l...
Út­skrifuð af sjúkra­húsi og send aftur í fangelsið - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Út­skrifuð af sjúkra­húsi og send aftur í fangelsið - Vísir
Hin fimmtuga Pike lifði af tvær banvænar sprautur sem hún fékk á miðvikudaginn í síðustu viku í Tennessee í Bandaríkjunum. Hún komst aftur til meðvitu...
Tveir látnir eftir árás á alþjóðaflugvöll í Sádi-Arabíu
📅 10.10.2026 👁️ 5
Tveir látnir eftir árás á alþjóðaflugvöll í Sádi-Arabíu
Að minnsta kosti tveir eru látnir eftir árás á King Khalid-alþjóðaflugvöllinn í Ríad í Sádi-Arabíu í dag. Frá þessu greinir AFP-fréttastofan og hefur ...
Tólf látnir eftir árás á alþjóðaflugvöll í Sádi-Arabíu
📅 10.10.2026 👁️ 4
Tólf látnir eftir árás á alþjóðaflugvöll í Sádi-Arabíu
Að minnsta kosti tólf manns eru látnir og 309 særðir eftir árás á King Khalid-alþjóðaflugvöllinn í Ríad í Sádi-Arabíu í dag, að sögn flugmálayfirvalda...
Kalla eftir að­gerðum ekki yfir­lýsingum - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Kalla eftir að­gerðum ekki yfir­lýsingum - Vísir
„Íslensk stjórnvöld voru nýlega meðal 12 ríkja sem sendu frá sér yfirlýsingu um fyrirhugaðar aðgerðir gegn viðskiptum með vörur frá ólöglegum landtöku...
Vill auka að­gengi að verkja­lyfjum - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Vill auka að­gengi að verkja­lyfjum - Vísir
Nú fást lausasölulyf að jafnaði í apótekum. Lyfjastofnun getur þó leyft verslunum að selja ákveðin lyf ef meira en tuttugu kílómetrar eru í næsta apót...
Northern Lights: Aurora stun UK down to England's south coast
📅 10.10.2026 👁️ 4
Northern Lights: Aurora stun UK down to England's south coast
The natural phenomenon, known as the Aurora Borealis, is the result of increased solar activity.
Tvær milljónir manna í landfræðilegu búri
📅 10.10.2026 👁️ 4
Tvær milljónir manna í landfræðilegu búri
Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri Unicef á Íslandi, segir líflína fólks á Gaza að fólk muni eftir þeim, fjármagni hjálp sem það þurfi og ýti á st...
Vill nýjan Úkraínuforseta - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Vill nýjan Úkraínuforseta - Vísir
Í gær greindi Trump frá samkomulagi sínu við Vladímír Pútín Rússlandsforseta um að Rússar hefji þegar í stað útflutning á hundruðum þúsunda tonna af d...
„Ég sé ekki að ís­lenskt sam­félag vilji kasta því fyrir róða“ - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
„Ég sé ekki að ís­lenskt sam­félag vilji kasta því fyrir róða“ - Vísir
Kennarasamband Íslands boðaði til blaðamannafundar í vikunni þar sem sambandið kynnti stefnumótun og áherslur í menntamálum. Kallaði sambandið eftir s...
Mestu skiptir að engan sakaði
📅 10.10.2026 👁️ 4
Mestu skiptir að engan sakaði
Innan við tvær klukkustundir tók að slökkva eldinn í álverinu í dag og var kerskáli tekinn úr rekstri á meðan.„Það er ekki vitað að svo stöddu hvað ol...
Frá dísilsamningi við Pútín til ákalls Trumps um nýjan forseta Úkraínu
📅 10.10.2026 👁️ 4
Frá dísilsamningi við Pútín til ákalls Trumps um nýjan forseta Úkraínu
Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði við fréttamenn fyrir utan Hvíta húsið í dag að hann teldi kominn tíma til að Úkraína fengi nýjan forseta. Hann la...
K-kúrfu hagkerfið
📅 10.10.2026 👁️ 4
K-kúrfu hagkerfið
K-kúrfu hagkerfið Verð­bólga var ekki til­kom­in vegna launa og eyðslu neðri hluta K-leggs­ins í hag­kerf­inu, held­ur vegna að­gerða at­vinnu­lífs­in...
Lést eftir á­rás tígris­dýrs í dýra­garði - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Lést eftir á­rás tígris­dýrs í dýra­garði - Vísir
Lögreglunni barst tilkynning um að maðurinn hefði farið inn á girt svæði klukkan hálf tvö að staðartíma í dag. Í kjölfarið hafi tígrisdýrið ráðist á m...
Páll og Selma Eir eiga von á dreng
📅 10.10.2026 👁️ 1
Páll og Selma Eir eiga von á dreng
Páll og Selma Eir eiga von á dreng Selma Eir og bumbubúinnEkki kemur fram í færslunni hvenær megi búast við þeim litla Mynd: Instagram Páll Edwald og ...
Erum að horfa á vendipunkt í verðbólgunni
📅 10.10.2026 👁️ 4
Erum að horfa á vendipunkt í verðbólgunni
Hvert einasta sæti var skipað og rúmlega það á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í dag. Ræða formannsins og forsætisráðherrans bar heitið Styrk hö...
Four dead and thousands without power after Hurricane Isaias lashes US
📅 10.10.2026 👁️ 5
Four dead and thousands without power after Hurricane Isaias lashes US
Roofs were ripped off buildings after Isaias barrelled into the US on Friday evening, before it weakened to a post-tropical cyclone.
Karlmaður lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði
📅 10.10.2026 👁️ 5
Karlmaður lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði
Karlmaður er látinn eftir árás tígrisdýrs í dýragarði skammt frá borginni Doncaster í Jórvíkurskíri á Englandi. Lögregla segir manninn hafa farið inn ...
Sakar verkalýðsleiðtoga um að vinna gegn hagsmunum launafólks
📅 10.10.2026 👁️ 1
Sakar verkalýðsleiðtoga um að vinna gegn hagsmunum launafólks
Sakar verkalýðsleiðtoga um að vinna gegn hagsmunum launafólks Sólveig Anna JónsdóttirBjörn gagnrýnir Sólveigu Önnu rækilega í nýrri færslu. Mynd: Bára...
Vilja bíla­stæðin upp úr skot­gröfunum - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Vilja bíla­stæðin upp úr skot­gröfunum - Vísir
Meðal bílastæðanna fimmtán sem verða tekin aftur í notkun eru tvö við Kaffi Babalú á Skólavörðustíg þar sem fréttamaður hitti þær Guðnýju Maríu Jóhann...
Níu létust eftir skot­á­rás - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Níu létust eftir skot­á­rás - Vísir
Lögregla var komin á vettvang aðeins örfáum mínútum eftir að tilkynning barst henni um skothvelli úr íbúðarhúsi. Allir níu voru þegar látnir þegar lög...
Smári og Linda muna vel eftir opnun Smáralindar
📅 10.10.2026 👁️ 5
Smári og Linda muna vel eftir opnun Smáralindar
Verslunarmiðstöðin Smáralind var opnuð á þessum degi fyrir 25 árum. Smári úr Smáraskóla og Linda úr Lindaskóla fengu þann heiður að opna þessa stærstu...
Expedition hopes to find aviator Amelia Earhart's plane on remote island
📅 10.10.2026 👁️ 5
Expedition hopes to find aviator Amelia Earhart's plane on remote island
The team en route to the suspected crash site aim finally to solve the mystery of her 1937 disappearance.
Á annað hundrað sektaðir - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Á annað hundrað sektaðir - Vísir
Um helgina fer fram sýningin Íslenskur landbúnaður 2026 í Laugardalshöll en fagsýningarfyrirtækið Ritsýn stendur fyrir sýningunni. Hátt í hundrað sýne...
Carla Jade vann Eriku Nótt naumlega eftir dramatískan bardaga
📅 10.10.2026 👁️ 1
Carla Jade vann Eriku Nótt naumlega eftir dramatískan bardaga
Carla Jade vann Eriku Nótt naumlega eftir dramatískan bardaga Carla og ErikaErika var afar ósátt við úrslitin Mynd: Skjáskot Carla Jade hélt Misfits-m...
New selfie spot in Corralejo made from 100% recycled plastic
📅 10.10.2026 👁️ 5
New selfie spot in Corralejo made from 100% recycled plastic
Visitors to Corralejo have a new place to capture their holiday photographs following the installation of a tourist selfie spot made entirely from rec...
Trump vill að Úkraína skipti um forseta
📅 10.10.2026 👁️ 5
Trump vill að Úkraína skipti um forseta
Donald Trump Bandaríkjaforseti vill að Úkraínumenn velji sér annan forseta sem geti bundið enda á stríð landsins við Rússland.Hann er Volodomyr Zelens...
Kristrún Frostadóttir: Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
📅 10.10.2026 👁️ 4
Kristrún Frostadóttir: Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
Kristrún Frostadóttir: Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“ For­sæt­is­ráð­herra seg­ir að nið­ur­staða þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­un...
Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
📅 10.10.2026 👁️ 5
Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
Kristrún Frostadóttir: Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“ For­sæt­is­ráð­herra seg­ir að nið­ur­staða þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­un...
Þrír réðust á einn og barnavernd komin í málið
📅 10.10.2026 👁️ 1
Þrír réðust á einn og barnavernd komin í málið
Þrír réðust á einn og barnavernd komin í málið Mynd: Lára Garðarsdóttir Tveir einstaklingar gista í fangaklefa lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þegar...