Skrifstofur Hagkaups í Skútuvogi í Reykjavík voru rýmdar á ellefta tímanum í dag vegna hótunar.
Vísir greindi fyrst frá.
„Okkur barst bara hótun og við létum lögreglu vita. Við fórum í rauninni bara í framhaldinu eftir hennar fyrirmælum,“ segir Sigurður Reynaldsson, framkvæmdastjóri Hagkaups. Hann segir best að taka enga áhættu við slíkar aðstæður.
Lögregla taldi öruggast að rýma húsið á meðan hún ynni að málinu.
Sigurður segir að lögregla telji sig hafa fundið manninn og að hann kunni að vera erlendis. Verið er að draga úr hættustigi.