Skyndiákvörðun skólastjóra um að rýma skóla í Nepal skömmu fyrir hamfaraflóðið á landamærum Nepal og Tíbets varð fjölmörgum kennurum og nemendum til lífs.
Í viðtali við breska ríkisútvarpið segir Rajendra Dawadi, skólastjóra Tribhuvan Trishuli-skóla í Nuwakot, að honum hafi borist viðvaranir frá fjórum einstaklingum um flóðahættu. Þegar foreldri kom í skólann að sækja barn sitt vegna yfirvofandi flóðs áttaði hann sig á hversu mikil hætta væri á ferð.
Sagði nemendum og kennurum að hlaupa upp í fjallshlíðar
Í skyndi ákvað hann að rýma skólann og sagði öllum kennurum og nemendum að hlaupa upp í hlíðar. Þá skipaði hann skólarútum að snúa við frá svæðinu.
Yunisha, nemandi við skólann, segir að vinir hennar hafi hjálpað sér að ganga upp í hlíðina fyrir aftan skólann og þau sluppu með skrekkinn. Innan örfárra mínútna sáu þau flóðið gjöreyðileggja markaðinn í bænum.
Kennarar og nemendur náðu að koma sér undan flóðinu nokkur hundruð metra upp í fjallshlíðarnar og gengu áfram til nærliggjandi þorps. Þar biðu þau björgunar í tvær nætur, áður en björgunarfólk náði til þeirra.
Örlagamiklar ákvarðanir
Ekki voru þó allir svo heppnir og Yunisha segir að þau sem völdu aðra flóttaleið frá skólanum hafi ekki lifað flóðið af. Um 900 nemendur voru í skólanum. Ekki liggur fyrir hversu margir þeirra komust lífs af eða hversu margir fórust.
Skólinn, sem er þriggja hæða, varð undir flóðinu, svo þessi skyndiákvörðun skólastjórans skipti sköpum. Hann segir að betra viðvörunarkerfi hefði getað varað íbúa við í tæka tíð og þá hefðu fleiri getað komið sér í öruggt skjól.