„Ég segi fyrir mig, ég er rosalega þreytt á þessu endalausa tali um að RÚV sé einhver fyrirstaða í lífi annarra fjölmiðla, vegna þess að það er það í rauninni ekki. Það er mikilvægt að líka standa vörð um RÚV. Það er stóri miðillinn okkar og við eigum að vera stolt af RÚV og okkar almannaútvarpi en jafnframt að gera mjög ríkar kröfur til þess miðils,“ segir Eyrún Magnúsdóttir hjá Gímaldinu í þættinum Átakalínur. Þátturinn að þessu sinni snýst um stöðu fjölmiðla en í vikunni voru kvöldfréttir Sýnar lagðar niður eftir tæplega fjörutíu ára sögu.
RÚV sé ekki fyrirstaða í lífi annarra fjölmiðla