Samkvæmt frétt miðilsins Pravda urðu skemmdir á ytra byrði hússins sem og innviðum. Einnig skemmdist rannsóknarstofa á sjúkrahúsinu og þá brotnuðu yfir þúsund rúður í sjúkrahúsbyggingunni og tíu íbúðabyggingum í nágrenninu.
Upphaflega var sagt að tuttugu og fimm hefðu slasast í árásunum en síðan var sú tala uppfærð í sextíu og tvo slasaða. Flytja þurfti 226 sjúklinga á önnur sjúkrahús en lögreglumenn telja að um FAB-250 sprengjur hafi verið að ræða útbúnar með UMPK-5R stýribúnaði.
Þá hafa Rússar greint frá því að stórfelld árás hafi verið gerð á orkuinnviði í Úkraínu í nótt. Samkvæmt upplýsingum frá flugher Úkraínu gerðu Rússar drónaárás en óljóst er hversu margir drónar voru sendir á loft. Orkufyrirtækið DTEK hefur greint frá því að gripið hafi verið til neyðarráðstafana og rafmagn tekið af á ákveðnum svæðum í Kænugarði og Dnipropetrovsk.
Í gær var greint frá árás Rússa á bæinn Komyshuvakha í Sapórísja en fyrstu sprengjurnar féllu þegar íbúar bæjarins komu saman í skólanum, eins og þeir gera reglulega samkvæmt Selenskí forseta, til að fá mat.
Fleiri sprengjum var varpað og drónaárásir gerðar í kjölfarið og sagði Selenskí að þeim hefði í einhverjum tilfellum verið miðað á byrgi þar sem fólk hafði leitað sér skjóls. Samkvæmt úkraínskum viðbragðsaðilum létust að minnsta kosti 20 í árásunum.