Meintir gerendur voru fluttir á lögreglustöðina við Hverfisgötu. Annar þeirra var vistaður í fangageymslu en hinum var sleppt að lokinni skýrslutöku.
Þetta er á meðal þess sem kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Þar segir einnig að maður sem lögregla hafði sent heim úr miðbænum í gærkvöldi með skýrum fyrirmælum um að snúa ekki aftur hafi verið handtekinn þar að nýju skömmu síðar.
Hann var látinn gista fangageymslu í nótt.
Maðurinn var fyrst handtekinn eftir að hafa lent í útistöðum við dyraverði. Hann var fluttur á lögreglustöð en þar sem málið var talið minniháttar var honum sleppt að loknum viðræðum og gefið færi á að fara heim til sín.
Honum hafi jafnframt verið gert ljóst að hann ætti ekki að snúa aftur í miðbæinn það kvöldið.
Þau skilaboð virðast ekki hafa skilað sér því skömmu síðar var maðurinn aftur handtekinn í miðbænum. Í það skiptið var hann vistaður í fangaklefa vegna ástands.