Ríkis­stjórnin virði niður­stöðuna og taki málið af dag­skrá - Vísir

Ríkis­stjórnin virði niður­stöðuna og taki málið af dag­skrá - Vísir

Ríkis­stjórnin virði niður­stöðuna og taki málið af dag­skrá - Vísir

Þetta er meðal þess sem kom fram á blaðamannafundi Kristrúnar Frostadóttur, forsætisráðherra og formanns Samfylkingarinnar, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og formanns Viðreisnar, og Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra og formanns Flokks fólksins, í Hörpu í dag.

Kristrún byrjaði á að bjóða fólk velkomið og sagðist ánægð með metþátttöku í kosningum og það sýni að þjóðin sé vel fær til að taka afstöðu í svona máli. Hún sagði ríkisstjórnina hafa lofað þjóðinni að segja sitt í þessu máli og þær hafi efnt það í gær. 

„Ég vil líka segja í ljósi þess hve mjótt er á mununum að við virðum afstöðu allra í þessu máli,“ sagði Kristrún og þó svo að 53 prósent hafi ekki áhuga á frekara Evrópusamstarfi hafi 47 prósent áhuga á því.

Hún sagði ánægjulegt hversu innihaldsríkt samtal þjóðin hafi átt síðustu vikur um alþjóðamál og hversu margir hafi lýst ánægju með EES-samninginn. Þessi niðurstaða styrki samninginn og að hann sé staðið við.

Skýrt að málið sé af dagskrá

Hún sagðist stolt af því að búið væri að útkljá þetta mál í bili og að það væri alveg skýrt að þessi ríkisstjórn tæki þetta nú af dagskrá.

Þorgerður Katrín sagðist auðvitað hafa viljað sjá aðra niðurstöðu en það hafi alltaf verið skýrt að ríkisstjórnin myndi virða niðurstöðuna. Ríkisstjórnin hafi verið gagnrýnd fyrir að setja kosninguna á dagskrá og tímasetninguna en þjóðin hafi sýnt að hún sé tilbúin og fær um að ræða þessi mál og taka ákvörðun.

Hún sagði að sem utanríkisráðherra hefði verið mjög gaman að sjá svo mikla umræðu um alþjóðamál og þá sérstaklega meðal ungs fólks. Þorgerður Katrín greindi frá því á fundinum að hún hefði þegar kallað eftir því að utanríkismálanefnd verði kölluð saman á morgun.

Hún sagði Evrópusambandið sjálft ekki markmiðið heldur hefði ríkisstjórnin séð það sem eina lausn á þeim vandamálum sem steðja að í dag, innlendis og alþjóðlega.Heimurinn sé breyttur og þetta hafi verið ein leið til að tryggja hagsmuni Íslands enn betur í breyttum.

„Lykilatriði sé að við uppfyllum okkar skuldbindingar, sagði Þorgerður og að það væri mikilvægt að styrkja tvíhliða samninga.“ 

Verkefnin séu áfram risastór og það verði auðvitað haldið áfram með þau. Hún sagðist spennt að koma á þing í næstu viku og halda áfram með verkefni ríkisstjórnarinnar.

Þorgerður sagðist auðvitað hafa viljað sjá aðra niðurstöðu en hún virði hana og haldi áfram að styrkja stöðu Íslands með öðrum hætti alþjóðlega. Vísir/Viktor Freyr

Inga Sæland sagði Flokk fólksins alltaf hafa kallað eftir auknu beinu lýðræði og það hafi verið lýðræðisveisla í gær. Ríkisstjórnin hafi ákveðið að gefa þjóðinni færi á að segja sína skoðun í þessu máli og þjóðin hafi sagt nei. Hún sagði ríkisstjórnina ganga í takt og að hún vilji vinna landi og þjóð til heilla. Hún vinni að almannahagsmunum frekar en sérhagsmunum.

„Ég ætla að blása strax á allt sem er hugsanlega viðkvæmt fyrir ríkisstjórnina. Það er aldrei viðkvæmt fyrir ríkisstjórn að gefa þjóðinni sinni valdið,“ sagði Inga og að þær héldu áfram á sömu vegferð og þær hófu í desember 2024.

Ræða við erlenda kollega

Formennirnir voru spurðir að því hvort að þær hefðu átt samtöl við einhvern í Brussel í dag. Kristrún sagðist ekki hafa átt símtal við neinn frá ESB en hún hafi átt í skilaboðasendingum Antonio Costa, forseta leiðtogaráðs Evrópusambandsins, og þar sé vilji fyrir áframhaldandi samstarfi Íslands og Evrópusambandsins. Hún segist taka því sem jákvæðu merki að fólk sé ánægt með stöðuna og þátttöku Íslands í EES.

Þorgerður greindi frá því að hún ætli síðar í dag að ræða við forsætisráðherra Noregs um stöðuna. Hún hafi verið í sambandi við kollega í Noregi og það sé skýrt að það þurfi að standa vörð um EES-samninginn og hún tekur undir að það hafi verið gott að sjá stuðning allra flokka við EES-samninginn. Umræðan hafi dregið fram staðfestu allra flokka við að standa vörð um EES-samninginn.

Spurðar um „eðlilegan farveg“ málsins og hver hann geti verið sagði Kristrún eðlilegan farveg að ekki verði farið áfram með þetta mál á meðan þessi ríkisstjórn er við völd. Þorgerður sagði mikilvægt að eiga samráð við þingið og utanríkismálanefnd um niðurstöðuna. Það skipti ekki síst máli að uppfylla allar skuldbindingar á alþjóðavettvangi, sama hvort um ræður Schengen, NATO eða EES. Það þurfi að auka viðnámsþol og tvíhliða samskipti við aðrar þjóðir.

„Þetta er samtal sem ég vil gjarnan eiga við utanríkismálanefnd,“ sagði Þorgerður og það sé alveg skýrt að það megi ekki sniðganga þingið eins og var gert þegar viðræðum var slitið síðast.

Inga Sæland sagði það alveg skýrt að málið yrði nú tekið af dagskrá. Vísir/Viktor Freyr

Niðurstaðan verði alltaf virt

Spurð hvort þær gætu verið skýrari um næstu skref sagðist Inga ekki vita hversu skýrar þær gætu verið, þær virði þjóðarviljann og ætli ekkert að koma aftan að þjóðinni.

„Þetta er alveg skýrt, og ég vona að ég sé alveg skýr.“

Kristrún sagði mikilvægt að hafa í huga að það séu fimmtán ár síðan síðast var farið í þetta ferli. Umsóknin hafi aldrei verið dregin til baka í gegnum margar ríkisstjórnir og hún telji þurfa að ræða það á þingi hvort það eigi að gera það. Ríkisstjórnin fari ekki í frekari aðildarviðræður og fólk geti treyst því að ríkisstjórnin ætli að gera það.

„Fólk þarf ekki að hafa áhyggjur af því að þessi niðurstaða verði ekki virt,“ sagði Kristrún.

Þorgerður tók undir þaðþ.

„Þessi ríkisstjórn er ekki að halda áfram með málið,“ sagði hún og að þær ætluðu að halda áfram að virða sínar alþjóðlegu skuldbindingar í samstarfi við NATO, Evrópusambandið og aðrar norrænar þjóðir. Það séu ógnir sem að okkur steðji og það sé mikilvægt að vera í virku og góðu samstarfi og samtali við aðrar þjóðir.

Eftir það skiptu þær yfir á ensku en töluverður fjöldi erlendra blaðamanna var á fundinum. Kristrún fór yfir söguna, samhengið og svo niðurstöðuna. Hún endurtók það sem hún sagði í íslenska ávarpi sínu um samtal þjóðarinnar um alþjóðamál og að þetta hafi því verið gott fyrir þjóðina. Mikilvægast sé að koma sameinuð út úr þessu og að fólk virði niðurstöðuna. Hún sagði þjóðina ánægða með EES-samninginn og það hafi bersýnilega komið í ljós í samtali síðustu vikna. Ríkisstjórnin ætli að styrkja enn frekar það samband og það sé það mikilvægasta þegar þær halda áfram.

Mikill fjöldi erlendra blaðamanna var á fundinum. Vísir/Viktor Freyr

Spurt var um framtíð ríkisstjórnarinnar og sagði hún þetta sigur fyrir ríkisstjórnina. Hún væri að uppfylla loforð sem hefði verið rætt í mörg ár og ítrekaði að þessi ríkisstjórn myndi ekki halda viðræðum við Evrópusambandið áfram.

Spurð hvort Viðreisn og Samfylking myndu halda áfram með viðræður væru þau saman í næstu ríkisstjórn sagði Kristrún óábyrgt að tala um það núna. Það sem hún geti ábyrgst er að ríkisstjórnin haldi ekki áfram með þetta núna. Hún efast um að þetta verði stórt mál í næstu þingkosningum. Það þurfi eitthvað stórt að gerast svo að þetta verði stórt kosningamál í næstu kosningum en það sé ekkert hægt að útiloka.

Kristrún segist ánægð með niðurstöðuna og sérstaklega mikla kjörsókn. Vísir/Viktor Freyr

Þorgerður bætti engu við þetta, hún sagði heiminn hafa breyst mikið síðustu mánuði og að þessu hafi verið flýtt á dagskrá vegna áhuga. Hver ríkisstjórn verði að einbeita sér að því hvernig sé hægt að verja hagsmuni Íslands og að þessi ríkisstjórn setji þetta ekki frekar fram en að hún geti ekki vitað hvað gerist eftir tvö eða þrjú ár.

Spurð um háa vexti og verðbólgu sem voru til umræðu í aðdraganda kosninganna sagði Kristrún það rétt að ríkisstjórnin ætti að einbeita sér að því. Þess vegna væru þau að leggja fram hallalaus fjárlög í næstu viku. Kristrún ítrekaði einnig að þó svo að niðurstaðan hefði verið önnur þá hefði ríkisstjórnin þurft að taka ábyrgð á sínum málum.

Fólk verði að geta þolað niðurstöðu þjóðaratkvæðis

Spurð hvort þetta sé áfall fyrir ríkisstjórnina sagði Kristrún að það verði að hafa í huga að ef þjóðin vilji halda þjóðaratkvæðagreiðslu verði að þola niðurstöðuna. 53 prósent sögðu nei en yfir 100 þúsund sögðu já líka. Það hafi aldrei verið hægt að afgreiða þetta mál nema með þjóðarvilja. Það sé styrkur fyrir ríkisstjórnina að lofa að halda svona kosningu og virða niðurstöðuna. Það hafi verið í þeirra ríkisstjórnarsáttmála. Hversu mjótt sé á mununum sýni að fólk kunni að meta það að vera spurt.

Hvað varðar tengsl við landsbyggðina segist Kristrún lengi hafa vitað að þetta sé staðan og þess vegna hafi hún lagt áherslu á að eiga í virku samtali við landsbyggðina. Þær taki það til sín að eiga í samtali við fólk hvar sem er á landinu.

Formenn ríkisstjórnarflokkanna segja alveg skýrt að niðurstaðan verði virt og að málið verði ekki á dagskrá á kjörtímabilinu. Vísir/Viktor Freyr

Inga sagði það aldrei geta verið áfall fyrir ríkisstjórnina að eiga í samtali við þjóðina, það sé sigur fyrir þær að sjá þessa sögulegu kjörsókn og að þetta hafi styrkt ríkisstjórnina frekar en nokkuð.

„Þetta hefur sýnt okkur að það að gefa þjóðinni valdið skiptir máli,“ sagði hún og að þær hefðu getað gert þetta án þjóðarinnar en það hafi aldrei komið til greina að gera það.

Augu og eyru ríkisstjórnarinnar opin

„Það er þjóðin okkar sem átti síðasta orðið í gær,“ sagði Inga.

Hvað varðar landsbyggðina sagði Inga ástæðurnar fyrir ólíkum niðurstöðum í Reykjavík og landsbyggð geta verið margar og hún velti fyrir sér hvort þetta geti verið skilaboð um að í höfuðborginni eigi fólk meira undir högg að sækja. Hér glími það við miklu meiri fátækt og húsnæðisóöryggi en á landsbyggðinni. Landsbyggðin standi sterk og sé sátt í sínu skinni.

Hún sagði samtalið við þjóðina hafa verið fallegt og að augu og eyru ríkisstjórnarinnar væru opin.

Þær segjast stoltar af því að hafa lagt þetta mál fram, að þjóðin hafi fengið sitt að segja og að sama hver niðurstaðan sé virði ríkisstjórnin hana og haldi nú áfram í þágu íslenskra hagsmuna í öðrum verkefnum. Ríkisstjórnin haldi sameinuð áfram þannig.

#málið #niðurstöðuna #ríkisstjórnin #taki #virði


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262928057d/rikisstjornin-virdi-nidurstoduna-og-taki-malid-af-dagskra

📰 Aðrar fréttir

Hundreds of IDF investigations into killings without public outcome, BBC Verify finds
📅 15.10.2026 👁️ 1
Hundreds of IDF investigations into killings without public outcome, BBC Verify finds
BBC Verify has identified 254 incidents from the past three years the Israeli military said it is reviewing after being accused of harm.
Falin myndavél fannst í sturtum kvenkyns hermanna
📅 15.10.2026 👁️ 2
Falin myndavél fannst í sturtum kvenkyns hermanna
Varnarmálaráðuneyti Ástralíu hefur hafið rannsókn á því hvernig falin myndavél rataði í klefa um borð í einu skipa sjóhersins.Ábending um að myndavéli...
Bækur Sally Rooney teknar úr sölu vegna stuðnings við Palestine Action
📅 15.10.2026 👁️ 2
Bækur Sally Rooney teknar úr sölu vegna stuðnings við Palestine Action
Írski rithöfundurinn Sally Rooney segist vera tilneydd til að taka bækur sínar úr sölu í Bretlandi vegna stuðnings hennar við samtökin Palestine Actio...
White House defends new press secretary Katie Zacharia amid questions about her legal credentials
📅 15.10.2026 👁️ 2
White House defends new press secretary Katie Zacharia amid questions about her legal credentials
Katie Zacharia does not appear to be registered to the legal bar in any state where she has lived.
North Korea and China open new bridge after 12-year delay
📅 15.10.2026 👁️ 1
North Korea and China open new bridge after 12-year delay
China is the North's largest trading partner and a lifeline against the sanctions Pyongyang faces.
Viðvaranir gular en áfram hríð og óvissustig vegna snjóflóðahættu
📅 15.10.2026 👁️ 3
Viðvaranir gular en áfram hríð og óvissustig vegna snjóflóðahættu
Veðurviðvaranir eru nú allar gular en enn þá er norðan- eða norðvestanhríð í þeim landshlutum þar sem viðvaranir gilda.Á Vestfjörðum er slæmt skyggni ...
Retired US generals call on Pentagon to cancel livestream execution
📅 15.10.2026 👁️ 2
Retired US generals call on Pentagon to cancel livestream execution
Livestreaming the execution of Nidal Hasan "will taint the honor of the military that employs it, and a nation that allows it," 72 former officers sai...
Nýtt háskólanám í vímuefnaráðgjöf hefst næsta haust
📅 15.10.2026 👁️ 3
Nýtt háskólanám í vímuefnaráðgjöf hefst næsta haust
Háskólaráð Háskólans á Akureyri samþykkti nýverið að bjóða upp á tvær nýjar námsleiðir við skólann. Það verður boðið upp á diplómu- eða meistaranám í ...
„Þessi á­kvörðun mun kosta mörg manns­líf“ - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 5
„Þessi á­kvörðun mun kosta mörg manns­líf“ - Vísir
Selenskí er í opinberri heimsókn í Bretlandi og gaf sér tíma til að mæta í viðtal hjá Piers Morgan. Þar var fjallað um takmarkanirnar á Starlight-tækn...
Dog that hunts invasive sea creature named animal of the year
📅 14.10.2026 👁️ 5
Dog that hunts invasive sea creature named animal of the year
A working is named animal of the year for hunting out an invasive marine creature, the carpet sea squirt.
Óvissustig vegna snjó­flóða­hættu í Súða­víkur­hlíð - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 5
Óvissustig vegna snjó­flóða­hættu í Súða­víkur­hlíð - Vísir
Vegagerðin setur á óvissustig og tók hún gildi klukkan tíu í kvöld. Óvissustig þýðir að veginum gæti verið lokað með skömmum fyrirvara. Einnig eru Þrö...
SOS Children's Villages International withholds report into its role in 'disappeared' Syrian children
📅 14.10.2026 👁️ 1
SOS Children's Villages International withholds report into its role in 'disappeared' Syrian children
SOS Children's Villages International has acknowledged that more than 140 children were taken to its facilities by Syrian security services.
Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð
📅 14.10.2026 👁️ 5
Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð
Vegagerðin hefur lýst yfir óvissustigi vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð á Vestfjörðum. Appelsínugul veðurviðvörun er í gildi á Vestfjörðum, Strönd...
Verðkröfur stjórn­valda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 5
Verðkröfur stjórn­valda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá - Vísir
Lyfjafyrirtæki þurfa að sækja um markaðsleyfi í öllum ríkjum þar sem til stendur að setja lyf á markað. Mikill fjöldi nýrra sérhæfðra lyfja hefur komi...
Fróaði sér í lest í þrettán klukkutíma – „Drykkjan ber mig stundum ofurliði“
📅 14.10.2026 👁️ 5
Fróaði sér í lest í þrettán klukkutíma – „Drykkjan ber mig stundum ofurliði“
Breskur maður á fertugsaldri hefur verið handtekinn eftir að hafa fróað sér í lest, meðal annars fyrir framan konur, í samanlagt 13 klukkutíma. Maðuri...
Reform faces criticism after councillors filmed making racist comments
📅 14.10.2026 👁️ 5
Reform faces criticism after councillors filmed making racist comments
Reform says all of those people filmed by ITV are under investigation having resigned or been suspended.
Cappuccino fyrir eigendur og puppoccino fyrir hundana
📅 14.10.2026 👁️ 5
Cappuccino fyrir eigendur og puppoccino fyrir hundana
Gestir á kaffihúsi einu í Kópavogi eru misvel upp aldir en allir jafn velkomnir, hvort sem þeir ganga á tveimur jafnfljótum eða fjórum fótum. Á kaffih...
Brooklyn novelty shop reeling from 'surreal' row with Kelly Clarkson over mechanical bird
📅 14.10.2026 👁️ 5
Brooklyn novelty shop reeling from 'surreal' row with Kelly Clarkson over mechanical bird
Art of Play says its staff have been threatened after the singer complained online about how she was treated.
Hefur sofið hjá yfir 100 giftum karlmönnum – Segist bjarga hjónaböndum
📅 14.10.2026 👁️ 4
Hefur sofið hjá yfir 100 giftum karlmönnum – Segist bjarga hjónaböndum
Saurora Grace er 32 ára kona frá Manchester í Englandi. Hún starfar sem svokallaður kynlífsstaðgengill eða sex surrogate, einstaklingur sem aðstoðar f...
Val­höll skrefi nær því að verða níu­tíu her­bergja hótel - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Val­höll skrefi nær því að verða níu­tíu her­bergja hótel - Vísir
Valhöll hefur um áratugaskeið verið þekkt sem höfuðstöðvar Sjálfstæðisflokksins. Alva capital og flokkurinn undirrituðu kaupsamning um húsið í febrúar...
Sigríður og eiginmaður hennar eru 1 af 6: „Við hjónin höfum oft lent á vegg með kostnað meðferða“
📅 14.10.2026 👁️ 4
Sigríður og eiginmaður hennar eru 1 af 6: „Við hjónin höfum oft lent á vegg með kostnað meðferða“
„Ég og maðurinn minn erum 1 af 6. Við erum eitt af þeim pörum sem vita manna best að barneignir eru ekki sjálfgefnir lífsviðburðir heldur ferli sem in...
Bækur Rooney teknar úr sölu í Bret­landi - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Bækur Rooney teknar úr sölu í Bret­landi - Vísir
Faber, útgefandi Rooney, sagði í yfirlýsingu í dag að vegna lagasetningar í Bretlandi geti Faber ekki greitt Rooney tekjur sem aflað er í Bretlandi fy...
Um­sátur opin­berar skuggastríð mála­liða - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Um­sátur opin­berar skuggastríð mála­liða - Vísir
Prince, sem hefur verið dyggur stuðningsmaður Donalds Trump Bandaríkjaforseta, rekur nú málaliðafyrirtækið Vectus Global, sem starfar meðal annars á H...
UK threatens visa bans for Eritrea over migrant return policy
📅 14.10.2026 👁️ 4
UK threatens visa bans for Eritrea over migrant return policy
The home secretary said she would not hesitate to impose measures on other countries "refusing to co-operate".
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við því að hálka geti myndast í efri byggðum
📅 14.10.2026 👁️ 4
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við því að hálka geti myndast í efri byggðum
Nokkuð kólnar í veðri á höfuðborgarsvæðinu með kvöldinu og í fyrramálið og viðbúið að hitinn verði nálægt frostmarki í efri byggðum. Lögreglan hvetur ...
Ugla yfir­gefur borgina - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Ugla yfir­gefur borgina - Vísir
„Jæja, litla hreiðrið mitt í Grafarvogi komið á sölu. Uglan tekur sig til flugs og stefnir á Reykjanesið, eftir 16 ár í borginni,“ skrifar hann í færs...
Úkraína gerir árásir á tvær rússneskar olíuhreinsistöðvar þrátt fyrir kröfur Trumps
📅 14.10.2026 👁️ 4
Úkraína gerir árásir á tvær rússneskar olíuhreinsistöðvar þrátt fyrir kröfur Trumps
Úkraína gerir árásir á tvær rússneskar olíuhreinsistöðvar þrátt fyrir kröfur Trumps Fréttin14. október 2026Erlent, Trump, ÚkraínustríðiðLeave a Commen...
Segir Jennifer Aniston hafa gefið sér kynlífstæki til að niðurlægja sig
📅 14.10.2026 👁️ 4
Segir Jennifer Aniston hafa gefið sér kynlífstæki til að niðurlægja sig
Leikstjórinn Penelope Spheeris gagnrýndi leikkonuna Jennifer Aniston fyrir að hafa, eftir því sem Spheeris heldur fram, gefið henni kynlífstæki í þeim...
Árni og hliðarsjálf hans Ugla Tré flytja sig um set
📅 14.10.2026 👁️ 4
Árni og hliðarsjálf hans Ugla Tré flytja sig um set
„Jæja litla hreiðrið mitt í Grafarvogi komið á sölu. Uglan tekur sig til flugs og stefnir á Reykjanesið, eftir 16 ár í borginni,“ segir Árni Árnason, ...
Mynd af hinstu stundinni í rússíbananum í dreifingu – Fjölskyldan biðlar til almennings að hætta að dreifa
📅 14.10.2026 👁️ 4
Mynd af hinstu stundinni í rússíbananum í dreifingu – Fjölskyldan biðlar til almennings að hætta að dreifa
Maðurinn sem lést í rússíbanaslysinu í Georgíufylki í fyrradag var nýgenginn í samtök rússíbanaáhugafólks. Samfélagið er í molum og krefst aðgerða til...
„Ég fullyrði að það séu engir einkakaupasamningar í gangi“
📅 14.10.2026 👁️ 4
„Ég fullyrði að það séu engir einkakaupasamningar í gangi“
Andri Þór Guðmundsson, stjórnarformaður Beru móðurfélags Ölgerðarinnar, og fyrrum forstjóri Ölgerðarinnar til tveggja áratuga segir fyrirtækið alltaf ...
Why Zelensky's meeting with Burnham matters
📅 14.10.2026 👁️ 3
Why Zelensky's meeting with Burnham matters
Prime Minister Andy Burnham welcomed President Zelensky to Downing Street on Wednesday, as Ukraine's leader looks to shore up his European allies five...
Tekið að flæða að húsum í Vík
📅 14.10.2026 👁️ 4
Tekið að flæða að húsum í Vík
Nokkrar líkur eru á að sjór geti flætt yfir þjóðveg eitt austan við Vík í Mýrdal á háflóði í kvöld og því gæti þurft að loka honum. G. Pétur Matthíass...
Ólíklegt að flæði yfir þjóðveginn við Vík
📅 14.10.2026 👁️ 4
Ólíklegt að flæði yfir þjóðveginn við Vík
Ólíklegt þykir að sjór flæði yfir þjóðveg eitt austan við Vík í Mýrdal. Vegagerðin og björgunarsveitir voru viðbúnar því að veginum yrði lokað því öld...
Lentu í öldu­gangi við Reynisfjöru - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Lentu í öldu­gangi við Reynisfjöru - Vísir
Heiðrún Hauksdóttir, einnig þekkt sem Heidrunguide, var stödd í Reynisfjöru fyrr í dag þar sem töluverður öldugangur var. Hún náði þessu myndskeiði þa...
Starlink: Musk says US government may be behind slowdown of Ukraine drone speeds
📅 14.10.2026 👁️ 4
Starlink: Musk says US government may be behind slowdown of Ukraine drone speeds
Ukraine says Starlink access has improved but it is still facing speed limits which are disrupting its battlefield "missions".
Umfjöllun Kveiks hafi ekki komið á óvart
📅 14.10.2026 👁️ 4
Umfjöllun Kveiks hafi ekki komið á óvart
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir gríðarlega mikilvægt að markaðir séu opnir og að það sé ekki komið í veg fyrir að ný fyri...
Ozempic gerir óskunda í samskiptum mæðra og dætra
📅 14.10.2026 👁️ 4
Ozempic gerir óskunda í samskiptum mæðra og dætra
Þið hafið kannski heyrt um Ozempic-hár, -píku, -typpi, -andlit og fleira sem rekja má til aukaverkana eða óvæntra afleiðinga þessu vinsæla þyngdarstjó...
Gefur í skyn að banda­rísk stjórn­völd hafi sett tak­markanir á Úkraínu­menn - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Gefur í skyn að banda­rísk stjórn­völd hafi sett tak­markanir á Úkraínu­menn - Vísir
Fjallað var um það á Vísi í dag að úkraínskir hermenn hafi fundið fyrir takmörkunum sem felast í því að þegar móttökustöðvarnar nái tilteknum hraða sl...
Stigu trylltan dans á Saint Pete - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Stigu trylltan dans á Saint Pete - Vísir
Meðal annarra tónlistaratriða voru Herra hnetusmjör, Úlfur Úlfur, Elvar Orri og Steindi og Auddi en þeir síðastnefndu fengu Pétur til liðs við sig í s...
Skiptar skoðanir á Kveiksþættinum: „Var þetta stóra afhjúpunin? Klaustur-bar hvað!?“
📅 14.10.2026 👁️ 4
Skiptar skoðanir á Kveiksþættinum: „Var þetta stóra afhjúpunin? Klaustur-bar hvað!?“
„Ekki skiptir maður við bófa! Hvað verður um hátíðarblandið? Hvar er núna gamla (en alls ekki bragðgóða) Sanitas maltið, Thule appelsínið og Vallasdry...
Hríðarviðvaranir á Norðurlandi með kvöldinu
📅 14.10.2026 👁️ 4
Hríðarviðvaranir á Norðurlandi með kvöldinu
Búast má við talsverðri ofankomu sem hefur áhrif á færð og samgöngur á norðanverðu landinu fram á kvöld og inn í nóttina, segir Hera Guðlaugsdóttir ve...
Verkalýðsbaráttan er eilífðarverkefni segir fráfarandi forseti
📅 14.10.2026 👁️ 4
Verkalýðsbaráttan er eilífðarverkefni segir fráfarandi forseti
Forseti ASÍ og forsætisráðherra ræddu lærdóminn af kjarasamningunum í ávörpum við setningu þriggja daga þings Alþýðusambandsins í morgun. Báðir frambj...
Gleraugnaverslun fékk óvænta bótakröfu vegna myndbands á samfélagsmiðli - „Án nokkurs ásetnings til að hlunnfara listamanninn“
📅 14.10.2026 👁️ 4
Gleraugnaverslun fékk óvænta bótakröfu vegna myndbands á samfélagsmiðli - „Án nokkurs ásetnings til að hlunnfara listamanninn“
Eigendur gleraugnaverslunar sem barst krafa um bótagreiðslu, vegna notkunar á tónlist í myndbandi á samfélagsmiðli, leggja til að höfundalögum verði b...
„Ég sá bara upp í himininn upp um þaklúguna“
📅 14.10.2026 👁️ 4
„Ég sá bara upp í himininn upp um þaklúguna“
Þrjú þök fuku af húsum á Siglufirði í veðurofsanum sem gengur nú yfir mestallt landið. Þakið á heimili Karenar Birgisdóttur, er eitt þeirra sem fauk.H...
Viðbragðsáætlun virkjuð vegna mikillar ölduhæðar við Reynisfjöru
📅 14.10.2026 👁️ 4
Viðbragðsáætlun virkjuð vegna mikillar ölduhæðar við Reynisfjöru
Nokkuð hættulegar aðstæður mynduðust við Reynisfjöru í dag vegna veðurs og mikillar ölduhæðar, fyrr en spár gerðu ráð fyrir. Landeigendur höfðu virkja...
McCartney tjáir sig um helsta áhyggjuefni sitt varðandi fjórleikinn um Bítlana
📅 14.10.2026 👁️ 5
McCartney tjáir sig um helsta áhyggjuefni sitt varðandi fjórleikinn um Bítlana
Bítillinn Paul McCartney er ekki ánægður með hvernig hæð hans er framsett í væntanlegri fjögurra þátta kvikmynd Sam Mendes um Bítlana.„Við vorum allir...
What if you could turn off your algorithm? Australia is about to try
📅 14.10.2026 👁️ 1
What if you could turn off your algorithm? Australia is about to try
New legislation is being tabled in Australia's parliament on Thursday to force big tech to allow users to switch off algorithms which send them recomm...
Gekk berserksgang á heilsugæslustöð og hótaði læknum lífláti
📅 14.10.2026 👁️ 5
Gekk berserksgang á heilsugæslustöð og hótaði læknum lífláti
Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir síbrotamanni til 3. nóvember næstkomandi.
Sjúkratryggingar sitja áfram á samningnum: „Þetta er mjög furðulegt“
📅 14.10.2026 👁️ 5
Sjúkratryggingar sitja áfram á samningnum: „Þetta er mjög furðulegt“
Sjúkratryggingar Íslands hafa ekki afhent Rótinni aðgang að samningi sínum við SÁÁ líkt og stofnunin átti að gera samkvæmt úrskurði úrskurðarnefndar u...