Ríkis­stjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar - Vísir

Ríkis­stjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar - Vísir

Ríkis­stjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar - Vísir

„Ríkisstjórnin er í miklu veikari stöðu að hausti en hún var að vori. Þetta liggur alveg fyrir. Ríkisstjórnin hafði mjög sterka stöðu eftir að hún hóf sitt skeið og hefur bara haft mjög sterka stöðu og mikinn stuðning. Flokkarnir hafa mælst með ágætis fylgi,“ segir Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði.

Hann segir að staða stjórnarinnar hafi breyst verulega á síðustu mánuðum.

„Sumarið hefur orðið henni mjög erfitt. Þessi viðsnúningur, að snúa hagkerfinu af braut hárrar verðbólgu og vaxta, hefur ekki tekist. Það var helsta erindi stjórnarinnar að bæta kjör almennings og ná tökum á verðbólgunni og efnahagsmálunum í landinu.“

Ekki náð að uppfylla meginerindi stjórnarinnar

Verðbólga mælist nú 5,6 prósent en var 4,8 prósent þegar ríkisstjórnin tók við í desember 2024.

Meginvextir Seðlabankans eru átta prósent. Þeir voru 8,5 prósent við stjórnarmyndun og lækkuðu niður í 7,25 prósent á síðasta ári. Þeir hafa hins vegar verið hækkaðir þrívegis á þessu ári.

„Það hefur hreint ekki tekist og eiginlega bara snúist í andhverfu sína. Almenningur hefur ekki trú á efnahagsstefnu stjórnarinnar,“ segir Eiríkur.

Frá vinstri eru Inga Sæland, Kristrún Frostadóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Að ná tökum á verðbólgu og vöxtum var eitt helsta erindi ríkisstjórnarinnar. Könnun Gallup bendir þó til þess að almenningur hafi litla trú á árangrinum: 85 prósent þeirra sem tóku afstöðu töldu stjórnina hafa staðið sig illa í baráttunni við verðbólgu og 87 prósent í vaxtamálum.Viktor Freyr

Könnun Gallup fyrir Viðskiptablaðið styður að mikil óánægja ríki með árangurinn í baráttunni við verðbólgu og vexti.

Af þeim sem tóku afstöðu töldu 85 prósent ríkisstjórnina hafa staðið sig illa í baráttunni við verðbólgu. Þá töldu 87 prósent hana hafa staðið sig illa í vaxtamálum og við að stuðla að lægri vöxtum.

Seðlabankinn spáir þó að kaupmáttur ráðstöfunartekna heimila aukist um 1,6 prósent á árinu. 

Opinberar hækkanir hluti vandans

Þróun verðbólgu og vaxta ræðst ekki eingöngu af ákvörðunum ríkisstjórnarinnar. Seðlabankinn ákveður vexti sjálfstætt og ytri áföll hafa einnig áhrif á verðlag.

Seðlabankinn hefur þó ítrekað bent á þátt stjórnvalda og annarra opinberra aðila. Í yfirlýsingu peningastefnunefndar í ágúst sagði að aukning mældrar verðbólgu hefði „fyrst og fremst litast af hækkun opinberra gjalda og áhrifum stríðsátaka í Mið-Austurlöndum“.

Nefndarmenn bentu einnig á að opinber gjöld og gjaldskrár hefðu oft hækkað töluvert umfram 2,5 prósenta verðbólgumarkmiðið. Seðlabankastjóri hefur varað við sjálfvirkum hækkunum opinberra gjalda í takt við verðlag og sagt slíka sjálfvirkni geta viðhaldið verðbólgu.

Peningastefnunefnd Seðlabankans hefur beint sjónum að ákvörðunum stjórnvalda og bent á að opinber gjöld og gjaldskrár hafi oft hækkað töluvert umfram 2,5 prósenta verðbólgumarkmið bankans. Í ágúst sagði nefndin aukna verðbólgu fyrst og fremst hafa litast af hækkun opinberra gjalda og átökum í Mið-Austurlöndum.Vilhelm

Í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir að tiltekin krónutölugjöld ríkisins hækki um 5,2 prósent. Í frumvarpinu sjálfu segir að hækkunin sé í samræmi við þá spá Seðlabankans um verðbólgu í árslok 2026 sem lögð er til grundvallar frumvarpinu.

Þar er því miðað við spá um verðbólgu en ekki 2,5 prósenta verðbólgumarkmiðið. Nýjasta spá Seðlabankans, sem birt var í ágúst, gerir raunar ráð fyrir 5,7 prósenta meðalverðbólgu á síðasta fjórðungi ársins.

Hækkunin nær meðal annars til áfengis-, tóbaks- og nikótíngjalda, kolefnisgjalds, gistináttaskatts, innviðagjalds, bifreiðagjalds, útvarpsgjalds og gjalds í Framkvæmdasjóð aldraðra. Hún á að skila ríkissjóði 6,5 milljörðum króna. Kílómetragjaldið hækkar enn meira, eða um 15,9 prósent.

Frá vinstri eru Inga Sæland, Kristrún Frostadóttir, Daði Már Kristófersson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir við kynningu fjárlagafrumvarpsins. Anton Brink

Stjórnvöld hafa mótmælt því að hækkun ársverðbólgu fram til þessa sé fyrst og fremst drifin af opinberum gjöldum. Fjármálaráðuneytið segir mælikvarða sem undanskilja skatta og opinbera þjónustu nú nánast sýna sömu verðbólgu og almenna vísitalan. Flugfargjöld skýri nærri helming aukningar verðbólgu frá síðustu áramótum.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra viðurkenndi í ágúst að opinberar hækkanir hefðu getað verið minni.

„Hefðu þessar hækkanir getað verið minni? Eflaust hafa þær áhrif á verðbólguna,“ sagði Kristrún í samtali við fréttastofu.

„Þetta er reiðarslag“

Ofan á erfiðleikana í efnahagsmálum kom ósigur ríkisstjórnarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslunni um framhald viðræðna við Evrópusambandið.

Alls sögðu 52,8 prósent nei en 47,2 prósent já. Kjörsókn var 82,6 prósent.

Eiríkur segir forystumenn ríkisstjórnarinnar hafa reynt að gera niðurstöðuna að afmarkaðri afstöðu til spurningarinnar sem lögð var fyrir þjóðina. Pólitísk þýðing hennar sé mun meiri.

Frá vinstri eru Inga Sæland, Kristrún Frostadóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Eiríkur Bergmann segir forystumenn ríkisstjórnarinnar hafa reynt að afmarka þýðingu niðurstöðunnar við spurninguna sem lögð var fyrir þjóðina. Pólitísk þýðing atkvæðagreiðslunnar sé hins vegar mun meiri: stjórnin hafi farið fram á umboð til að hefja viðræður við Evrópusambandið að nýju en þjóðin gert hana afturreka.Viktor Freyr

„Það er ekkert hægt að orða þetta öðruvísi en að þetta sé reiðarslag. Forystumenn ríkisstjórnarinnar hafa reynt að segja að þetta hafi bara verið spurning sem var kastað fram, en það er ekki svo. Ríkisstjórnin fór fram á umboð til að taka upp umræður á ný og þjóðin gerði hana afturreka með það. Þetta er meiriháttar áfall.“

Stjórnin var sjálf ekki samstíga í málinu. Í viðtali við Vísi 28. ágúst sagðist Inga Sæland hafa kosið já. Hún sagði jafnframt að í það minnsta þrír þingmenn Flokks fólksins hygðust greiða atkvæði gegn tillögunni.

Eiríkur segir niðurstöðuna bætast við erfiða stöðu stjórnarinnar í efnahagsmálum.

„Þetta kemur beint ofan í erfiðleikana í efnahagsstjórninni og hefur búið til kvörn sem mylur undan stuðningnum við stjórnina.“

Gagnrýni úr ólíkum áttum

Fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2027 hefur sætt gagnrýni frá stjórnarandstöðu, verkalýðshreyfingu, atvinnurekendum, ferðaþjónustu og fjármálafyrirtækjum.

Samkvæmt frumvarpinu verður afkoma ríkissjóðs jákvæð um fimm milljarða króna, eða sem nemur 0,1 prósenti af landsframleiðslu. Aðhaldsaðgerðir nema 44,2 milljörðum króna en ný verkefni og útgjöld 28,8 milljörðum. Tekjubreytingar eiga samtals að skila 34,1 milljarði króna.

Á skuldabréfamarkaði hækkaði skammtímaverðbólguálag um rúmlega 0,1 prósentustig eftir að frumvarpið var kynnt. Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, sagði hreyfinguna skýrustu viðbrögð markaðarins við frumvarpinu.

Hann sagði gjaldahækkanirnar koma beint inn í verðbólgumælinguna í janúar og hafa áhrif til hækkunar á verðbólgu til skemmri tíma. Aðhald fjárlaganna geti þó dregið úr henni síðar.

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, segir frumvarpið „sleggju beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“. Hann gagnrýnir meðal annars hækkun opinberra gjalda og kílómetragjalds, breytingar á persónuafslætti og óbreytt heildarframlag til barnabóta.

Aðrir forystumenn verkalýðshreyfingarinnar hafa einnig gagnrýnt skiptingu byrðanna. Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, hefur tekið undir að jákvætt sé að stefna að hallalausum fjárlögum en segir kostnaðinn lenda á röngum hópum. Í samtali við RÚV sagði Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, að hún sæi engar aðgerðir í frumvarpinu sem liðkuðu fyrir því að kjarasamningar héldu. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, sagði frumvarpið koma illa út fyrir láglaunafólk, sérstaklega barnafjölskyldur.

Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og fyrrverandi fjármálaráðherra, segir boðaðar skattahækkanir senda slæm skilaboð inn í kjaraviðræður og draga úr getu fyrirtækja til fjárfestinga og verðmætasköpunar.

Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir frumvarpið reiðarslag fyrir greinina. Hann telur níu milljarða króna vera sótta til ferðaþjónustunnar og fjárhæðina nálgast tíu til ellefu milljarða þegar hækkun kílómetragjaldsins er talin með.

Bankaskatturinn á að hækka um 75 prósent og skila ríkissjóði sex milljörðum króna til viðbótar. Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu hafa sagt áformin valda sárum vonbrigðum og telja sértæka skatta á fjármálafyrirtæki geta aukið vaxtamun.

Formenn stjórnarandstöðuflokkanna hafa einnig gagnrýnt skatta- og gjaldahækkanir og efast um að forsendur frumvarpsins haldi.

Gagnrýnin kemur þannig úr mörgum áttum en forsendur hennar eru ólíkar. Verkalýðsfélög beina sjónum að áhrifunum á launafólk og kjarasamninga en atvinnurekendur og einstakar atvinnugreinar gagnrýna auknar álögur á fyrirtæki.

Ríkisstjórnin segir á móti að hallalaus fjárlög dragi úr lánsfjárþörf ríkisins, minnki eftirspurn og skapi skilyrði fyrir lægri verðbólgu og vexti. Ekki sé hægt að stöðva langvarandi hallarekstur án erfiðra ákvarðana.

Katrín Ólafsdóttir, dósent í hagfræði við Háskólann í Reykjavík, hefur jafnframt sagt frumvarpið í heild hvorki ýta undir né draga úr verðbólgu, þótt hækkanir opinberra gjalda hafi komið henni á óvart.

Þúsundir krefjast stjórnarslita

Pólitískur þrýstingur á stjórnina birtist einnig utan Alþingis.

Tæplega 6.900 manns höfðu um hádegi 9. september skrifað undir áskorun þar sem þess er krafist að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir segi af sér, Viðreisn slíti ríkisstjórnarsamstarfinu og boðað verði til kosninga.

Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, hefur vísað áskoruninni á bug. Hún segir undirritaða vera minnihluta þjóðarinnar og hefur kallað söfnunina vandræðalega tilraun til að veikja Þorgerði Katrínu.

Þá hefur verið boðað til mótmæla undir yfirskriftinni „Fellum þessa ríkisstjórn“ á Austurvelli 10. október. Samanlagt höfðu nærri fjögur þúsund manns lýst áhuga á viðburðinum eða boðað komu þegar síðast var kannað. Þar af höfðu 376 boðað komu.

Á myndum sem birtar hafa verið á viðburðarsíðunni má meðal annars sjá skilti þar sem kílómetragjaldinu er mótmælt.

Í fjárlagafrumvarpinu er boðað að kílómetragjaldið hækki um 15,9 prósent. Gjaldið hefur sætt gagnrýni en markmiðið um að tekjur af ökutækjum nemi aftur 1,7 prósentum af landsframleiðslu var einnig að finna í áætlunum fyrri ríkisstjórnar.Vísir/Anton Brink

Hugmyndin um að færa skattheimtu af eldsneyti yfir á ekna kílómetra er þó eldri en núverandi ríkisstjórn. Í fjármálaáætlun fyrri ríkisstjórnar fyrir árin 2025 til 2029, sem kynnt var vorið 2024, var stefnt að því að heildartekjur ríkisins af ökutækjum og eldsneyti næðu 1,7 prósentum af landsframleiðslu árið 2027. Viðmiðið byggði á meðalhlutfalli teknanna á árunum 2010 til 2017.

Núverandi ríkisstjórn hefur haldið þessu markmiði. Í fjárlagafrumvarpinu eru tekjur af ökutækjum og eldsneyti áætlaðar 89 milljarðar króna á næsta ári, eða 1,6 prósent af landsframleiðslu. Hækkun kílómetragjaldsins um 15,9 prósent er liður í að færa heildartekjurnar nær 1,7 prósenta markmiðinu. Markmiðið tekur til allra tekna af ökutækjum og eldsneyti, ekki kílómetragjaldsins eins og sér.

Samfylkingin heldur velli

Þrátt fyrir áföllin er staða stjórnarflokkanna ekki öll á einn veg.

Í ágústkönnun Gallup mældist Samfylkingin með 29,6 prósenta fylgi og var áfram stærsti flokkur landsins. Sjálfstæðisflokkurinn mældist með 26,8 prósent, Miðflokkurinn 15,6, Viðreisn 9,7, Framsóknarflokkurinn 5,5, Flokkur fólksins 4,8, Vinstri græn 3,6, Sósíalistaflokkurinn 2,4 og Píratar 1,9 prósent.

Samfylkingin mælist tæpum níu prósentustigum yfir kjörfylgi sínu frá 2024. Viðreisn og Flokkur fólksins hafa hins vegar tapað verulegu fylgi. Samanlagt fylgi stjórnarflokkanna mældist 44,1 prósent, samanborið við rúm 50 prósent í kosningunum.

Ríkisstjórnin hefur 35 þingmenn en nýtur einnig stuðnings Guðmundar Inga Kristinssonar og hefur því 36 atkvæði á Alþingi haldist stuðningur hans óbreyttur. Eiríkur Bergmann segir mótvindinn hafa aukist en sér enn ekkert sem bendir til yfirvofandi stjórnarslita.Viktor Freyr

Könnunin var gerð dagana 4. til 31. ágúst og fór því að langmestu leyti fram áður en niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar lá fyrir.

Stjórnarflokkarnir hafa nú 35 þingmenn. Guðmundur Ingi Kristinsson, sem sagði sig úr Flokki fólksins í apríl, hefur hins vegar lýst yfir áframhaldandi stuðningi við ríkisstjórnina. Hún hefur því 36 atkvæði á Alþingi haldist stuðningur hans óbreyttur.

Eiríkur segir mótvindinn hafa aukist og erfiðleikana vera meiri. Hann sjái þó engin merki um yfirvofandi stjórnarslit.

„Hvort hún falli sé ég ekkert enn þá sem bendir til þess að þetta muni leiða til þess. Erfiðleikarnir eru meiri og mótvindurinn sterkari. En ég hef ekki séð neitt sem bendir til þess að það sé að bresta á flótti innan raða stjórnarinnar.“

#eftir #mun #ríkisstjórnin #stöðu #veikari


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262932701d/rikisstjornin-i-mun-veikari-stodu-eftir-erfitt-sumar

📰 Aðrar fréttir

540 stríðsföngum sleppt
📅 26.10.2026 👁️ 0
540 stríðsföngum sleppt
Úkraína og Rússland skiptust á 540 stríðsföngum, eða 270 af hvoru þjóðerni, á föstudag. Meðal fanga sem sleppt var úr haldi Rússa voru 261 hermaður og...
Brazil elections: Lula secures fourth term after dramatic comeback
📅 26.10.2026 👁️ 3
Brazil elections: Lula secures fourth term after dramatic comeback
President Lula has pulled of a surprise win, but he will face a hostile Congress and a polarised country,
Lula forseti í fjórða sinn
📅 26.10.2026 👁️ 3
Lula forseti í fjórða sinn
Luiz Inacio Lula da Silva, sitjandi forseti og leiðtogi Verkamannaflokksins, er sigurvegari forsetakosninganna í Brasilíu, en síðari umferð kosningann...
Healey’s Budget needs to sustain the stronger economy through gathering clouds
📅 26.10.2026 👁️ 3
Healey’s Budget needs to sustain the stronger economy through gathering clouds
The economic is positive now but come January things could become trickier for the Labour government
Umhverfisspjöll Google vekja reiði í Finnlandi
📅 26.10.2026 👁️ 3
Umhverfisspjöll Google vekja reiði í Finnlandi
Vessandi forarsvað þar sem áður stóðu 250.000 tréSkammt utan við smábæinn Muhos í norðanverðu Finnlandi, spottakorn frá Oulu, er um 330 hektara, vandl...
Machado komin aftur til heimalandsins
📅 26.10.2026 👁️ 3
Machado komin aftur til heimalandsins
Leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Venesúela og handhafi friðarverðlauna Nóbels, María Corina Machado, er komin til heimalandsins eftir tæpt ár í útlegð....
Nicki Minaj joins Trump onstage at Michigan rally
📅 25.10.2026 👁️ 0
Nicki Minaj joins Trump onstage at Michigan rally
The Super Bass singer is the latest big name to campaign in Michigan, where a tight Senate race is playing out ahead of the 3 November midterms.
Stukku fram af kletti ofan í Goða­foss - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 4
Stukku fram af kletti ofan í Goða­foss - Vísir
Í texta við myndbandið segir að atvikið hafi átt sér stað 20. september síðastliðinn og að piltarnir hafi stokkið úr um 40 feta hæð, eða rúmlega tólf ...
Malbiksviðgerðir á Arnarnesvegi
📅 25.10.2026 👁️ 5
Malbiksviðgerðir á Arnarnesvegi
Stefnt er að malbiksviðgerðum á Arnarnesvegi mánudaginn 26. október, milli klukkan 10:00 og 16:00. Búast má við einhverjum töfum á umferð á meðan á fr...
Funding set to double for plan to get rough sleepers off streets by Christmas
📅 25.10.2026 👁️ 5
Funding set to double for plan to get rough sleepers off streets by Christmas
Burnham made ending rough sleeping his first pledge when entering Downing Street in July.
„Noregur sökkar“ - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 4
„Noregur sökkar“ - Vísir
Trump er tíðrætt um einmitt það og ljóst að norska þjóðin hefur ekki verið í miklu uppáhaldi hjá Bandaríkjaforseta frá því að tilkynnt var um að Nóbel...
Deeply divided Israel braces for pivotal election
📅 25.10.2026 👁️ 5
Deeply divided Israel braces for pivotal election
After three years of regional war, this is a battle Israel always knew was coming, writes Lucy Williamson.
Spotify uploads Irish lyrics for Dolly Parton's Welsh Jolene version
📅 25.10.2026 👁️ 4
Spotify uploads Irish lyrics for Dolly Parton's Welsh Jolene version
The single is the second posthumous release from Parton - who was of Welsh descent.
Trump eftir Nóbelsverðlaunin: „Noregur er í raun orðinn skítaland“
📅 25.10.2026 👁️ 4
Trump eftir Nóbelsverðlaunin: „Noregur er í raun orðinn skítaland“
Donald Trump Bandaríkjaforseti kallaði Noreg skítaland á kosningafundi í McMorran Place í Port Huron í Michigan nú í dag, sunnudaginn 25. október. Han...
Vučić játar ó­sigur - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 4
Vučić játar ó­sigur - Vísir
Serbneski framfaraflokkurinn undir forystu Vučić hefur farið með stjórn landsins í hálfan annan áratug og Vučić sjálfur flakkað á milli embættis forsæ...
Suðurlandsvegi lokað við Rauðavatn annað kvöld
📅 25.10.2026 👁️ 4
Suðurlandsvegi lokað við Rauðavatn annað kvöld
Kafla af Suðurlandsvegi verður lokað á annað kvöld, frá klukkan átta til miðnættis. Þetta kemur fram á síðu Vegagerðarinnar.Stefnt er að malbiksviðger...
Manchester United & Michael Carrick: Air of inevitability around manager's future but owners' problems far bigger
📅 25.10.2026 👁️ 4
Manchester United & Michael Carrick: Air of inevitability around manager's future but owners' problems far bigger
Manchester United's fans sang their support for Michael Carrick during the 3-0 home defeat by Bournemouth, but voiced their opposition to virtually ev...
Segir Við­reisn í krísu og úti­lokar ekki að hætta stuðningi - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 4
Segir Við­reisn í krísu og úti­lokar ekki að hætta stuðningi - Vísir
Jón sagði sig úr þingflokki Viðreisnar fyrr í mánuðinum en er áfram meðlimur í flokknum. Hann gerði skriflegt samkomulag við þingflokkinn um að styðja...
Serbia's Vučić concedes election defeat to student-led protest movement
📅 25.10.2026 👁️ 4
Serbia's Vučić concedes election defeat to student-led protest movement
The country's populist right-wing leader of 12 years says it is "clear" hisb Serbian Progressive Party (SNS) has lost.
Serbia's veteran ruler Vučić concedes election to student-led protest movement
📅 25.10.2026 👁️ 4
Serbia's veteran ruler Vučić concedes election to student-led protest movement
The populist right-wing leader of 12 years says it is "clear" his party has lost the vote billed as a referendum on the country's future.
Vučić viðurkennir ósigur í Serbíu
📅 25.10.2026 👁️ 4
Vučić viðurkennir ósigur í Serbíu
Aleksandar Vučić, fyrrverandi forseti Serbíu, viðurkennir ósigur í þingkosningunum sem fóru fram í landinu í dag. Hann segir fjöldahreyfingu stúdenta ...
Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 4
Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić - Vísir
Kjörstöðum var lokað klukkan átta að staðartíma í kvöld. Klukkustund fyrr höfðu 67,6 prósent kjósenda þegar greitt atkvæði samkvæmt umfjöllun Reuters....
Gljúfrabúi veitir Seljalandsfossi samkeppni
📅 25.10.2026 👁️ 4
Gljúfrabúi veitir Seljalandsfossi samkeppni
Fossinn Gljúfrabúi nýtur vaxandi vinsælda meðal erlendra ferðamanna, en áður var fossinn vel falin perla sem fáir utan landsteinanna vissu af.Göngum u...
Ekki síðasti alvarlegi netöryggisgallinn sem getur valdið meiriháttar tjóni
📅 25.10.2026 👁️ 4
Ekki síðasti alvarlegi netöryggisgallinn sem getur valdið meiriháttar tjóni
Fleiri alvarlegir öryggisgallar, eins og sá sem varað var við í PHP-forritunarmálinu í vikunni, eiga eftir að koma í ljós. Þetta segir Ingólfur Andri ...
Frambjóðendur í Brasilíu vilja halda kjörstöðum opnum lengur
📅 25.10.2026 👁️ 5
Frambjóðendur í Brasilíu vilja halda kjörstöðum opnum lengur
Kjörstöðum í Brasilíu hefur verið lokað. Önnur umferð forsetakosninga fór fram í landinu í dag.Samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum eru frambjóðendurnir, ...
Kjörstaðir opnir lengur í Brasilíu
📅 25.10.2026 👁️ 4
Kjörstaðir opnir lengur í Brasilíu
Kjörstöðum í Brasilíu verður haldið opnum tveimur klukkustundum lengur en til stóð. Þeir áttu að loka klukkan fimm að staðartíma en verða opnir til kl...
50+: Að hætta að vera þjónustu­mið­stöð full­orðinna barna - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 4
50+: Að hætta að vera þjónustu­mið­stöð full­orðinna barna - Vísir
En þetta tveggja áratuga starf sem hefur falið í sér að vera framkvæmdastjóri, skutlari, fjármálastjóri, tilfinningalegur öryggispúði og svo mætti len...
Garðfuglakönnun yfir vetrarmánuðina hafin
📅 25.10.2026 👁️ 5
Garðfuglakönnun yfir vetrarmánuðina hafin
Árleg garðfuglakönnun félagsins Fuglaverndar hófst í dag og stendur til 24. apríl. Kannanir hófust 1994 og tilgangur þeirra er að afla upplýsinga um f...
Leikur á hnífs­egg í Brasilíu - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 4
Leikur á hnífs­egg í Brasilíu - Vísir
Kosningarnar eru hnífjafnar samkvæmt síðustu skoðanakönnunum og fara fram í skugga mikillar pólitískrar skautunar sem birtist einna skýrast í því að f...
Fagur söngur fljótandi dívu dró marga að Reykjavíkurtjörn
📅 25.10.2026 👁️ 5
Fagur söngur fljótandi dívu dró marga að Reykjavíkurtjörn
Hátíðin var sett á kaffihúsi í miðbænum í dag. Því næst var gengið á milli staða og viðstaddir fengu að njóta óperu á hverjum stað. Óperudagar standa ...
Kjörstöðum lokað í Serbíu
📅 25.10.2026 👁️ 5
Kjörstöðum lokað í Serbíu
Kjörstöðum í Serbíu hefur verið lokað og búast má við fyrstu tölum eftir um tvær klukkustundir. Þingkosningar voru í landinu í dag og allt bendir til ...
Er hægt að treysta aftur eftir fram­hjá­hald? - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 4
Er hægt að treysta aftur eftir fram­hjá­hald? - Vísir
Sæl og takk fyrir góða og mikilvæga spurningu. Það þarf ekki endilega að rjúfa öll tengsl við manneskjuna sem framhjáhaldið átti sér stað með til þess...
Eðlilegt að fólki misbjóði dómur Landsréttar
📅 25.10.2026 👁️ 4
Eðlilegt að fólki misbjóði dómur Landsréttar
Meira en átta þúsund undirskriftir hafa safnast á undirskriftalista þar sem þess er krafist að gerð verði óháð úttekt á meðferð kynferðis- og kynbundi...
Letter making claims about Meghan's father written by his ex-wife, BBC understands
📅 25.10.2026 👁️ 4
Letter making claims about Meghan's father written by his ex-wife, BBC understands
Roslyn Loveless, who has since died, divorced Meghan's father in 1975. Meghan said she had been informed about the "disturbing allegations" in 2018.
Long queues after power surge at Stansted Airport
📅 25.10.2026 👁️ 5
Long queues after power surge at Stansted Airport
A passenger says she was trapped in a corridor at the airport for 90 minutes.
Stjórnar­skráin trompi alltaf bókun 35 - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 4
Stjórnar­skráin trompi alltaf bókun 35 - Vísir
„[Bókun 35] verður aldrei beitt þannig að hún víki til hliðar stjórnarskránni. Stjórnarskráin mun alltaf trompa hana,“ sagði Hafsteinn í Sprengisandi ...
Mikill léttir að innviðaráðherra ætli að bæta fjármagni í Loftbrú
📅 25.10.2026 👁️ 4
Mikill léttir að innviðaráðherra ætli að bæta fjármagni í Loftbrú
Þingmaður Samfylkingar í Norðausturkjördæmi segir mikinn létti að innviðaráðherra ætli að bæta við fjármagni í Loftbrú. Sú upphæð sem hann hafi kynnt ...
Kartöflugeymslu breytt í lista- og menningarmiðstöð á Selfossi
📅 25.10.2026 👁️ 4
Kartöflugeymslu breytt í lista- og menningarmiðstöð á Selfossi
Kartöflugeymslan var tekin í notkun 1952 og var notuð í tugi ára. Þar gátu íbúar geymt kartöflur sínar yfir veturinn. Húsið, sem kallast í dag Langhús...
Board of Deputies of British Jews declares Greens to be racist party
📅 25.10.2026 👁️ 4
Board of Deputies of British Jews declares Greens to be racist party
The Jewish body's vote comes in response to the Green Party passing a "Zionism is racism" policy motion.
Fyrrverandi kennari í Síðuskóla sakar samstarfsfólk um einelti vegna skoðanaskrifa – segir nemendur hafa blandast í deiluna
📅 25.10.2026 👁️ 4
Fyrrverandi kennari í Síðuskóla sakar samstarfsfólk um einelti vegna skoðanaskrifa – segir nemendur hafa blandast í deiluna
Fyrrverandi kennari í Síðuskóla sakar samstarfsfólk um einelti vegna skoðanaskrifa – segir nemendur hafa blandast í deiluna Fréttin25. október 2026Inn...
Musk segir SpaceX hafa takmarkað Starlink í Úkraínu
📅 25.10.2026 👁️ 4
Musk segir SpaceX hafa takmarkað Starlink í Úkraínu
Musk segir SpaceX hafa takmarkað Starlink í Úkraínu Úkra­ínskur varn­ar­mála­ráð­herra segir teng­ing­una nú stöðuga. Elon Musk segir að her lands­ins...
Machado snýr heim eftir nær árs út­legð - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 4
Machado snýr heim eftir nær árs út­legð - Vísir
„Ég er hér. Með ykkur,“ skrifaði Machado á samfélagsmiðlum í dag. Bandamaður hennar, Edmundo González Urrutia, sem bauð sig fram gegn Nicolás Maduro í...
Voru mannfórnir hluti af útförum egypskra konunga?
📅 25.10.2026 👁️ 4
Voru mannfórnir hluti af útförum egypskra konunga?
Lengi hefur verið deilt um hvort Egyptar hafi stundað mannfórnir við útfarir fyrstu konunga sinna.Niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til þess að þjón...
Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell
📅 25.10.2026 👁️ 4
Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell
Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell Dularfullt geimfarGeimfar sem sást í vesturhluta Bandaríkjanna á þessu ári Mynd: Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjan...
Linda Dröfn og Tótla sjóð­heitt par - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 4
Linda Dröfn og Tótla sjóð­heitt par - Vísir
Linda Dröfn, sem er 51 árs, hefur stýrt Kvennaathvarfinu í rúm fjögur ár en nýtt glæsilegt húsnæði athvarfsins var opnað fyrir nokkrum vikum. Í desemb...
Man killed by falling tree as Storm Boelo leaves 160,000 properties without power
📅 25.10.2026 👁️ 5
Man killed by falling tree as Storm Boelo leaves 160,000 properties without power
An amber wind warning will remain until Sunday evening as severe weather continues to batter the UK.
Two men killed by falling trees as Storm Boelo leaves 160,000 properties without power
📅 25.10.2026 👁️ 5
Two men killed by falling trees as Storm Boelo leaves 160,000 properties without power
An amber wind warning has now expired after severe weather sweeps across the UK.
Two men killed by falling trees as Storm Boelo leaves 90,000 properties without power
📅 25.10.2026 👁️ 2
Two men killed by falling trees as Storm Boelo leaves 90,000 properties without power
An amber wind warning has now expired after severe weather sweeps across the UK.
Hefur ekki áhyggjur af áhrifum á löggæslu á landsbyggðinni
📅 25.10.2026 👁️ 3
Hefur ekki áhyggjur af áhrifum á löggæslu á landsbyggðinni
Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi lögreglumaður, segir viðbúið að skiptar skoðanir séu á fyrirætlunum. Gagnrýnisraddirnar séu þó ek...
Manchester United - Michael Carrick future as manager under major threat
📅 25.10.2026 👁️ 4
Manchester United - Michael Carrick future as manager under major threat
Michael Carrick's future as Manchester United manager is under major threat following the home loss to Bournemouth on Sunday.