Oddvitar ríkisstjórnarinnar, Kristún Frostadóttir forsætisráðherra, Inga Sæland menntamálaráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra lögðu áherslu á það á blaðamannafundi sínum í dag að niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar í gær yrði virt. Ekkert áframhald yrði á aðildarviðræðum við Evrópusambandið en lögð áhersla á að styrkja EES-samstarfið. Lýstu þær því allar yfir að verkefnum ríkisstjórnarinnar yrði haldið áfram en næstu skref varðandi aðildarumsóknina frá 2009 yrðu ræddar við utanríkismálanefnd Alþingis.
Ríkisstjórnin heldur ótrauð áfram - Frekari aðildarviðræður við ESB útilokaðar - „Áfram gakk“