Mannréttindadómstóll Evrópu klofnaði í afstöðu sinni til þess hvort brotið hefði verið á rétti Lárusar Welding til sanngjarnra réttarhalda þegar skipaður var sérfróður meðdómandi í réttarhöldum yfir honum við Héraðsdóm Reykjavíkur.
Lárus, sem var forstjóri Glitnis, fékk fimm ára dóm í Héraðsdómi fyrir sinn þátt í Stím-málinu. Sá dómur var síðar staðfestur í Landsrétti. Lárus taldi að Sigríður Hjaltested, sem var skipuð sérfróður meðdómandi, væri vanhæf þar sem fyrrverandi eiginmaður hennar sat fundi áhættunefndar Glitnis. Því höfnuðu bæði Héraðsdómur Reykjavíkur og Hæstiréttur á sínum tíma.
Lárus leitaði til Mannréttindadómstóls Evrópu. Hann taldi að með skipun sérfróðs meðdómanda hefði honum ekki verið tryggð réttlát málsmeðferð.
Dómur Mannréttindadómstóls Evrópu birtist í morgun. Íslenska ríkið er þar sýknað af kröfu Lárusar. Dómstóllinn segir að sjálfstæði dómstólsins hafi ekki verið stefnt í hættu og að ekki hafi hallað á Lárus í málsmeðferðinni.
Ekki voru þó allir dómarar á eitt sáttir. Fjórir sýknuðu ríkið. Þrír dómarar skiluðu séráliti. Þeir sögðu að sjálfstæði dómstólsins og hlutlægni hefði ekki verið tryggð með skipun sérfróðs meðdómanda. Þetta sögðu þeir að hefði ekki aðeins haft áhrif á niðurstöðu héraðsdóms heldur líka æðri dómstiga.