Evrópusambandið hefur sagt þær rýmingaraðgerðir sem ráðist var í þegar á fjórða hundrað þúsund manns þurftu að yfirgefa heimili sín í Frakklandi og á Spáni í júlí vera einar þær umfangsmestu sem ráðist hefur verið í í álfunni.
Breska ríkisútvarpið (BBC) greinir einnig frá því í umfjöllun sinni að eldarnir hafi valdið meiri skemmdum og skaða í Frakklandi á þessu ári en nokkurn tímann frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar.
Fjöldi fólks dæmdur í fangelsi
Hitabylgja sem reið yfir álfuna hafi án efa spilað inn í en ríkisstjórn Frakklands virðist staðráðin í því að dæma fólk fyrir að hafa valdið eldunum.
BBC greinir frá því að innanríkisráðuneytið hafi þegar tilkynnt um fjögurhundruð og tuttugu handtökur á fólki sem er sakað um að hafa kveikt eldana, annaðhvort af ásetningi eða óviljandi. Þar á meðal eru hundrað sextíu og sex undir lögaldri.
Í einu tilviki sé 23 ára gamall maður sakaður um að hafa vísvitandi kveikt tíu elda á fimm dögum á í suðausturhluta landsins en hann á yfir höfði sér 15 ára fangelsi og gríðarlega háa sekt ef hann verður sakfelldur.
Virðist óhóflegt
Mörg önnur mál hafa verið tekin fyrir og dómur fallið strax, eins og í tilfelli manns sem hlaut þriggja ára fangelsisdóm fyrir að kveikja þrjá elda nýlega í Raon-L'Étape-skóginum á Vosges-svæðinu.
„Aðeins nokkrir fermetrar af gróðri urðu að reyk,“ sagði í frétt dagblaðsins L'Est Républicain um málið.
Þá hafa heimilislaus maður og einstaklingur með alvarlega einhverfu verið dæmdir í fangelsi fyrir að henda frá sér sígarettustubbum, er fram kemur í umfjöllun BBC.
„Ég var undrandi á fjölda handtaka, þetta virðist óhóflegt,“ er haft eftir Muriel Gestas, lögmanni sem hafi verið málsvari nokkurra sem sakaðir eru um íkveikju, þar á meðal tveggja slökkviliðsmanna. Hún er sögð efast um að mörg málanna muni leiða til sakfellingar.
Þjóðin verði að standa saman
Saksóknari í Bordeaux, Renaud Gaudeul, sagði við franska miðillinn Le Monde að hörð nálgun væri réttlætanleg miðað við núverandi aðstæður.
„Skilyrði fyrir ákæru um að stofna lífi í hættu eru uppfyllt fyrir þá sem henda sígarettustubbi eða kveikja upp í grilli á skógi vöxnum svæðum. Það þarf aðeins örlítinn neista til að kvikni í,“ hefur blaðið eftir honum.
Emmanuel Macron forseti Frakklands hafi sagt að gagnrýni eigi ekki að vera í fyrirrúmi á stundu sem þessari.
„Við verðum að endurgróðursetja og endurbyggja skóg því við verðum að aðlagast því sem loftslagsbreytingar hafa í för með sér,“ er haft eftir honum þegar hann tjáði sig um málið í vikunni. „Á meðan verður þjóðin að standa saman.“