Sífellt færri reykja daglega en vinsældir nikótínpúða hafa aukist síðustu ár. Þeir eru vinsælli meðal karla en kvenna en fleiri konur en karlar nota rafrettur. Reyklausi dagurinn er í dag. Reykingar eru víða á undanhaldi og sífellt færri reykja daglega en Alþjóðaheilbrigðismálastofnun hefur áhyggjur af tóbaksnotkun ungmenna, sem er einna mest í Evrópu.
Tæplega 5% Íslendinga sögðust reykja daglega í tóbakskönnun Gallup í fyrra. Hlutfallið hefur lækkað statt og stöðugt síðasta áratug. Það var 10,2% árið 2016. Ungu fólki sem reykir daglega hefur á sama tíma fækkað úr 8,6% í 2,4% og flestir sem reykja daglega eru á aldrinum 55 til 66 ára, eða 9,2%.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur að undanförnu vakið sérstaka athygli á síauknum vinsældum tóbaksvara annarra en sígarettna. Hún varaði um miðjan mánuð við útbreiddri notkun nikótínpúða á heimsvísu og kallaði eftir reglugerðum til að koma í veg fyrir að ungt fólk noti nikótínpúða.
Nikótínpúðar vinsælir meðal ungra karla
Þeim sem nota nikótínpúða daglega hér á landi fækkaði lítillega á síðasta ári en hlutfallið hefur verið í kringum 11% síðustu ár. Yngra fólk er almennt líklegra en eldra til að nota nikótínpúða daglega en munur milli hópa undir 55 ára er lítill.
Nikótínpúðar eru töluvert vinsælli meðal karla en kvenna. Í fyrra notuðu 14,6% karla nikótínpúða á hverjum degi á móti 7,8% kvenna. Þeim fækkaði þó örlítið milli ára á meðan konum fjölgaði lítillega.
Álíka margir notuðu rafrettur á hverjum degi í fyrra og undanfarin ár, eða í kringum 5%. Þær eru vinsælli meðal kvenna en karla en munurinn hefur aðeins verið nokkur prósentustig síðustu þrjú ár og fyrir það var hlutfallið nokkuð jafnt.
Fólk á aldrinum 35 til 44 ára notar rafrettur einna mest. 8% þeirra notuðu rafrettur daglega í fyrra, svipað og undanfarin ár. Yngra fólk virðist hafa dregið úr notkun rafretta. Hlutfall 18 til 34 ára fór úr 76% árið 2022 í 5,9% í fyrra.
Tóbaksnotkun táninga áhyggjuefni
Ísland er í 19. sæti á lista Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar yfir rafrettunotkun á heimsvísu. Finnar nota meira tóbak almennt en Íslendingar meðal Norðurlandaþjóða og Finnar og Danir reykja meira en Íslendingar.
Tóbaksnotkun er einna mest í Evrópu og Alþjóðaheilbrigðismálastofnun segir aukna tóbaksnotkun ungmenna vega þungt. Fjórar milljónir evrópskra táninga nota tóbaksvörur, einna helst rafrettur, og stofnunin segir mikla aukningu hjá stúlkum 13 til 15 ára vera mikið áhyggjuefni.