Bandaríska fulltrúadeildin samþykkti í gærkvöld tillögu um frekari stuðning við Úkraínu og auknar þvingunaraðgerðir gegn Rússlandi.
226 þingmenn studdu tillöguna en 195 voru mótfallnir. 18 repúblikanar greiddu atkvæði með tillögunni. Það þykir til marks um aukna óþolinmæði meðal samflokksmanna Bandaríkjaforseta í garð nálgunar hans að friðarumleitunum.
Þrátt fyrir að repúblikanar séu í meirihluta í fulltrúadeildinni þá er þetta í annað sinn í vikunni sem hún samþykkir tillögu sem gengur gegn áherslum Bandaríkjaforseta í utanríkismálum.
Tillagan felur meðal annars í sér að Bandaríkin veiti Úkraínu allt að átta milljarða dala stríðslán. Þá er lagt til að Bandaríkin styrki Úkraínu um einn milljarð dala. Féð myndi þá renna til varnarmála og enduruppbyggingar.
Ef svo ólíklega vill til að öldungadeildin samþykki tillöguna þykir næsta víst að Trump beiti neitunarvaldi gegn henni.
Í gær birti Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu opið bréf til Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta. Þar óskaði hann eftir því að leiðtogarnir myndu funda augliti til auglitis til að ræða um endalok stríðsins.
Bandaríkjaforseti tók þessari tillögu Zelenskys fagnandi en sagði að bæði Rússland og Úkraína þyrftu að gera málamiðlanir svo hægt væri að koma á friði milli landanna.