Rekinn úr hernum eftir 43 ára þjónustu

Rekinn úr hernum eftir 43 ára þjónustu

Rekinn úr hernum eftir 43 ára þjónustu

Rekinn úr hernum eftir 43 ára þjónustu

Frederik Hansen, sem er um sextugt, gekk ungur til liðs við danska herinn og hefur starfað þar að segja má allan sinn aldur. Hann hefur margsinnis verið sendur til átakasvæða, meðal annars Kosovo og Afganistan. Hann hefur fengið margar viðurkenningar fyrir „tro tjeneste i Hæren“ eins og það heitir og í september í fyrra fékk hann sérstaka viðurkenningu (egeblad af guld) fyrir 40 ára dygga þjónustu, þremur vikum áður en hann fékk bréfið áðurnefnda.

Öryggisvottun

Frederik HansenHjónabandið kostaði hann ferilinn.

Frederik Hansen hefur allt frá árinu 1982 fengið svonefnda öryggisvottun (sikkerhedsgodkendelse) frá þeirri deild Leyniþjónustu danska hersins sem fer með þau mál. Allir fastráðnir hermenn og margir aðrir starfsmenn hersins þurfa að fá slíka vottun. Til eru nokkrir flokkar öryggisvottunar eftir því hvaða stöðu viðkomandi gegnir innan hersins. Ekki eru fastlagðar reglur um tímalengd öryggisvottunar.

Verði breyting á stöðu einstaklings sem gegnir þjónustu ber honum að tilkynna slíkt til „vottunardeildarinnar“ sem þá ákveður hvort gera þurfi nýja áreiðanleikaskýrslu og útbúa nýja öryggisvottun.

Eiginkonan fædd í Rússlandi

Árið 2011 gekk Frederik Hansen í hjónaband. Þau hjónin búa á Jótlandi. Eins og reglurnar gera ráð fyrir tilkynnti Frederik Hansen „vottunardeildinni“ um ráðahaginn á sínum tíma og fékk engar athugasemdir. Hann fékk öryggisvottun árið 2014 og aftur árin 2018 og 2022, en 3. október í fyrra breyttist allt.

Í bréfinu sem Frederik Hansen fékk þann dag stóð skýrum stöfum að hann gæti ekki fengið öryggisvottun. Til stóð að Frederik Hansen myndi skipta um starf innan hersins og þá þarf nýja öryggisvottun. Synjunin kom Frederik Hansen á óvart og hann kvartaði til Leyniþjónustu hersins og varnarmálaráðuneytisins, en það breytti engu. Í febrúar síðastliðinn fékk hann uppsagnarbréf, í því segir að myndast hafi alvarleg hætta á njósnum og samstarfi, sú hætta stafi frá erlendum leyniþjónustum. Þótt það sé ekki sagt berum orðum er þarna vísað til þeirrar staðreyndar að eiginkona Frederiks Hansen fæddist í Rússlandi og þar býr öldruð móðir hennar. Í bréfinu segir jafnframt að ekki sé ástæða til að efast um að Frederik Hansen hafi sinnt starfi sínu af kostgæfni og að eiginkonan sé sömuleiðis ekki grunuð um neitt misjafnt. Frederik Hansen gefur ekki mikið fyrir afgreiðslu Leyniþjónustunnar. „Ég hef ekki verið boðaður í viðtal vegna uppsagnarinnar og þetta fólk sem skrifaði bréfið hef ég aldrei hitt og það veit ekkert hver ég er.“

Anna Zasorina, eiginkona Frederiks Hansen er 56 ára læknir. Hún hefur búið í Danmörku í rúm 30 ár, er danskur ríkisborgari og starfar sem heimilislæknir í Hornsyld á Jótlandi. Í viðtali við sjónvarpsstöðina TV2  sagðist Anna Zasorina vera í mjög litlu sambandi við aldraða móður sína í Rússlandi og ættingjar hennar ekki á neinn hátt tengdir yfirvöldum og stjórnkerfinu. „Ég skil ekki hvernig Rússar ættu að geta þvingað eiginmann minn til einhvers,“ sagði Anna Zasorina.

Ekki einsdæmi

Uppsögn Frederik Hansen hjá hernum er ekki einsdæmi. Í september 2024 birti sjónvarpsstöðin TV2 langa umfjöllun og viðtal við Harald Svendsen. Hann gerðist atvinnuhermaður árið 2022, þá var hann tuttugu og eins árs og hafði frá unga aldri dreymt um að verða flugmaður í hernum.

Harald SvendsenÁ ættir að rekja til Rússlands.

Harald Svendsen ólst upp í smábænum Rangstrup á Suður-Jótlandi, skammt frá Skrydstrup þar sem flugsveitir danska hersins hafa aðsetur. Oft á dag hafði Harald Svendsen heyrt í þotum hersins og látið sig dreyma. Eftir að hafa sinnt lögbundinni herskyldu réði hann sig til hersins og fékk starf sem „mission planner“, við skipulagningu á flestu því sem viðkemur daglegum rekstri F-16 þotanna. Þetta starf flokkast undir trúnaðarstarf og öryggisvottað sem slíkt, hemmeligt eins og það heitir hjá hernum.

Sumarið 2024 sótti Harald Svendsen um stöðuhækkun, að verða „mission planner“ við hinar nýju F-35 þotur hersins og verða í fyllingu tímans flugmaður. Störf við F-35 þoturnar krefjast vottunar á efsta stigi, kallast yderst hemmeligt. En þá hljóp snurða á þráðinn, vottunardeild Leyniþjónustunnar kvaddi Harald Svensen á sinn fund. Þar var hann spurður í þaula um allt mögulegt, áhugamál, frístundir og fjölskyldumál.

Allt sem viðkemur Rússlandi orðið strangara

„Ég hafði engu að leyna, mamma fæddist í Rússlandi en flutti til Danmerkur árið 1993, hún er danskur ríkisborgari og hefur árum saman unnið hjá danska hernum,“ sagði Harald Svendsen í viðtali við TV2. Þar nefndi hann líka móðurbróður sinn sem hefði sinnt herskyldu um tveggja ára skeið 1988 til 1990. „Ég tala ekki rússnesku og hef lítið samband haft við þennan frænda minn, bara sent jólakveðju á ensku.“ Þegar hann mætti svo til vinnu í Skrydstrup var hann settur í tiltekt á skrifstofum á flugvellinum en tveimur dögum síðar var hann sendur heim á launum. „Ég vonaði að þetta væri misskilningur og ég gæti brátt farið aftur í vinnuna,“ en það gekk ekki eftir og uppsagnarbréfið barst skömmu síðar. Kvartanir til Leyniþjónustu hersins og síðar til varnarmálaráðuneytisins breyttu engu, framtíðarvonirnar voru brostnar.

Eins og áður sagði flutti móðir Harald Svendsen, Tatyana, til Danmerkur árið 1993. Giftist dönskum manni og eignaðist þrjú börn. Hún er svæfingarhjúkrunarfræðingur og hefur síðan 2010 starfað hjá hernum. Hún hefur átta sinnum verið send til átakasvæða og bjóst við að sinna starfi sínu hjá hernum fram að eftirlaunaaldri.

Í janúar á síðasta ári fékk Tatanya Svendsen bréf frá vottunardeild Leyniþjónustunnar þar sem fram kom að endurmeta þyrfti öryggisvottun hennar, uppsagnarbréfið kom nokkru síðar.

Uppsögnum fjölgað mikið á síðustu árum

Í uppsagnarbréfunum frá Leyniþjónustu hersins til þeirra þriggja sem hér hefur verið fjallað um er ætíð tekið fram að uppsagnirnar hafi ekkert með hæfni þeirra að gera. Það er sem sagt hinn rússneski uppruni sem þarna ræður og óttinn við að Rússar reyni að notfæra sér hann til að afla upplýsinga.

Danska varnarmálaráðuneytið upplýsti í svari við fyrirspurn TV2 að á síðustu árum hafi þeim sem ekki standist öryggisvottun og verið reknir úr hernum fjölgað til muna, en upplýsti ekki um fjöldann. Auk Rússlands eru mörg arabaríki, Íran og Kína undir smásjánni í þessum efnum. Mikkel Storm Jensen, sérfærðingur hjá Herskólanum (Forsvarsakademiet), sagðist, í viðtali, skilja að ákvarðanir Leyniþjónustunnar varðandi öryggisvottanirnar þættu óréttlátar. Þær væru hins vegar nauðsynlegar, „hvað Rússana varðar höfum við orðið vitni að sífellt ósvífnara framferði“.

Spurning um brot á mannréttindum

Lögmaðurinn Mads Pramming hefur krafist bóta frá varnarmálaráðuneytinu fyrir hönd þriggja hermanna, einn þeirra er áðurnefndur Frederik Hansen, sem reknir hafa verið úr starfi. Lögmaðurinn hótar málaferlum ef ekki verði fallist á kröfurnar. Hann sagði í viðtali við danska útvarpið, DR, að málið varði brot ríkisins á rétti einstaklinga. „Enginn þessara þriggja skjólstæðinga minna hefur aðhafst nokkuð grunsamlegt eða ólöglegt. Þeir eru gerðir grunsamlegir vegna fjölskyldutengsla og hugsanlegrar (hypotetisk) áhættu.“

Peter Ernstved Rasmussen, fyrrverandi hermaður og stofnandi fjölmiðilsins OLFI, sem fjallar um varnar- og öryggismál, segir að framkoma Leyniþjónustunnar við Frederik Hansen sýni lítilsvirðingu gagnvart starfsmanni sem hafi helgað líf sitt þjónustu við land og þjóð. „Frederik Hansen og aðrir í sömu stöðu eiga betra skilið en að vera vísað á dyr,“ sagði Peter Ernstved Rasmussen.  

#eftir #hernum #rekinn #ára #þjónustu


Upprunaleg slóð:
https://heimildin.is/grein/26558/rekinn-ur-hernum-eftir-43-ar/

📰 Aðrar fréttir

Fire damages estate agency in Playa Blanca’s busy tourist area
📅 30.09.2026 👁️ 0
Fire damages estate agency in Playa Blanca’s busy tourist area
Firefighters were called to a fire at an estate agency in the popular Lanzarote resort of Playa Blanca after flames broke out shortly after midnight o...
New York Times valdi 100 bestu sjónvarpsþætti aldarinnar – „Þetta hlýtur að vera reiðibeita“
📅 30.09.2026 👁️ 0
New York Times valdi 100 bestu sjónvarpsþætti aldarinnar – „Þetta hlýtur að vera reiðibeita“
Breaking Bad trónir á toppnum yfir bestu sjónvarpsþætti 21. aldarinnar samkvæmt nýjum lista bandaríska stórblaðsins New York Times.Blaðið tók saman 10...
Stað­ráðnar í að koma sterkari til baka - Vísir
📅 30.09.2026 👁️ 0
Stað­ráðnar í að koma sterkari til baka - Vísir
Eva Katrín Baldursdóttir og Steinunn Hrólfsdóttir reka saman Andrá og hafa báðar starfað í fata- og tískugeiranum í fjölda ára. Þær voru nýbúnar að ta...
Þetta eru öldungadeildarsætin sem gætu ráðið úrslitum fyrir lokasprett Trumps á forsetastóli
📅 30.09.2026 👁️ 0
Þetta eru öldungadeildarsætin sem gætu ráðið úrslitum fyrir lokasprett Trumps á forsetastóli
Bandaríkjamenn ganga senn að kjörborðinu og kjósa til þings. Hinn 3. nóvember eru öll 435 sætin í fulltrúadeildinni í húfi og 35 sæti af hundrað í öld...
María Rut Kristinsdóttir skrifar: Að þora að standa í lappir
📅 30.09.2026 👁️ 0
María Rut Kristinsdóttir skrifar: Að þora að standa í lappir
Mynd Það er ekki öllum stjórnmálamönnum gefið að standa í lappirnar þegar á reynir.
Sjálfstæðismenn aftur á fund bandarískra íhaldsmanna ásamt Zachary
📅 30.09.2026 👁️ 0
Sjálfstæðismenn aftur á fund bandarískra íhaldsmanna ásamt Zachary
Sjálfstæðismenn aftur á fund bandarískra íhaldsmanna ásamt Zachary For­ysta Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Birg­ir Þór­ar­ins­son, fyrr­ver­andi þing­mað...
Sjónvarp í 60 ár: Svona var fyrsti fréttatíminn
📅 30.09.2026 👁️ 0
Sjónvarp í 60 ár: Svona var fyrsti fréttatíminn
Á þessum degi árið 1966 var fyrsti sjónvarpsfréttatíminn sendur út, daginn sem Ríkisútvarpið hóf sjónvarpsútsendingar. Hann var frábrugðinn fréttatíma...
WEDNESDAY WEATHER: More cloud but temperatures still approach 30°C across the Canaries
📅 30.09.2026 👁️ 0
WEDNESDAY WEATHER: More cloud but temperatures still approach 30°C across the Canaries
Cloudier skies are forecast across parts of the Canary Islands for today, Wednesday, although temperatures will remain warm and could still approach 3...
Einelti meðal barna í 4. og 5. bekk á Suðurnesjum mælist nú 33 prósent
📅 30.09.2026 👁️ 0
Einelti meðal barna í 4. og 5. bekk á Suðurnesjum mælist nú 33 prósent
Einelti meðal barna í fjórða og fimmta bekk á Suðurnesjum mælist nú 33 prósent. Árið 2023 var hlutfallið 22 prósent. Hækkunin er ellefu prósentustig á...
Ís­lensk heimili eigi að geta þolað sárs­aukann - Vísir
📅 30.09.2026 👁️ 0
Ís­lensk heimili eigi að geta þolað sárs­aukann - Vísir
Þetta er á meðal þess sem Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir í ítarlegu sjónvarpsviðtali við fréttastofu. Þrjár vikur eru síðan fjárlagafru...
Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðar­línuna - Vísir
📅 30.09.2026 👁️ 0
Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðar­línuna - Vísir
Bóndakonan gerði lögreglunni viðvart um „þrjú grunsamleg ökutæki“ í Whelford, þorpi sem liggur beint austur af flugstöðinni. Hún sagði við BBC að það ...
Stundaði sveppatínslu íklæddur indíánabúningi
📅 30.09.2026 👁️ 0
Stundaði sveppatínslu íklæddur indíánabúningi
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um afbrigðilega hegðun manns í Neðra-Breiðholti í gærkvöld eða nótt. Sá reyndist vera við sveppaleit...
Talsverðu magni af haldlögðu kókaíni skipt út fyrir hveiti
📅 30.09.2026 👁️ 0
Talsverðu magni af haldlögðu kókaíni skipt út fyrir hveiti
Miklu magni af kókaíni, pökkuðu í plast, hefur verið stolið úr sönnunargagnageymslu í byggingu hæstaréttar Fiji-eyja í höfuðborginni Suva. Hveiti var ...
Leitaði að sveppum í Breið­holti í indíánabúningi - Vísir
📅 30.09.2026 👁️ 0
Leitaði að sveppum í Breið­holti í indíánabúningi - Vísir
Þá var einnig tilkynnt í Breiðholti um hópamyndun ungmenna við verslunarkjarna, væntanlega Mjóddina, þótt það sé ekki tilgreint. Þá var tilkynnt um gr...
Hillir undir stjórnarkreppu í Svíþjóð
📅 30.09.2026 👁️ 0
Hillir undir stjórnarkreppu í Svíþjóð
Stjórnarmyndunarviðræður hafa gengið fremur brösuglega eftir kosningar í Svíþjóð og stjórnarkreppa gæti verið í uppsiglingu. Fyrir hádegi fara formenn...
Girl has multiple surgeries to control infections after strike in Gaza
📅 30.09.2026 👁️ 0
Girl has multiple surgeries to control infections after strike in Gaza
Witnesses say Raseel's tent was hit by an Israeli helicopter strike. Israel’s military says it has no record of the attack.
Move to rejoin EU among options for UK, says Andy Burnham
📅 30.09.2026 👁️ 0
Move to rejoin EU among options for UK, says Andy Burnham
The prime minister tells the BBC the current Brexit settlement has caused "more harm than good".
Zelensky sagður hafa ljóstrað upp um flutning norðurkóreskra stríðsfanga til að tryggja stuðning við vopnasölu
📅 30.09.2026 👁️ 0
Zelensky sagður hafa ljóstrað upp um flutning norðurkóreskra stríðsfanga til að tryggja stuðning við vopnasölu
Njósnastofnun Suður-Kóreu telur að Volodymyr Zelensky hafi greint frá flutningi tveggja norðurkóreskra stríðsfanga frá Úkraínu til Suður-Kóreu til þes...
Minnst einn drepinn í eldflauga- og drónaárás á Kyiv
📅 30.09.2026 👁️ 0
Minnst einn drepinn í eldflauga- og drónaárás á Kyiv
Að minnsta kosti einn var drepinn og þrír til viðbótar særðust í eldflauga- og drónaárás Rússlandshers á úkraínsku höfuðborgina Kyiv og nærliggjandi h...
102% aukning í makrílráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins
📅 30.09.2026 👁️ 0
102% aukning í makrílráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins
Alþjóðahafrannsóknaráðið leggur til að heildarmakrílafli næsta árs verði tæp 352 þúsund tonn. Það er 102% hækkun frá síðasta ári en þá hljóðaði ráðgjö...
Forsetinn viðurkennir misnotkun laga um hatursorðræðu við handtöku stjórnarandstæðinga
📅 30.09.2026 👁️ 0
Forsetinn viðurkennir misnotkun laga um hatursorðræðu við handtöku stjórnarandstæðinga
Delcy Rodriguez, sem hefur verið bráðabirgðaforseti Venesúela síðan í janúar, viðurkenndi í gær að lög landsins um hatursorðræðu hefðu verið misnotuð ...
Pentagon semur við Boeing um smíði nýrrar kynslóðar orrustuþotna
📅 30.09.2026 👁️ 0
Pentagon semur við Boeing um smíði nýrrar kynslóðar orrustuþotna
Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur samið við Boeing um smíði næstu kynslóðar árásar- og orrustuþotna fyrir sjóherinn. Samkvæmt tilkynningu ráðune...
Fjallasýn endurheimt í Peking
📅 30.09.2026 👁️ 0
Fjallasýn endurheimt í Peking
Ánægjuleg þróun hefur orðið á loftgæðum í Peking, höfuðborg Alþýðulýðveldisins Kína á síðustu árum. Þar blasir nú fjallahringurinn við flesta daga en ...
Antisemitism on the rise at universities, charity warns
📅 30.09.2026 👁️ 1
Antisemitism on the rise at universities, charity warns
The Community Security Trust says reported incidents are "substantially higher" than before the war in Gaza began.
Gömul hjörtu yngjast í ungu fólki
📅 30.09.2026 👁️ 1
Gömul hjörtu yngjast í ungu fólki
Ný rannsókn sýnir að aldur hjartaþega segi meira til um hjartaheilsu frekar en aldur hjartagjafa. Nature greinir frá en rannsóknin er enn óbirt og óri...
Myrtur af tengdaforeldrum sínum – Óhugnanlegar staðreyndir um málið koma í ljós
📅 30.09.2026 👁️ 3
Myrtur af tengdaforeldrum sínum – Óhugnanlegar staðreyndir um málið koma í ljós
Fertugur yfirmaður hjá dagblaðinu New York Times var skotinn til bana af öldruðum tengdaforeldrum sínum um helgina. Nú hafa óhugnanleg atriði málinu k...
Ukraine's prized steel industry left in ruins by Russian missile campaign
📅 29.09.2026 👁️ 1
Ukraine's prized steel industry left in ruins by Russian missile campaign
Ukraine's remaining steelworks, a vital part of its economy, have all but ground to a halt because of relentless attacks.
Rúm­lega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir á­hrifum - Vísir
📅 29.09.2026 👁️ 4
Rúm­lega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir á­hrifum - Vísir
Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Málið var höfðað með tveimur ákærum. Fyrri ákæran var gefin út í október í október 2024 á hendur...
Chinese AI tool told researchers how to make bioweapons
📅 29.09.2026 👁️ 0
Chinese AI tool told researchers how to make bioweapons
Mindgard said it discovered in July that Kimi models K2.6 and K3 Swarm could evade developer's safety limits.
'Mum sent them £140,000': How to spot the signs a loved one is being scammed
📅 29.09.2026 👁️ 0
'Mum sent them £140,000': How to spot the signs a loved one is being scammed
Helen discovered her mum was in the grip of a romance scam - here's how she found out and broke her free.
Huel ad banned for suggesting its products could replace all conventional food
📅 29.09.2026 👁️ 4
Huel ad banned for suggesting its products could replace all conventional food
The advertising watchdog said that viewers could assume from the ad that replacing all normal food with Huel was "nutritionally appropriate".
Household energy bills forecast to see biggest rise in four years
📅 29.09.2026 👁️ 4
Household energy bills forecast to see biggest rise in four years
A typical household faces an annual gas and electricity bill of £1,999 from January, based on a key forecast.
Stríðs­yfir­lýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga - Vísir
📅 29.09.2026 👁️ 3
Stríðs­yfir­lýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga - Vísir
Vinstri flokkarnir fjórir í Svíþjóð fögnuðu þegar úrslit úr kosningunum þann 13. september voru ljós. Hafði þeim þá tekist að fella þingmeirihluta rík...
Lögmönnum ekki skylt að veita upplýsingar um þiggjendur skattráðgjafar
📅 29.09.2026 👁️ 3
Lögmönnum ekki skylt að veita upplýsingar um þiggjendur skattráðgjafar
Lögmönnum er ekki skylt að veita skattayfirvöldum upplýsingar um umbjóðendur sína sem þegið hafa skattráðgjöf, ef beiðnin gengur lengra en brýn nauðsy...
Trent Alexander-Arnold: It is time for Thomas Tuchel to trust Real Madrid right-back
📅 29.09.2026 👁️ 1
Trent Alexander-Arnold: It is time for Thomas Tuchel to trust Real Madrid right-back
Having been overlooked for so long, Trent Alexander-Arnold produced a world-class moment on his return, writes Phil McNulty.
Stefán greinir frá hótunum sýslumanns – „Hann gæti gert helgina mjög erfiða fyrir mig“
📅 29.09.2026 👁️ 4
Stefán greinir frá hótunum sýslumanns – „Hann gæti gert helgina mjög erfiða fyrir mig“
Stefán Magnússon, framkvæmdastjóri Gigtarfélags Íslands sem skipulagði tónlistarhátíðina Eistnaflug á Neskaupstað árum saman, greinir frá því að sýslu...
Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðli­lega vel“ - Vísir
📅 29.09.2026 👁️ 3
Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðli­lega vel“ - Vísir
Hún opnar sig um málið í myndbandi sem hún birti á TikTok-síðu sinni en þar byrjar hún á því að segjast sjálf búa yfir ríflega tíu ára reynslu í heimi...
Úr­skurðaður í fjögurra vikna gæslu­varð­hald - Vísir
📅 29.09.2026 👁️ 3
Úr­skurðaður í fjögurra vikna gæslu­varð­hald - Vísir
Málið er til rannsóknar hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar.  Mbl.is greinir frá. Lögregla bíði nú eftir því að fá læknisvottorð um áverka konun...
Karl Th. Birgis­son borinn til grafar - Vísir
📅 29.09.2026 👁️ 2
Karl Th. Birgis­son borinn til grafar - Vísir
Fjöldi minningargreina birtist í dag í Morgunblaðinu en sömuleiðis hefur flóð minningarorða fallið á samfélagsmiðlum í kjölfar þess að andlátsfregn va...
Heilbrigðisþjónusta á vegum félagasamtaka barn síns tíma
📅 29.09.2026 👁️ 3
Heilbrigðisþjónusta á vegum félagasamtaka barn síns tíma
Runólfur Pálsson forstjóri Landspítala telur læknisþjónustu af hálfu félagasamtaka vera barn síns tíma. Útlit er fyrir að Landspítali hlaupi tímabundi...
Lög­menn fagna niður­stöðu EFTA-dómstólsins - Vísir
📅 29.09.2026 👁️ 2
Lög­menn fagna niður­stöðu EFTA-dómstólsins - Vísir
EFTA-dómstóllinn komst að niðurstöðunni í dag. Lögmannafélagið væntir þess að ráðgefandi dómur dómstólsins brýni fyrir stjórnvöldum og skattyfirvöldum...
Trump fagnar „siðferðilega bindandi“ samkomulagi um sjálfseftirlit með gervigreind
📅 29.09.2026 👁️ 3
Trump fagnar „siðferðilega bindandi“ samkomulagi um sjálfseftirlit með gervigreind
Trump fagnar „siðferðilega bindandi“ samkomulagi um sjálfseftirlit með gervigreind For­svars­menn tæknifyr­ir­tækja hafa skuld­bund­ið sig til að setj...
Hækkandi verðbólga – „Það er varla hægt að búa hér lengur“
📅 29.09.2026 👁️ 3
Hækkandi verðbólga – „Það er varla hægt að búa hér lengur“
„Þetta er skelfilegt, alveg hreint, skelfilegt. Þetta ætlar engan endi að taka, sko, einhvern veginn,“ segir Þórdís Hreggviðsdóttir um hækkun verðbólg...
Lína Birgitta rýfur þögnina um stóra umboðsmanna málið - „Misskilningur hjá áhrifavaldinum sjálfum“
📅 29.09.2026 👁️ 3
Lína Birgitta rýfur þögnina um stóra umboðsmanna málið - „Misskilningur hjá áhrifavaldinum sjálfum“
Lína Birgitta, eigandi fatabúðarinnar Define the Line og unnusta Gumma Kíró, kemur honum og umboðsskrifstofu hans Atelier til varnar í myndbandi á Tik...
JD Vance tjáir sig um óreglulegan svefn Trump – Sofnar í tíma og ótíma
📅 29.09.2026 👁️ 3
JD Vance tjáir sig um óreglulegan svefn Trump – Sofnar í tíma og ótíma
JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, hefur tjáð sig um óvenjulegan svefntíma Donald Trump forseta. Forsetinn vakir oft á næturnar en á erfitt með að h...
Manchester City charges: The intricate web spun to con the Premier League
📅 29.09.2026 👁️ 0
Manchester City charges: The intricate web spun to con the Premier League
The 40-page document which confirmed Manchester City were found guilty of inflating sponsorship income makes fascinating reading. Here's what it sets ...
Sam­tökin séu ekki í bar­áttu gegn einkabílnum - Vísir
📅 29.09.2026 👁️ 3
Sam­tökin séu ekki í bar­áttu gegn einkabílnum - Vísir
Samtökin hafa legið í dvala síðastliðin ár en nú hefur ný stjórn verið skipuð og var nýr formaður þeirra, Brynhildur Bolladóttir, einn gesta í nýjasta...
Hundreds attend controversial Mulbarton v Woodford FA Cup replay
📅 29.09.2026 👁️ 0
Hundreds attend controversial Mulbarton v Woodford FA Cup replay
The controversial replay follows the FA ruling a referee had made a mistake in the initial match.
Eistar saka Rússa um tilraun til íkveikju í vopnafyrirtæki
📅 29.09.2026 👁️ 3
Eistar saka Rússa um tilraun til íkveikju í vopnafyrirtæki
Forsætisráðherra Eistlands, Kristen Michal, sakaði rússnesku leyniþjónustuna í dag um að bera ábyrgð á tilraun til íkveikju í vopnaframleiðslufyrirtæk...
Úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir að hafa veitt konu alvarlega áverka í íbúð sinni
📅 29.09.2026 👁️ 3
Úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir að hafa veitt konu alvarlega áverka í íbúð sinni
Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald vegna rannsóknar lögreglu á alvarlegri líkamsárás í íbúð fjölbýlishús...