Innviðaráðherra hefur gert breytingar á reglugerð um ökuskírteini. Veigamesta breytingin lýtur að kröfu um læknisvottorð fyrir eldri ökumenn.
Læknisvottorðs verður ekki sjálfkrafa krafist sökum aldurs fyrr en einstaklingur hefur náð 75 ára aldri í stað 65 ára aldurs, samkvæmt breytingum Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra á reglugerð um ökuskírteini.
Breytingin tók gildi þann 29. maí.
Í takt við hækkandi lífaldur og batnandi heilsu
Breytingin var unnin í samvinnu við heilbrigðisráðuneytið. Fyrri reglur kváðu á um að fólk þyrfti að endurnýja ökuskírteini á fimm ára fresti eftir að 65 ára aldri er náð.
Helstu rök heilbrigðisráðuneytisins fyrir breytingunni eru að heilsa fólks hafi batnað samhliða hækkandi lífaldri. Reynslan hafi sýnt að læknisvottorð séu veitt nær undantekningalaust hjá þeim aldurshópi.
Breytingarnar muni því draga úr álagi sem skapast vegna reglulegrar endurnýjunar ökuskírteina bæði fyrir eldri ökumenn og heimilislækna.
Hafa 12 mánuði til að ljúka verklegu prófi
Fleiri breytingar hafa verið gerðar á reglugerðinni. Til að mynda munu umsækjendur um ökuskírteini fá rýmri tíma til að ljúka verklegu prófi frá því að þeir standast bóklegt próf, nú tólf mánuði. Áður gilti bóklegt próf í sex mánuði, en í tólf vegna tiltekinna flokka.
Starfsleyfi ökuskóla munu héðan í frá gilda í fimm ár, samkvæmt nýjum reglum. Krafa um að í sjálfskiptri kennslubifreið skuli vera gírstöng eða annar slíkur búnaður í stað fótstigs fyrir kúplingu er felld burt. Kröfunni er ekki framfylgt og sjálfskiptar kennslubifreiðir eru ekki búnar slíkum búnaði samkvæmt upplýsingum frá Samgöngustofu.
Þá er einnig kveðið á með skýrari hætti en áður um að atvinnubílstjórar eigi að ljúka endurmenntun fyrir hverja endurnýjun ökuréttinda, eða á fimm ára fresti.