Widdecombe sat á breska þinginu fyrir Maidstone í Kent í 23 ár og gegndi embætti innanríkis- og atvinnumálaráðherra í ríkisstjórn Johns Major á árunum 1994–1997. Hún var mikil stuðningskona útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu, Brexit, að sögn BBC.
Árið 2023 gekk Widdecombe til liðs við Umbótaflokk Nigels Farage en eftir að fréttir bárust af andláti hennar sagði Farage að Widdecombe hefði gegnt „afgerandi hlutverki“ við að koma Brexit „í höfn“.
Andlátið sé rannsakað sem morð í kjölfar „grunsamlegs andláts“ hennar á heimili hennar í Dartmoor.
„Morðrannsókn okkar er á frumstigi en henni miðar vel áfram. Við beitum öllum nauðsynlegum úrræðum til að komast að því nákvæmlega hvað gerðist og til að finna ábyrgan aðila, sem við teljum vera karlmann, hvítan á hörund,“ er haft eftir yfirlögregluþjóni Devon og Cornwall í umfjöllun BBC.
Widdecombe vakti athygli á þingferli sínum vegna íhaldssamra og stundum umdeildra skoðana sinna, meðal annars vegna andstöðu sinnar við þungunarrof og ummæla um hinsegin samfélagið.