Um er að ræða þriggja herbergja íbúð á þriðju hæð í steinhúsi sem var teiknað af Guðmundi H. Þorlákssyni byggingameistara og byggt árið 1926.
Íbúðin skiptist í anddyri, gang, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu og geymslu. Íbúðin var mikið endurnýjuð árið 2018 þar sem eldhús og baðherbergi voru tekin í gegn og árið 2019 voru byggðar svalir fyrir íbúðina út frá eldhúsinu.
Íbúðin er vel staðsett, stutt er í Grandann og gömlu höfnina þar sem hefur verið mikil uppbygging á síðustu árum og svo er einungis nokkurra mínútna gangur inn í Kvosina, upp á Landakotstún og niður á Austurvöll.
Frá stigapalli er komið inn á gang og þaðan er gengið í allar vistaverur. Við annan enda gangsins er komið inn í eldhús með fallegri innréttingu, flísum, Smeg-eldavél með gashelluborði, innbyggðri uppþvottavél og aðstöðu fyrir ísskáp. Frá eldhúsinu er gengið inn í rúmgóða og bjarta stofu með glugga til tveggja átta.
Gegnt innganginum er gengið inn í fallega uppgert baðherbergi og á hinum enda gangsins er rúmgott hjónaherbergi, annað minna svefnherbergi og geymsla þar á milli. Við húsið er lóð sem er hellulögð að hluta og með tyrfðri flöt að hluta. Nánar má lesa um eignina á fasteignavef Vísis.