Þegar Bashar al-Assad, fyrrverandi forseti Sýrlands, flúði til Rússlands í lok árs 2024 voru uppi efasemdir um framtíð tveggja rússneskra herstöðva þar í landi.
Rússar hafa lengi rekið flugstöð í Latakia og flotastöð í Tartous. Þessa flotastöð og flugvöll hafa Rússar notað til umsvifa í Miðjarðarhafinu og sem stökkpall inn í Afríku, þar sem umsvif þeirra hafa aukist til muna á undanförnum árum.
Sjá einnig: Ekkert fararsnið á Rússum í Malí
Uppreisnar- og vígamennirnir sem stökktu Assad á flótta hafa litla ástæðu til að þykja vænt um Rússa sem vörpuðu sprengjum á þá og óbreytta borgara í Sýrlandi um árabil og studdu við bakið á Assad.
Rússneskir hermenn yfirgáfu aldrei þessar herstöðvar en drógu úr umsvifum sínum þar.
Síðan þá hafa ráðamenn í Rússlandi varið miklu púðri í að bæta samskiptin við ríkisstjórn Ahmeds al-Sharaa, nýs forseta Sýrlands. Rússar hafa sent peninga til Sýrlands og átt í viðræðum um að koma að uppbyggingu innviða þar.
Í fyrra bárust fregnir af því að þessar viðræður milli Rússa og Sýrlendinga hefðu meðal annars snúist um að Rússar bæðu Sýrlendinga afsökunar og afhentu Assad til nýrra yfirvalda í Sýrlandi. Það hefur ekki gerst enn.
Í síðustu viku kom rússneskt flutningaskip að landi í Sýrlandi með birgðir fyrir umræddar herstöðvar og þótti það til marks um að Rússar væru ekki á leiðinni þaðan í bráð. Ekki hefur verið opinberað hvort Rússar og Sýrlendingar hafi komist að einhvers konar samkomulagi um herstöðvarnar.
María Sakaróva, talskona utanríkisráðuneytis Rússlands, sagði í morgun að viðræður milli ríkjanna væru yfirstandandi. Markmið Rússa væru að auka samskipti og samstarf ríkjanna.
Hún sagði að viðræðurnar hefðu einnig „eðlilega“ snúist um viðveru rússneskra hermanna í Rússlandi. Þar á meðal hefði verið talað um endurskipulagningu rússneskra herstöðva en sagði að það væri varnarmálaráðuneytisins að fara nánar út í það.