Ástæðan er hætta á að erlendar leyniþjónustur eða aðrir óprúttnir aðilar nýti forritin til að komast í samband við stjórnmálamenn og koma þeim í viðkvæmar aðstæður.
Dagens Næringsliv greindi fyrst frá þessu og hefur upplýsingarnar eftir heimildarmönnum innan norska stjórnkerfisins. Aftenposten greinir einnig frá málinu.
Þessu mun hafa verið komið á framfæri við pólitíska forystu ráðuneytanna af Halvard Ingebrigtsen, starfsmannastjóra forsætisráðuneytisins.
Samkvæmt heimildum DN höfðu nokkrir aðstoðarráðherrar verið með notendaaðgang á Tinder, Hinge eða Grindr áður en viðvörunin barst.
Vilja forðast „hunangsgildrur“
DN segir að markmiðið sé meðal annars að draga úr hættu á svonefndum hunangsgildrum, þar sem náið eða kynferðislegt samband er notað til að afla upplýsinga eða beita þann sem fyrir verður þrýstingi.
PST vill þó ekki fara nákvæmlega út í hvaða áhættu öryggisþjónustan telji fylgja einstökum forritum.
„PST veitir almenn ráð um það sem ráðamenn þurfa að hafa í huga varðandi eigið öryggi á netinu. Það á einnig við um viðveru á stefnumótaforritum,“ segir Martin Bernse yfirráðgjafi hjá PST við DN.
Bhanuja Rasiah, aðstoðarráðherra á skrifstofu forsætisráðherrans, staðfestir jafnframt að stjórnvöld fari eftir öryggisráðgjöf PST en segist ekki vilja ræða efni hennar nánar.
Ráðamenn skotmörk erlendra leyniþjónusta
Viðvörunin kemur á sama tíma og norska öryggislögreglan hefur ítrekað varað við aukinni njósnastarfsemi erlendra ríkja í Noregi.
Í árlegu hættumati PST fyrir árið 2026 segir beinlínis að norskir ráðamenn séu útsettir fyrir njósnatilraunum erlendra ríkja. Þar undir falla meðal annars ráðherrar, þingmenn, dómarar og aðrir háttsettir fulltrúar ríkisins.
Norska ríkisstjórnin lagði fyrr í vikunni einnig fram tillögur um að herða refsingar fyrir njósnir. Þar er meðal annars lagt til að hámarksrefsing fyrir ýmis njósnabrot verði hækkuð úr þremur árum í sex og að gróf njósnastarfsemi geti varðað allt að fimmtán ára fangelsi.