Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur kynnt í samráðsgátt drög að reglugerð um síma- og snjalltækjanotkun í grunnskólum sem hefur gengið undir vinnuheitinu „símafrí/símafriður í grunnskólum“.
Markmið reglugerðarinnar er að samræma reglur um notkun nemenda í grunnskóla á símum og snjalltækjum sem ekki eru í eigu eða umsjá skólans. Að auki er markmið hennar að skapa námsfrið, stuðla að vellíðan, auknum félagslegum tengslum og jákvæðum skólabrag, styðja við faglegt skólastarf og efla einbeitingu og frammistöðu nemenda. Þá er markmið reglugerðarinnar að stuðla að góðu samstarfi og samráði milli aðila skólasamfélagsins um notkun síma og snjalltækja og stuðla að gagnkvæmu trausti milli þeirra, virðingu, samábyrgð og tillitssemi.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
Innskráning
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.