Enn er á huldu hvað olli háværum hvelli í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum á fimmtudag. Vísindamenn bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA segja vígahnött hafa valdið svipuðu atviki í Massachusetts og New Hampshire aðfaranótt laugardags en orsök hávaðans í Suður-Karólínu er ráðgáta enn sem komið er.
Íbúum var vel brugðið því hljóðið líktist sprengingu eða kraftmikilli þrumu. Miklar umræður hafa skapast á samfélagsmiðlum um að gjöreyðingarvopni hafi verið skotið yfir Bandaríkin eða að geimverur hafi verið í könnunarleiðangri fyrir mögulega innrás.
NASA sagði ekkert benda til þess að loftsteinn hefði valdið hávaðanum í þessu tilfelli né geimskot á vegum stofnunarinnar.
Bandaríska jarðfræðistofnunin útilokaði einnig jarðskjálfta en sagði að hljóðhögg gæti verið skýringin. Það er höggbylgja sem myndast þegar hlutur rýfur svokallaðan hljóðmúr.
Þá ferðast hann hraðar en hljóðhraði, sem er um 340 metrar á sekúndu. Sé þessi tilgáta rétt þarf þá einnig að leysa ráðgátuna um hvaða hlutur það gæti verið. Þá kæmu hraðskreiðar flugvélar eða geimflaugar helst til greina en þær mega ekki rjúfa hljóðmúrinn nema í mikilli hæð.
Bandaríski flugherinn segist hafa atvikið til skoðunar.