Vladimír Pútín Rússlandsforseti segir ekkert hægt að fullyrða um hvaðan dróninn kom sem hafnaði á íbúðarhúsi í Rúmeníu í nótt. Hann segir ekki víst að hann hafi verið rússneskur og kallar eftir því að Rússar fái hann afhentan til rannsóknar.
Kona og unglingspiltur særðust þegar dróni hafnaði á íbúðarhúsi í rúmensku borginni Galati. Rúmensk stjórnvöld hafa brugðist við með því að kalla saman varnarráð landsins og reka æðsta ræðismann Rússlands úr landi.
Leiðtogar vestrænna ríkja hafa keppst við að fordæma Rússa vegna atviksins og framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins hefur heitið því að hver þumlungur landsvæðis aðildarríkja verði varinn.