Fyrstu prófanir á notkun rafrænnar kjörskrár í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum lofa góðu. Rafrænni kjörskrá er ætlað að stuðla að aukinni skilvirkni við framkvæmd kosninga.
Þjóðskrá vinnur að því að þróa kerfi sem heldur utan um rafræna kjörskrá. Hægt verður að merkja rafrænt við kjósendur á kjörstað í stað þess að merkja við á pappír eins og hefð er fyrir. Þar að auki eru kjósendur beðnir um að gefa upp kennitölu en ekki heimilisfang og geta þá kosið á hvaða kjörstað sem er í sínu kjördæmi.
Þyrí Thorberg Óskarsdóttir, fagstjóri þjónustu og þróunar hjá Þjóðskrá, segir þróun kerfisins og fyrstu prófanir þess gefa góð fyrirheit.
„Við erum búin að vera í samtali við bæði stærri og minni sveitarfélög. Við höfum lagt þetta til og spurt hvort þeim finnist þetta vera sniðugt og þau eru öll mjög ánægð með þetta, að fólk gefi upp kennitölu í staðinn fyrir að vera alltaf að gefa upp heimilisfang,“ segir Þyrí.
Prófa kerfið aftur í kosningunum í ágúst
Rafræna kjörskráin var prófuð í Flóahreppi í sveitarstjórnarkosningunum í maí samhliða hefðbundinni merkingu. Þyrí segir prófunina hafa gengið vel. Kjósendum og starfsmönnum hafi þótt kerfið notendavænt.
Því sé ætlað að einfalda ferla og draga úr hættu á villum. Stefnt er að því að innleiða kerfið á næstu árum, en það verður áfram prófað í næstu kosningum.
„Við erum heppin að fá aðra kosningu í ágúst til að geta prófað kerfið aftur og þá langar okkur að prófa á fleiri stöðum og stöðum sem hafa til dæmis fleiri en eina kjördeild,“ segir Þyrí.
„Þannig að við erum bara að prófa kerfið áfram. Við viljum auðvitað að það virki 100% áður en við segjum að það sé orðið nógu gott til þess að nota í kosningum.“