Kjörstaðir hafa verið opnaðir vegna þingkosninga í þýska sambandslandinu Saxlandi-Anhalt. Það er í austurhluta Þýskalands, hluti þess sem áður var Austur-Þýskaland. Harðlínuflokkurinn Alternative für Deutschland (AfD) eygir möguleika á að ná þar hreinum meirihluta enda hefur fylgi hans í skoðanakönnunum verið í kringum fjörutíu af hundraði.
Flokkurinn gæti jafnvel náð stýra ríkisstjórn í þýsku sambandslandi fyrsta sinni. Það er þó ekki fast í hendi. Kjósendur ráða niðurstöðunni, fimm prósent atkvæða þarf til að komast á þing.
Kannanir benda til að þrír flokkar séu undir þeim mörkum, sem gagnast AfD. Um það bil 1,7 milljónir hafa kosningarétt og kjörstaðir verða opnir til klukkan sex síðdegis að staðartíma.
Búist er við fyrstu útgönguspám skömmu síðar. Litið hefur verið á kosningarnar sem prófraun fyrir stjórn Friedrich Merz kanslara sem verður sífellt óvinsælli. Flokkur hans, Kristilegir demókratar, situr að völdum í Saxlandi-Anhalt ásamt tveimur minni flokkum og hefur gert það síðan 2002.
Forsætisráðherrann Sven Schulze vonast til að geta myndað nýja fjölflokkastjórn eftir kosningar og haldið AfD þannig til hlés. Oddviti AfD heitir Ulrich Siegmund, er hálffertugur og hefur verið fagnað eins og poppstjörnu á öllum kosningafundum.
Urmull fylgir honum á samfélagsmiðlum og hann hefur óhræddur spáð flokknum hreinum meirihluta. „Það voru hinir sem settu upp takmarkanirnar,“ sagði Siegmund í samtali við Bild. „Ef enginn vill vinna með okkur þá verðum við bara að stjórna þessu einir,“ sagði hann.
Kosningunum í Saxlandi-Anhalt voru gerð ítarleg skil í Speglinum fyrir helgi: