Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra segir að ráðuneytið hafi verið í viðræðum við aðila vinnumarkaðarins síðan í vor, þegar ljóst var í hvað stefndi varðandi kjarasamninga - en forsendur þeirra brustu í byrjun mánaðar þegar verðbólga mældist yfir viðmiði. Ýmsar aðgerðir séu til skoðunar.
„Þetta eru aðgerðir sem snúa að húsnæðismarkaðnum og þá með áherslu á leigumarkaðinn. Aðgerðir sem tengjast brotastarfsemi á vinnumarkaði, einföldun á regluverki og fleiri mál.“
Hvaða aðgerðir á húsnæðismarkaði? „Ég get svosem ekki úttalað mig um það í þessu viðtali, en þetta snýr að ungu fólki og sérstaklega leigumarkaðnum.“
Verður af þessu? „Það veltur á því hvort aðilar nái saman.“
Myndi gera allt til að verja samninginn
Daði Már Kristófersson efnahags- og fjármálaráðherra sagði í Vikulokunum í gærað sér þætti furðulegt fyrirkomulag að ríkið niðurgreiddi kjarasamninga á almennum markaði.
Spurður hvort hann taki undir það segir Ragnar Þór að hann hafi verið þeirrar skoðunar að ríkið eigi að vera aðili samninga, enda hafi það verið þannig síðustu ár og áratugi. „Ég get alveg tekið undir þá gagnrýni að ríkið eigi ekki að niðurgreiða samninga sem slíka, en það er svo margt undir sem snýr að velferð og kjörum fólks að mér finnst ekkert óeðlilegt að hið opinbera sé hluti af því samtali.“
Ragnar Þór er fyrrverandi formaður VR og einn þeirra sem kom að gerð Stöðugleikasamningsins sem nú er undir. Hann segir að væri hann enn í formannsstóli myndi hann gera allt sem hann gæti til að verja samninginn.
Aðkoman ekki á kostnað hallalausra fjárlaga
Boðuð hafa verið hallalaus fjárlög sem verða kynnt í vikunni. Spurður hvort það gæti orðið á kostnað hallalausra fjárlaga, fari svo að ríkisstjórnin grípi til einhverra aðgerða til að verja kjarasamningana, segir Ragnar Þór svo ekki vera.
„Fjármálaráðherra er mjög skýr í sinni afstöðu, hann talar fyrir hönd allrar ríkisstjórnarinnar og við erum sammála um að aðkoma stjórnvalda verður ekki á kostnað hallalausra fjárlaga.“