Hnífurinn var haldlagður og skráður í kerfi lögreglu.
Frá þessu er greint í dagbók lögreglu en málinu er ekki lýst frekar.
Þar segir að lögreglan á stöð 1, sem sinnir vesturborg og Seltjarnarnesi, hafi þurft að sinna mörgum útköllum vegna aðstoðar við borgarana, aðallega sökum ölvunar og slagsmála
Einn var handtekinn fyrir að fara ekki eftir fyrirmælum lögreglu, en laus eftir skýrslutöku.
Fimm hafi verið kærðir fyrir brot á lögreglusamþykkt fyrir Reykjavíkurborg.
Ökumaður var kærður fyrir ölvun við akstur en laus eftir blóðsýnatöku.