Nokkuð víðáttumikil lægð stefnir ört í átt að landi úr suðri. Í dag verður vaxandi norðaustan- og austanátt víða um land.
Síðdegis verður yfirleitt 8-15 m/s, hvassast suðaustanlands. Í kvöld er útlit fyrir norðaustan 15-20 m/s undir Vatnajökli og fer þá að rigna suðaustan- og austanlands.
Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.
Búist er við hviðum sem gætu farið yfir 20 m/s við fjöll á Suður- og Suðausturlandi – einkum í Öræfum.
Hiti verður á bilinu 6 til 16 stig, mildast suðvestanlands.
Eftir hádegi á morgun fer að draga hægt úr vindi og úrkomu á svæðinu en það verður áfram hvasst suðaustan- og austantil fram á kvöld. Í öðrum landshlutum er hægari vindur, yfirleitt norðan 8-13 m/s, en heldur hvassara inn til landsins. Það lægir svo víða norðanlands með kvöldinu.
Í norðanáttinni kólnar heldur norðan- og austanlands, en áfram verður milt sunnan heiða.