Þá var hann á persónulegum nótum, fékk meðal annars fjölskylduna upp á svið til sín og ítrekaði ást sína á eiginkonunni, Hrafnhildi Hafsteinsdóttur.
Hann spjallaði við tónleikagesti á milli laga og kom meðal annars inn á fegurðina sem felst í lífinu og nánu samneyti fólks.
„Kynlíf er ekki skítugt. Það er eitt það fallegasta sem til er í mannlegri náttúru,“ sagði afmælisbarnið.
Þá var Bubbi einnig á pólitískum nótum eins og hans er von og vísa. Hann var afdráttarlaus á sviðinu í gær þegar hann ræddi meðal annars Evrópusambandið. Sagðist vilja losna við krónuna og gerði stöðu ungs fólks á húsnæðismarkaði að umfjöllunarefni. Þá skaut hann á sjórnmálamenn sem gefa lítið fyrir kosti sambandsins.
„Pólitíkusar sem tala á þennan veg: Fokk jú.“
Viktor Freyr Arnarson, ljósmyndari var á tónleikunum og fangaði nokkur augnablik.
...