Bandaríska varnarmálaráðuneytið tilkynnti í gær á samfélagsmiðlinum X að það ætli að fækka um eitt stórfylki af fjórum í Evrópu. Þetta eru svokölluð Brigade Combat Teams-stórfylki, en samkvæmt fréttaveitunni AFP eru um 4.000-4.700 hermenn í einu slíku stórfylki. Til stóð að um 4.000 hermenn yrðu sendir til Póllands, en JD Vance varaforseti tilkynnti fyrr um daginn að því hefði verið seinkað að senda hermenn til Póllands.
Í tilkynningu frá Pentagon segir að enn eigi eftir að ákveða hvert þessir hermenn verða sendir og hvar aðrir bandarískir hermenn verða staðsettir í Evrópu. Það verði metið út frá greiningu á þörf Bandaríkjahers og getu bandamanna til að stuðla að öryggi Evrópu.
Eftir þessar breytingar verður fjöldi bandarískra hermanna í Evrópu álíka og árið 2021. Samkvæmt pólska varnarmálaráðuneytinu eru um 10.000 bandarískir hermenn útsendir í Póllandi.
Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna mætir á fund utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins á föstudaginn í Helsingborg í Svíþjóð. Hann mun einnig eiga tvíhliða fundi með Ulf Kristersson forsætisráðherra Svíþjóðar og framkvæmdastjóra NATO, Mark Rutte.