Þetta segir Ásta Kristín, dóttir Lúðvíks Péturssonar, sem lést þegar hann féll ofan í sprungu í Grindavík í janúar 2024. Hún rifjar upp síðustu jól og áramót fjölskyldunnar með föður sínum, skömmu áður en slysið varð. Hann hafi sjálfur lýst óöryggi sínu við að vinna á svæðinu vegna jarðhræringanna en verið staðráðinn í að ljúka verkefninu.
Ásta Kristín og systir hennar, Ásdís, eru gestir í nýjasta þætti hlaðvarpsins Önnur mál, þar sem þær ræða nýlegar tilraunir til að finna líkamsleifar föður þeirra.
Systurnar eru afar ósáttar við hvernig staðið var að leitinni og segja fjölskylduna ekki hafa fengið viðunandi skýringar á því hvers vegna henni var hætt.
Leitin vakti nýja von
Lúðvík Pétursson féll ofan í sprungu í Hópshverfi í Grindavík 10. janúar 2024, þar sem hann vann að því að fylla upp í sprungu við íbúðarhús. Þriggja daga leit að honum bar ekki árangur og var henni hætt vegna hættulegra aðstæðna.
Í lok seinasta mánaðar var ráðist í nýja leit. Sigmenn fóru niður í sprunguna og notaðar voru sérhæfðar myndavélar til að kanna aðstæður. Engar vísbendingar fundust um hvar líkamsleifarnar væru niðurkomnar og tilkynnti lögreglan að formlegri leit væri lokið.
Systurnar segja að fréttirnar af leitinni hafi upphaflega vakið mikla von hjá fjölskyldunni.
„Ég var þarna voðalega vongóð daginn sem það er farið að leita og var bara að hugsa, ókei, hann finnst annaðhvort í dag eða á morgun og við þurfum bara að fara að velja legstein og ákveða í hvaða kirkjugarð við ætlum að jarða hann.“
Þegar leitinni var síðan hætt hafi áfallið verið gríðarlegt.
„Þá fór maður bara að endurupplifa sjokkið þegar það var hætt að leita að honum í janúar 2024. Það bara allar tilfinningarnar komu aftur og þetta var bara eins og maður væri sleginn gjörsamlega niður.“
„Eitthvað leikrit sem var sett upp“
Systurnar gagnrýna hversu stutt leitaraðgerðin stóð yfir. Þær segja að þótt aðgerðin hafi í heild tekið rúmar sjö klukkustundir hafi virk leit niðri í sprungunni aðeins staðið yfir í um þrjár klukkustundir.
Þær telja jafnframt að ekki hafi verið reynt til þrautar að finna föður þeirra.
Áður en leitin hófst lá fyrir minnisblað frá verkfræðistofunni COWI þar sem fjallað var um mögulega áfanga leitarinnar. Systurnar segja að þær hafi skilið áætlunina þannig að skoða ætti frekari aðgerðir ef fyrsti áfanginn skilaði ekki árangri.
Þær skilji því ekki hvers vegna leitinni var hætt eftir sjónskoðun og leit með myndavélum.
„Af hverju er ekki farið á næsta stig ef þið bjugguð til áætlun sem er svona fjórskipt og eruð búin með fyrsta skrefið? Okkur vantar bara góða útskýringu á því.“
Í fyrri umfjöllun Vísis kom fram að lögreglan teldi frekari aðgerðir of áhættusamar miðað við fyrirliggjandi áhættumat.
Systurnar segjast hins vegar ekki hafa fengið nægilega greinargóðar skýringar á ákvörðuninni og lýsa því að þær hafi upplifað aðgerðirnar sem sýndarmennsku.
„Ákveðinn sýndarskapur. Eitthvað leikrit sem var sett upp,“ segir Ásdís.
Ásta Kristín tekur undir og segir að fjölskyldan hafi fengið þá tilfinningu að leitað hafi verið til þess eins að geta sagt að búið væri að leita.
Fréttu af málalokum á seinustu stundu
Systurnar gagnrýna einnig upplýsingagjöf lögreglunnar. Þær segjast hafa fengið þær upplýsingar að leitin færi fram í nóvember en síðan komist að því fyrir tilviljun að undirbúningur hennar væri þegar hafinn í lok október.
Þær segja jafnframt að fjölskyldan hafi ekki fengið skýra staðfestingu á því að leitinni væri endanlega hætt fyrr en rétt áður en fréttir þess efnis birtust í fjölmiðlum.
„Við náttúrulega líka fréttum í raun að leitin sé alfarið hætt tíu mínútum áður en það kemur í fjölmiðla,“ segir Ásdís.
Vonbrigðin og óvissan hafi tekið verulega á systurnar, sem báðar þurftu að vera frá vinnu í um viku í kjölfar aðgerðanna.
Vilja ekki að faðirinn verði skilinn eftir
Systurnar segja fjölskylduna hafa ítrekað bent á aðrar mögulegar leiðir til að finna líkamsleifar Lúðvíks, meðal annars að grafa niður að sprungunni með vinnuvélum.
Þær óttast að fyllt verði upp í sprunguna áður en allar raunhæfar leiðir hafa verið skoðaðar og vilja koma í veg fyrir það.
„Okkur langar bara að koma upp tjaldbúðum og bara vera þarna,“ segir Ásdís.
Þá segja þær tilhugsunina um að faðir þeirra verði skilinn eftir á staðnum þar sem hann lést óbærilega. Hann hafi sjálfur ekki viljað vera í Grindavík og því sé þeim sérstaklega sárt að hugsa til þess að þar kunni hann að verða um ókomna tíð.
„Þetta er einfaldlega ekki staðurinn sem hann vill vera á og ekki staðurinn sem við viljum fara til þess að minnast hans,“ segir Ásdís en í þættinum ræða systurnar einnig um langvarandi baráttu fjölskyldunnar við yfirvöld, ósvaraðar spurningar um ábyrgð á slysinu og næstu skref fjölskyldunnar, sem er staðráðin í að halda baráttunni áfram.