Hæstiréttur Rússlands tekur í dag fyrir mál gegn Yabloko-flokknum, eina stjórnmálaflokknum sem talar fyrir því að binda enda á stríðið í Úkraínu.
Forsvarsmaður annars stjórnmálaflokks, Rodina-flokksins, höfðar málið og vill að Yabloko verði sviptur leyfi til að bjóða sig fram í þingkosningunum 18. til 20. september.
Landskjörstjórn í Rússlandi hefur skráð framboðslista ellefu stjórnmálaflokka. Þeirra á meðal er Yabloko.
Saka frambjóðendur um að vera þjóðernissvikara
Alexey Zhuravlev, leiðtogi Rodina, segir að þjóðernissvikarar skipi lista Yabloko-flokksins og frambjóðendur hans vinni fyrir Vesturlönd, sem vilji uppgjöf Rússlands.
Gennady Zyuganov, leiðtogi Kommúnistaflokksins, hefur einnig gagnrýnt Yabloko. Hann segir frambjóðendur flokksins ekki hafa fordæmt Úkraínu fyrir árásir á Rússland.
Leiðtogi flokksins segir hann vilja koma í veg fyrir frekari dauðsföll
Yulia Navalnaya og aðrir stjórnarandstæðingar í Rússlandi sem hafa yfirgefið landið hafa hvatt rússneska kjósendur til þess að kjósa Yabloko.
Þegar flokkurinn skilaði inn kjörgögnum í síðasta mánuði sagði Nikolay Rybakov, leiðtogi Yabloko, að flokkurinn væri fylgjandi því að vopnahléssamningur yrði gerður til þess að koma í veg fyrir frekari dauðsföll. „Til þess að fólk geti lifað áhyggjulaust í Rússlandi. Svo að unga fólkið vilji ekki yfirgefa landið. Við erum fylgjandi mannlegri reisn og lýðræðislegu og velmegandi Rússlandi.“