Sævar Skaptason, stjórnarformaður Ferðaþjónustu bænda, segir skýr merki um samdrátt í íslenskri ferðaþjónustu.
„Fólk er að bíða og sjá hvernig málin þróast. Óáreiðanleiki í flugáætlun, meðal annars hjá Icelandair, hefur líka sitt að segja. Þannig að það er alveg greinilegur samdráttur á milli ára,“ segir Sævar um stöðuna.
Friðrik Pálsson, hótelhaldari á Hótel Rangá, segir sumarið líta ágætlega út og ekki séu nein merki um meiri samdrátt í komum Bandaríkjamanna.
Lesa má nánar um málið á bls.11 í Morgunblaðinu í dag