Páll Heiðar Jónsson, sálfræðingur hjá SÁÁ sem starfar í fjárhættuspilateyminu, telur að spilafíklum eigi eftir að fjölga mikið á næstu árum. Síðustu misseri hefur borið töluvert á auglýsingum á fjárhættuspila- og veðmálaþjónustum, til dæmis í kringum heimsmeistaramót karla í fótbolta.
„Það er verið að setja mikið af fé í auglýsingar, bæði á samfélagsmiðlum og að fá áhrifavalda til að tala um íþróttaveðmál og láta umræðuna snúast um það eins og það sé rosa mikill hluti af þessu og svona skylda: Ef þú sért að horfa á leikinn þá sértu að betta [setja undir],“ segir Páll Heiðar.
„Það er lögð áhersla á ungt fólk af því þú vilt fá kúnnann inn ungan. Ef þú þróar með þér spilafíkn þá er það langvinnur vandi. Það getur fylgt þér út lífið. Þannig að auðvitað viltu ná fólki snemma inn – því yngra því betra.“
Samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann, SÁÁ, hafa ekki fundið fyrir áhrifum af aukinni veðmálastarfsemi vegna heimsmeistaramóts karla í fótbolta en forsvarsmenn samtakanna vænta þess að möguleg áhrif kunni að koma fram síðar.
„Þetta er engin smá aukning“
Páll Heiðar bendir á að nýleg rannsókn hafi gefið til kynna að þriðjungur stráka stundi veðmál. Það var einnig niðurstaða Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar að um 40% framhaldsskólanema hefðu spilað fjárhættuspil síðastliðið ár.
„Þetta er engin smá aukning. Þetta var ekkert svona þegar ég var að alast upp,“ segir Páll Heiðar. „Það er alveg rosalega mikið verið að veðja á Íslandi í dag.“
Hann segir marga spila fjárhættuspil á netspilavítum og á veðmálaþjónustum, sérstaklega í tengslum við íþróttastarf. Margar auglýsinganna höfða sérstaklega til ungmenna, til dæmis í gegnum duldar auglýsingar á samfélagsmiðlum. HM í fótbolta er einn stærsti veðmálaviðburður heimsins.
„Þeir eru bara að spila eftir sömu handbókinni þessi fyrirtæki og verið hefur. Bara auglýsa, tala um þetta, venjugera, normalísera, láta eins og þetta sé eitthvað sem þú gerir. Þú ert að horfa á íþróttaleik og þá seturðu á leikinn. Þannig ég geri ráð fyrir að á næstu árum muni fleiri og fleiri og fleiri þróa með sér spilafíkn.
„Hönnuð af sérfræðingum til þess að láta þig ánetjast“
Páll Heiðar hvetur foreldra til að fylgjast með því hvað börn þeirra eru að gera í símanum.
„Mögulega eru þau alltaf að setja á eitthvað og athuga hvað kemur út úr því. Svo líka bara að taka samtalið og segja: Þetta er varasamt. Svona fjárhættuspil eru hönnuð af sérfræðingum til þess að láta þig ánetjast. Þetta eru sérfræðingar í mannlegri hegðun. Þeir setja leikinn upp þannig að þú ánetjist þeim og það versta sem kemur fyrir þig er að vinna. Það er nánast enginn sem vinnur og kemur síðan út í plús – það leiðir bara til meiri spilunar.“
Hann bendir á að SÁÁ bjóði upp á þjónustu sérstaklega fyrir fjölskyldur.
„Við erum með opna spilameðferð sem er alltaf hægt að koma í. Það er hægt að bóka viðtal við ráðgjafa hjá göngudeild og það er allt ókeypis. Öll þjónusta fyrir fólk með spilafíkn er ókeypis, hvort sem það eru einkaviðtöl eða hópmeðferðin.“