Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, óttast að kjaradeilur Icelandair kunni að vera til marks um að íslenskt atvinnulíf sé komið úr jafnvægi. Hann segir spennu í launamálum útflutningsgreina, vöxt atvinnuleysis og kólnun á íbúðamarkaði mögulega fyrstu merki um „jarðhræringar“ í atvinnulífinu.
Bjarni bendir á að góð viðskiptakjör hafi náð að fela vandann að miklu leyti en það hefur t.d. hjálpað útflutningsgreinum hvað fisk- og álverð hefur verið hátt. Hann varar við að lítið megi út af bregða: „Sagan hefur sýnt okkur að þegar launin eru há, vextir háir og gengið sterkt þá verður á endanum eitthvað að gefa eftir.“
Í umfjöllun Morgunblaðsins í dag er einnig haft eftir Ragnari Má Gunnarssyni ráðgjafa að þreifingar með kaup á Fly Play Europe hafi ekki farið vel í stéttarfélögin. Þá má finna vísbendingar í nýjustu farþegatölum um að staða Icelandair gagnvart erlendum keppinautum sé að veikjast.
Lesa má nánar um málið á bls.12 og 15 í Morgunblaðinu í dag