Í nýrri færslu á Facebook-síðu samtakanna Villikettir Vesturlands er sögð saga kattar sem hefur verið í vörslu samtakanna frá 1. júní. Miðað við lýsingarnar hefur líf kattarins verið afar erfitt og sársaukafullt en hann hafði verið á vergangi í um tvö ár en í ljós hefur komið að einhver hefur gert það sér að leik að skjóta á köttinn úr haglabyssu en líkami hans var alsettur höglum.
Kötturinn er fress og hefur fengið nafnið Hveitispotti. Í færslu samtakanna segir:
„Þessi yndislegi og ljúfi kisukall kom til okkar 1. júní. En hann var búin að vera á vergangi á Mýrunum í Borgarfirði í uþb 2 ár.“
Segir enn fremur að strax hafi komið í ljós að ekki var allt eins og það átti að vera. Farið var þá með Hveitispotta til dýralæknis til að láta athuga framloppuna og láta hann gangast undir almenna skoðun. Þá kom hins vegar í ljós nokkuð afar óvænt:
„Þessi yndislegi, fallegi og góði kisukall hefur verið skotinn með haglabyssu á einhverjum tímapunkti og er líkaminn allur í höglum. Okkur finnst ótrúlegt að eftir allt þetta, er hann ennþá ljúfur sem lamb. Vill allt klappið og elskar alla. Þrátt fyrir þessa hrikalegu meðferð sem hann hefur þurft að þola. Sýnir bara með eindæmum hvað þessi dýr eru þrautseig og sterk því þrátt fyrir þetta allt, er hann ótrúlega brattur og lætur ekkert stoppa sig.“
Á röntgenmyndum sem fylgja færslunni má sjá að höfuð, háls og fremri hluti kviðs Hveitispotta hafa verið alsett höglum.
Segir að lokum í færslunni að Hveitispotti hljóti að hafa komið af einhverju heimili:
„Hveitispotti er algjört yndi og gætum við alveg trúað því að það sé einhver þarna úti sem saknar hans, ef einhver kannast við hann má endilega hafa samband við okkur. Hann er með öllu ómerktur og ógeldur.“