Sergiy Koretsky verður næsti forsætisráðherra Úkraínu. Þingið staðfesti tilnefningu hans í morgun, en hann var áður forstjóri ríkisorkufyrirtækisins Naftogaz.
Koretsky vísaði einmitt til síns fyrra starfs þegar hann ávarpaði þingið. Hann sagði að undir hans stjórn hefði Naftogaz viðhaldið gasflæði til landsmanna þrátt fyrir linnulitlar árásir Rússa á innviði Úkraínu.
Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu setti ríkisstjórnina af í vikunni. Hann bar því við að stjórnvöld í Kænugarði ætluðu að breyta pólitískri nálgun sinni „í ljósi nýrra áskorana og verkefna“.
Uppstokkunin er ekki óumdeild þar sem almenningur hefur brugðist sérlega ókvæða við því að varnarmálaráðherrann Mykhailo Fedorov hafi verið látinn fara. Mótmæli hafa verið víða vegna þessa.