Stofnfundur Áfram Ísland, nýrra samtaka þeirra sem vilja ekki að þjóðin fái að sjá hverju hægt er að ná fram í samningaviðræðum við ESB, var haldinn í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll í gær. Forsvarsmenn hinna nýju samtaka sögðu fullt hafa verið út úr dyrum og að 800 manns hefðu verið á fundinum. Orðið á götunni er að sú tala sé athyglisverð í ljósi þess að húsakynnin taka mest 300 manns og ljósmyndir frá viðburðinum sýna að hópurinn var frekar gisinn og loftaði vel milli manna. Einhver hafði á orði að fjölmennari fermingarveislur hefðu verið haldnar.
Orðið á götunni: Undarlegt bandalag – aðalræðumaðurinn alltaf haft rangt fyrir sér