Sérstakur bankaskattur er hækkaður núna samkvæmt fjárlagafrumvarpinu um sex milljarða króna. Þetta er sjálfsögð og eðlileg tillaga í ljósi ofboðslegs hagnaðar banka og fjármálafyrirtækja hin síðari ár. En þessi skattur gerir ekki sitt gagn ef bankarnir ná að velta honum umsvifalaust út í verðlagið þannig að fólk og fyrirtæki þurfi að borga brúsann. Það var því eðlilegt að forseti ASÍ, Finnbogi Hermannsson, gerði kröfu um að þess yrði gætt að hækkun bankaskatts yrði ekki velt út í verðlagið.
Orðið á götunni: Forseti ASÍ gerir þá sjálfsögðu kröfu að bankar velti ekki bankaskatti út í verðlagið – Jóhannes útskýrari vælir áfram