Þeir sem hyggjast greiða atkvæði utan kjörfundar á höfuðborgarsvæðinu geta gert það á skrifstofu embættis Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu við Hlíðarsmára 1 í Kópavogi.
Hægt verður að greiða atkvæði frá 27. júlí til 31. júlí á milli 10 og 16 en lokað verður um verslunarmannahelgina frá 1. til 3. ágúst. Í kjölfar verslunarmannahelgarinnar verður opið 4. ágúst til 23. ágúst klukkan 10 til 18 og sá tími lengdur til 21 dagana 24. ágúst til 28. ágúst.
Einnig er hægt að greiða atkvæði hjá sýslumanninum á kjördag á milli tíu og fimm en sú opnun er hugsuð fyrir þá kjósendur sem ekki geta sótt kjörfund.
Í tilkynningu frá sýslumanni er bent á að Strætó númer 21 og 24 stoppa við Hlíðarsmára 1. Kjósendur eru minntir á að hafa persónuskilríki meðferðis.