Ríkisendurskoðandi er sammála þeirri gagnrýni sem kemur fram í nýrri skýrslu Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu um eftirlit með þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst, sérstaklega varðandi gloppur í íslenskri löggjöf sem snúa að eftirliti með fjármögnun baráttuhópa. Engin leið sé til að fylgjast með hvaðan fjármagn til já- og nei-baráttuhópanna kemur.
„Það geta verið önnur þjóðríki, eða hópar þjóðríkja eða fyrirtæki eða annars konar öfl. Þannig að þetta er bara mjög fjölþættur vandi sem lýðræðisríki standa frammi fyrir,“ segir Guðmundur Björgvin Helgason, ríkisendurskoðandi.
Hann segir að listinn yfir erlendu öflin sem geta haft skoðanir á hvort Evrópusambandið styrkist eða veikist sé óþrjótandi.
Eins og staðan er í dag gæti þá stór fjárhagslegur stuðningur frá sérhagsmunahópum farið framhjá öllu eftirliti í aðdraganda þessara kosninga?
„Já, stór sem smár.“
Á ábyrgð stjórnvalda að bæta úr
Úr þessu þurfi að bæta og það sé á ábyrgð stjórnvalda. Lögin þurfi að stuðla að trausti og auka gagnsæi.
„Eitt af því sem fer forgörðum með núverandi fyrirkomulagi er einmitt gagnsæið og þegar ekkert er gagnsæið að þá er spurning um traust. Eftirlit með þessari starfsemi lítið sem ekkert,“ segir Guðmundur.
Hann segir dæmi frá löndunum í kring um okkur eins og til dæmis Bretlandi sýna að það er full ástæða fyrir löggjafann að vera vakandi yfir því með hvaða hætti ýmsir aðila geta haft áhrif, m.a. með fjármögnun formlegra sem óformlegra stjórnmálasamtaka.
Spurning um jafnræði
Ríkisstjórnin veitti Evrópuhreyfingunni og Heimssýn 10 milljónir króna hvorum fyrir umræðu um þjóðaratkvæðagreiðsluna. Síðan þá hafa fleiri baráttuhópar verið stofnaðir.
En hvar liggja mörkin? Hvenær ertu komin með hagsmunasamtök og hverjir eiga rétt á styrk og hverjir ekki ef við vísum í jafnræðisregluna?
„Það er mjög góð spurning og eitthvað fyrir löggjafann að velta fyrir sér,“ segir Guðmundur.