Greint var frá ráðningunni á vef sveitarfélagsins en þar segir að Ólafur hafi mikla reynslu af sveitastjórnarstörfum. Hann hafi verið sveitastjóri bæði í Reykhólahreppi og Tálknafjarðarhreppi og hafi verið forseti bæjarstjórnar Sandgerðisbæjar.
Alexandra Jóhannesdóttir hefur gegnt stöðunni síðustu ár en hún var á dögunum ráðin sveitarstjóri Suðurnesjabæjar.
Ólafur sé stjórnmálafræðingur að mennt og sé með MPA-gráðu í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands.
„Ólafur hefur einnig víðtæka reynslu af fræðslumálum en hann hefur verið grunnskólakennari, íþrótta- og tómstundafulltrúi og forstöðumaður Fjölsmiðjunnar á Suðurnesjum. Þá hefur hann gegnt ýmsum trúnaðar- og nefndastörfum síðastliðin tíu ár,“ segir á vef Skagastrandar.